HÚSASJÁ

Stekkjarberg 11P

03-0201 · 221 Hafnarfirði

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
25 myndir

94 m²

Stærð

3

Herbergi

2

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

2024

Byggingarár

4633 m²

Lóð

Sérinngangur

Garður

Svalir

Geymsla

Þvottahús



1 dagar á sölu

sell

98.500.000 kr

1.051.227 kr/m²

Hraunhamar fasteignasala kynnir í einkasölu glæsilega þriggja herbergja endaíbúð í nýbyggingu í Stekkjarbergi 11. Einstaklega góð staðsetning á grónum stað í Setbergshverfinu í Hafnarfirði. Stutt í alla helstu þjónustu, skóli, leikskóli og verslun í göngufæri.

Íbúðin afhendist fullbúin með gólfefnum, innbyggðum ísskáp og uppþvottavél.

Íbúðin er skráð 93,7 fm skv. HMS en þar af er 3,7 fm geymsla í sér húsi á lóð.

Nánari lýsing skv. teikningu:

Forstofa með fataskápum.

Bjart opið alrými sem samanstendur af eldhús, borðstofu og stofu.

Útgengt frá stofu út á rúmgóðar svalir í suðurátt.

Eldhús með rúmgóðri eyju. Vandaðar innréttingar frá HTH og raftæki frá Ormsson. Kvartsteinn á borði. Innbyggður ísskápur og uppþvottavél fylgja. Útgengt frá eldhúsi út á svalir.

Rúmgott hjónaherbergi með fataskápum.

Svefnherbergi með fataskáp.

Flísalagt baðherbergi með glugga. Innrétting, upphengt salerni og walk in sturta. Innfelld blöndunartæki. Tengi fyrir þvottavél og þurrkara á baðherbergi.

Þvottahús með góðri innréttingu, stæði fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð. Skolvaskur.

Geymsla í sér húsi á lóð.

Húsið er byggt með forsteyptum einingum frá BM Vallá.

Næg bílastæði.

Allar nánari upplýsingar veita:

Hlynur Halldórsson, löggiltur fasteignasali s. 698-2603, hlynur@hraunhamar.is

Helgi Jón Harðarson, sölustjóri í s. 893-2233, helgi@hraunhamar.is

Einar Örn Ágústsson löggiltur fasteignasali s. 888-7979, einar@hraunhamar.is

Glódís Helgadóttir, löggiltur fasteignasali í s. 659-0510, glodis@hraunhamar.is

Skoðunarskylda:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Hraunhamar fasteignasala vill benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga fyrir nánari ástandsskoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

1.    Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.

2.    Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. – 3.800 kr. af hverju skjali.

3.    Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar.

4.    Umsýslugjald til fasteignasölu skv. þjónustusamningi

Hraunhamar er elsta fasteignasala Hafnarfjarðar, stofnuð 1983.

Hraunhamar, í fararbroddi í rúm 40 ár. – Hraunhamar.is

Smelltu hér til að fá frítt söluverðmat.

Smelltu hér til að fá söluyfirlit sent strax.

Kort af Stekkjarberg 11P

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og greiningu