Frakkastígur 1
01-0203 · 101 Reykjavík


104 dagar á sölu
89.900.000 kr
1.325.959 kr/m²
Eignamiðlun kynnir:
Frakkastíg 1 er sjö hæða íbúðahús. Um er ræða einstakt hús byggt af umhverfisábyrgð þar sem gæði hönnunar mæta umhverfisvænum lausnum. IÐA fasteignir vinnur verkefnið í samstarfi við Sap arkitektar/Lendager og Framkvæmdafélagið Arnarhvol.
Heimasíða
ÍBÚÐ 203
Íbúðin snýr í suður í átt að Hallgrímskirkju og gamla franska spítalanum sem nú er Tónlistarskóli Reykjavíkur.
Eldhúsið er opið og samtengt stofu sem hefur svalir og stóran útskotsglugga sem gefur mikla birtu.
Eldhúsinnrétting er sérsmíðuð úr hnotu með stáli í borðplötu og vaski. Í eldhúsi eru tveir ofnar, hefðbundinn ofn og ofn með val um stillingu á örbylgjueldun eða venjubundna eldun.
Svefnherbergi er rúmgott með fataskápum.
Baðherbergi er jafnframt rúmgott, flísalagt með innbyggðum speglaskápum og hefur granít í innréttingu.
Sturta og handlaugartæki eru innbyggð frá Grohe og sturtuhaus er festur í loft.
Allir skápar í íbúðinni ná upp í loft og eru sérsmíðaðir í hvert rými.
Íbúðinni fylgir geymsla í kjallara.
Smelltu hér til að sækja söluyfirlit.
Nánari upplýsingar veitir Guðlaugur Ingi Guðlaugsson Lögg.fasteignasali, í síma 864-5464, tölvupóstur gudlaugur@eignamidlun.is.
Nánari upplýsingar veitir Kjartan Hallgeirsson Löggiltur fasteignasali, í síma 824-9093, tölvupóstur kjartan@eignamidlun.is.***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum.
Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Heimasíða Eignamiðlunar
Eignamiðlun á Facebook

Dýpri greining á Húsasjá
- Verðmat fasteignar
- Sölusaga og verðþróun
- Samanburður sambærilegra eigna