HÚSASJÁ

Sjávarborg 5B

01-0102 · 190 Vogum

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
22 myndir

130 m²

Stærð

5

Herbergi

4

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

2025

Byggingarár

1050 m²

Lóð

Sérinngangur

Garður

Svalir

Geymsla

Þvottahús

Heitur pottur



114 dagar á sölu

sell

89.500.000 kr

686.350 kr/m²

Tinna Bryde löggiltur fasteignasali og Háborg fasteignasala kynna:

Sjávarborg, 4–5 herbergja fullbúin raðhús með sjávarsýn í Grænubyggð, Sveitafélagið Vogar.

Um er að ræða 130,4 fm glæsileg og fullbúin raðhús á einni hæð, staðsett í nýju og spennandi hverfi við sjávarsíðuna. Hér færðu sérbýli með aukinni lofthæð, gólfsíðum gluggum og fallegu útsýni – í aðeins um 15 mínútna akstursfjarlægð frá Hafnarfirði.

Eignirnar eru fullbúnar samkvæmt skilalýsingu og tilbúnar til afhendingar.

-  4–5 herbergi, hægt að bæta við fjórða herbergi með einfaldri breytingu og minnka stofu

-  Gólfsíðir gluggar og mikil lofthæð

-  Sjávarsýn og heitur pottur

Nánari upplýsingar um eignina veitir Tinna Bryde löggiltur fasteignasali í síma 660-5532 eða tinna@haborg.is

Skipulag og nánari lýsing:

Forstofa er flísalögð með rúmgóðum fataskápum.

Bjart og opið alrými með stofu, borðstofu og eldhúsi er hjarta heimilisins. Gólfsíðir gluggar og lofthæð sem nær allt að um fjórum metrum á hæsta punkti skapa fallegt og opið rými. Útgengt er á sólpall úr lerki með heitum potti – fullkomið til að njóta kyrrðarinnar og sjávarloftsins.

Hægt er með einföldum hætti að bæta við fjórða svefnherberginu og minnka stofurýmið, án þess að fórna birtu eða notagildi – sem gerir eignina að sveigjanlegri lausn fyrir stækkandi fjölskyldu.

Á gólfum er vandað niðurlímt askarparket en votrými eru flísalögð. Gólfhiti er í allri eigninni með Danfoss stýrikerfi sem tryggir þægindi og góða orkustýringu.

Eldhúsið er opið við alrýmið með hvítri innréttingu og ljósri Quartz borðplötu. Með hverri íbúð fylgir span helluborð með gufugleypi, bakarofn, örbylgjuofn, innbyggð uppþvottavél og ísskápur með frysti.

Svefnherbergin eru þrjú til fjögur með fataskápum í sama stíl og eldhúsinnrétting.

Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf með 60x60 flísum, upphengdu salerni, sturtu og fallegri innréttingu með ljúflokun. Tengi er fyrir þvottavél og þurrkara. Sér þvottahús/geymsla er innan eignar.

Fyrir framan hvert hús eru tvö bílastæði og rafmagnshleðslustöð. Snjóbræðsla er í gangstéttum sem eykur þægindi yfir vetrartímann.

Staðsetning:

Sjávarborg er staðsett í Grænubyggð – nýju hverfi sem mun byggjast upp á næstu árum í fallegu og fjölskylduvænu umhverfi við sjávarsíðuna. Stutt er í leik- og grunnskóla, íþróttaaðstöðu og alla helstu þjónustu.

Hér býrðu í rólegu samfélagi umvafið náttúru Reykjanessins – en samt í þægilegri fjarlægð frá höfuðborgarsvæðinu og Keflavík.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.

Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.

Kort af Sjávarborg 5B

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður við sambærilegar eignir
Sjá verðmat og greiningu
Mynd 1Mynd 2Mynd 3Mynd 4Mynd 5Mynd 6Mynd 7Mynd 8Mynd 9Mynd 10Mynd 11Mynd 12Mynd 13Mynd 14Mynd 15Mynd 16Mynd 17Mynd 18Mynd 19Mynd 20Mynd 21Mynd 22