HÚSASJÁ

Háteigur 54

01-0102 · 250 Suðurnesjabæ

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
35 myndir

107 m²

Stærð

3

Herbergi

2

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

2025

Byggingarár

1320 m²

Lóð

Sérinngangur

Garður

Svalir

Geymsla

Þvottahús



192 dagar á sölu

sell

64.140.000 kr

600.000 kr/m²

Valný fasteignasala og Valgeir Leifur löggiltur fasteignasali kynna:

Háteigur 54, 250 Garður

Nýtt raðhús í nýju og ört vaxandi hverfi í Garði. Eignin er vel skipulögð með tveimur rúmgóðum svefnherbergjum, baðherbergi og geymslu, rúmgóðri stofu og borðstofu í björtu og opnu alrými ásamt glæsilegu eldhúsi með vandaðri L-laga innréttingu frá HTH og tækjum frá AEG. Eignin skilast með timburklæddum sólpalli. Lóðin skilast snyrtilega frágengin með tyrfingu, malbikuðu bílaplani og hellulagðri stétt með snjóbræðslukerfi. Gólfhiti er í öllum rýmum.

Smelltu hér til að sjá eignina í 3D.

Smelltu hér til að fá söluyfirlit.

Samkvæmt fasteignaskrá HMS er eignin skráð samtals 106.9 m².

Eign merkt 01-02, fastanúmer 253-9096 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi.

Eignin skilast fullbúin skv. skilalýsingu:

Frágangur innanhúss:

Eldhús með sérsmíðaðri innréttingu með innbyggðum ísskáp og uppþvottavél, bakaraofni í vinnuhæð og helluborði. Heimilistæki frá AEG.

Baðherbergi með innréttingu, upphengdu salerni og sturtu með glerskilrúmi. Gólf og veggir flísalagðir. Blöndunartæki Grohe.

Þvottahús er með innréttingu fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð og skolvaski.

Innréttingar og fataskápar sérsmíðaðar frá HTH.

Gólfefni eignarinnar eru vönduð; baðherbergi, þvottahús og forstofa eru flísalögð, en önnur rými eignarinnar eru með harðparketi frá Birgisson. Innihurðar eru frá Birgisson.

Í loftum er innfelld LED lýsing. Eignin er með tengjum fyrir tölvu og síma ásamt hitastilli í hverju rými fyrir gólfhitakerfi.

Frágangur utanhúss:

Þak er byggt úr kraftsperrum klætt með aluzink þakklæðningu. Útveggir eru hefðbundnir timburveggir klæddir að utan með lóðréttri bandsagaðri timburklæðningu. Gluggar og hurðir eru úr timbri með álkápu, gráir að lit.

Lóð og aðkoma:

Bílastæði eru malbikuð og stétt fyrir framan hús er hellulögð með snjóbræðslu. Sólpallur verður timburklæddur og lóð verður tyrfð. Sorpskýli verður steypt og staðsett innan lóðarmarka.. Gert er ráð fyrir rafmagns-ídráttarrör fyrir rafbílahleðslu.

Um verkefnið:

Sparri ehf. reisir nokkrar raðhúsalengjur með sérinngöngum og timburverönd. Íbúðir eru u.þ.b. 107–120 m², þriggja eða fjögurra herbergja. Allar íbúðir afhendast fullbúnar að innan sem utan með gólfefnum.

Smelltu hér til að sjá nánar um allar eignirnar.

*Fyrir nánari lýsingu vísast til skilalýsingu byggingaraðila.

*Myndir eru til viðmiðunar og geta verið úr sambærilegri íbúð, en endurspegla ekki endilega þessa tilteknu íbúð.

Allar nánari upplýsingar veitir:

Valgeir Leifur / Löggiltur fasteignasali / 780-2575 / valgeir@valny.is

Ertu að leita að nýbyggingum? Skoðaðu úrvalið hjá Valný – smelltu hér.

Ertu að hugsa um að selja? Smelltu hér og fáðu frítt verðmat.

Ekki missa af draumaeigninni – fylgstu með okkur á Instagram og Facebook

Lestu reynslusögur frá ánægðum viðskiptavinum okkar.

- Fasteignasalan sem opnar dyrnar að þinni eign.

Valný fasteignasala | www.valny.is | Tjarnargötu 2, 230 Reykjanesbær | Opið alla virka daga frá 9:00-16:00

Kort af Háteigur 54

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður við sambærilegar eignir
Sjá verðmat og greiningu
Mynd 1Mynd 2Mynd 3Mynd 4Mynd 5Mynd 6Mynd 7Mynd 8Mynd 9Mynd 10Mynd 11Mynd 12Mynd 13Mynd 14Mynd 15Mynd 16Mynd 17Mynd 18Mynd 19Mynd 20Mynd 21Mynd 22Mynd 23Mynd 24Mynd 25Mynd 26Mynd 27Mynd 28Mynd 29Mynd 30Mynd 31Mynd 32Mynd 33Mynd 34Mynd 35