HÚSASJÁ

Þorraholt 19A

01-0206 · 210 Garðabæ

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
28 myndir

107 m²

Stærð

3

Herbergi

2

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

2025

Byggingarár

3269 m²

Lóð

Garður

Lyfta

Bílskúr

Hleðslustöð

Geymsla

Þvottahús



59 dagar á sölu

sell

99.900.000 kr

933.645 kr/m²

--- Glæsileg 3ja herbergja íbúð við Þorraholt 19A í Garðabæ með bílastæði í bílakjallara, baðherbergi, þvottaherbergi og svölum til suðurs ---

Skoða verkefnið nánar á hlekk: www.thorraholtid.is Upplýsingar gefur: Heimir F. Hallgrímsson í síma: 849-0672 / HEIMIR@FASTLIND.IS

LIND Fasteignasala og ÞG Verk kynna með stolti: Nýjar og glæsilegar íbúðir við Þorraholt 19A í Garðabæ. Um er að ræða fjölbreyttar 2ja - 3ja herbergja íbúðir í lyftuhúsi og fylgja bílastæði í bílakjallara íbúðum. Svalir eða sérafnotaflötur fylgir öllum íbúðum ásamt séreignageymslu á jarðhæð.

Íbúð 206: Er glæsileg 107,0 fermetra 3ja herbergja íbúð á 2. hæð með svölum til suðurs og sérmerktu bílastæði í lokuðum bílakjallara. Góð geymsla fylgir íbúðinni sem er 18,6 fermetrar að stærð. Afhending er í mars-apríl 2026 með fyrirvara um að öryggisúttekt sé komin á húsið.

Nánari lýsing: Íbúðin skiptist í forstofu, eldhús í alrými með eyju sem er opið við stofu/borðstofu, 2 svefnherbergi, baðherbergi og þvottaherbergi. Útgengt á svalir frá stofu.

Húsið er steinsteypt og útveggir einangraðir og klæddir að utan sem tryggir lágmarks viðhald húsanna. Gluggar eru ál/tré kerfi og glerjaðir með K-gleri. Innveggir aðrir en steyptir eru úr hleðslusteini.

Allar nánari upplýsingar á heimasíðu verkefnisins: www.thorraholtid.is

Þorraholt stendur á einstökum stað í Garðabæ – í grónu og friðsælu umhverfi þar sem náttúra og þægindi borgarlífs fara saman. Hér eru fjölbreytt útivistarsvæði og fallegar gönguleiðir rétt við heimilið, auk þess sem stutt er í skóla, leikskóla, verslanir og alla helstu þjónustu. Garðabær er þekktur fyrir öflugt samfélag, góðar samgöngur og fjölbreytt tækifæri til íþrótta, menningar og útivistar – allt sem þarf fyrir virkt og innihaldsríkt daglegt líf.

Svæðið í kringum Þorraholt býður upp á jafnvægi milli rólegrar náttúru og nálægðar við líflega miðju höfuðborgarsvæðisins. Hér getur þú notið kyrrðarinnar heima fyrir og verið samt aðeins örfáum mínútum frá vinnu, verslun og afþreyingu. Það gerir Þorraholt að kjörnum stað fyrir þá sem vilja bæði lífsgæði og þægindi í senn.

ÞG Verk hafa yfir 25 ára reynslu á byggingarmarkaði. Fyrirtækið leggur áherslu á vandaðar íbúðir, góða þjónustu og skil íbúða á réttum tíma. Áreiðanleiki, gæði og notagildi eru einkunnarorð ÞG verks og fyrirtækið kappkostar að eiga gott samstarf við viðskiptavini sína.

Ef misræmi er á milli eignaskiptasamnings, söluyfirlits og/eða sölusíðu þá gilda þær upplýsingar sem koma fyrir í eignaskiptasamningi og samþykktum teikningum.

ALLAR NÁNARI UPPLÝSINGAR VEITIR:

Heimir F. Hallgrímsson í síma: 849-0672 / HEIMIR@FASTLIND.IS

Innréttingar: Í eldhúsum og baðherbergjum eru Nobilia innréttingar frá GKS. Eldhúsinnréttingar eru mismunandi útfærðar eftir íbúðum. Lýsing undir efri skápum í eldhúsum. Speglaskápar eru á aðalbaðherbergjum.

Eldhústæki: Íbúðunum fylgja vönduð eldhústæki af gerðinni Siemens. Íbúðum er skilað með span helluborði, innbyggðum kæliskáp, innbyggðri uppþvottavél, blástursofni og viftu eða lofthengdum eyjuháfi þar sem það á við.

Hreinlætistæki: Salernisskál (Laufen) er vegghengd með innbyggðum vatnskassa. Sturtur eru með flísalögðum botni og hertu sturtugleri. Hreinlætistæki eru hitastýrð frá Damixa. Þvottahús eru ýmist innan baðherbergja eða í sér rými.

Seljandi áskilur sér allan rétt til að gera efnis-, tæknilegar- og útlits breytingar meðan á byggingaframkvæmd stendur.

Kaupandi greiðir skipulagsgjald sem nemur 0,3% af brunabótamati þegar það er lagt á.

Heimild seljanda til að breyta eignaskiptasamning sé þess þörf án þess þó að rýra eignarrétt kaupanda. Innréttingateikningar eru þær sem gilda ef misræmi er milli arkitektateikninga og innréttingateikninga og eru þær áritaðar og hluti samningsins. Þar sem enn er verið að klára þinglýsingu á eignaskiptasamningi þá eru fastanúmer ekki rétt og verða leiðrétt fyrir kaupsamning um eignina.

Eignin afhendist skv meðfylgjandi skilalýsingu.

Kort af Þorraholt 19A

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður við sambærilegar eignir
Sjá verðmat og greiningu
Mynd 1Mynd 2Mynd 3Mynd 4Mynd 5Mynd 6Mynd 7Mynd 8Mynd 9Mynd 10Mynd 11Mynd 12Mynd 13Mynd 14Mynd 15Mynd 16Mynd 17Mynd 18Mynd 19Mynd 20Mynd 21Mynd 22Mynd 23Mynd 24Mynd 25Mynd 26Mynd 27Mynd 28