HÚSASJÁ

Sjávarborg 1C

01-0103 · 190 Vogum

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
29 myndir

130 m²

Stærð

5

Herbergi

4

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

2025

Byggingarár

1048 m²

Lóð

Sérinngangur

Garður

Svalir

Geymsla

Þvottahús

Heitur pottur



114 dagar á sölu

sell

99.600.000 kr

763.804 kr/m²

Guðmundur Þór Júlíusson, Ástþór Reynir & Pétur Ásgeirs löggiltir fasteignasalar hjá RE/MAX fasteignasölu kynna í einkasölu:

Sjávarborg 1C, 190 Vogar eignin telur 130,4 fm fimm herbergja raðhús á jarðhæð á glæsilegum stað í vogunum, Sjávarborg er hverfi í uppbyggingu með glæsilegu sjávarútsýni. Íbúðir skilast allar fullbúnar (samkvæmt skilalýsingu).

** Gólfsíðir gluggar í alrými.

** Danfoss stýrikerfi fyrir gólfhita.

** Aukin lofthæð.

** Fullbúið með gólfefnum og tækjum.

** Rafmagnshleðslustöð á bílastæði.

** Heitur pottur.

** Niðurlímt parket ( askur ) á gólfum. Flísar á votrýmum.

** Íbúðir skilast allar fullbúnar (samkvæmt skilalýsingu).

Skipulag telur: Forstofu, stofu, borðstofu/eldhús, fjögur svefnherbergi, baðherbergi og þvottahús/geymsla. Fallegt útsýni er úr alrými eignarinnar.

Bókið skoðun: hjá Gumma Júl í síma 858-7410 eða Ástþór Reynir í síma 899-6753 eða Pétur Ásgeirs í síma 893-6513 eða með tölvupósti á netfangið gj@remax.is eða arg@remax.is, petur@remax.is.

Arkitekt húsanna er TEIKNA - Teiknistofa arkitekta.

Nánari lýsing eignar:

Forstofa: Er með flísum á gólfum og rúmgóðum fataskápum.

Stofa og borðstofa er í opnu alrými með eldhúsi, rúmgóð stofa með útgengi á sólpall sem klæddur er með fallegu lerki, búið er að koma fyrir heitum pott, lofthæð innan eignarinnar á hæsta punkt eru um fjórir metrar og setur það mikinn svip á stofuna. Innfelld lýsing þar sem á við.

Eldhús: er opið við stofu. Eldhúsinnrétting er hvít melamine með ljósri Quartz borðplötu. Með hverri íbúð fylgir span helluborð með gufugleypi, bakarofn, örbylguofn, innbyggð uppþvottavél og ísskápur með frysti.

Svefnherbergi eru fjögur talsins þeim fylgja fataskápar í sama lit og efni og er á eldhúsinnréttingu. Parket á gólfum.

Baðherbergi: Er flísalagt í hólf og gólf með 60x60 flísum, upphengt salerni, sturtuklefi og innrétting við vask með ljúflokun á skúffum, tengi fyrir þvottavél og þurrkara.

Þvottahús / Geymsla er með flísum á gólfi, innrétting með tengi fyrir þvottavél og þurrkara.

Verandir við bakhlið eru úr timbri (lerki). Stéttir og bílastæði við aðkomuhlið íbúða eru hellulögn og snjóbræðsla er í gangstéttum. Eignir eru afhentar án trjágróðurs á lóð. Bílastæði er fyrir framan hvert hús.

Sjávarborg er staðsett í Grænubyggð sem er hverfi sem mun byggjast upp á næstu árum í fallegu, fjölskylduvænu og rólegu umhverfi við sjávarsíðuna. Sérstaklega vel staðsett fyrir þá sem vilja vera í nágrenni höfuðborgarsvæðisins en í rólegu og fjölskylduvænu umhverfi. Vogar er einstaklega barnvænt sveitarfélag og þar er stutt í alla helstu þjónustu og tómstundir.

Kaupendur greiða skipulagsgjald sem er 0,3% af endanlegu brunabótamati íbúðarinnar.

Allar nánari upplýsingar um eignina veitir:

Guðmundur Þór Júlíusson löggiltur fasteignasali í síma 858-7410 eða gj@remax.is

Pétur Ásgeirsson löggiltur fasteignasali í síma 893-6513 / petur@remax.is

Ástþór Reynir löggiltur fasteignasali í síma 899-6753 eða arg@remax.is

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati.

2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.

3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 45-75 þús.kr. Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana.

4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900 mvsk.

Kort af Sjávarborg 1C

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður við sambærilegar eignir
Sjá verðmat og greiningu
Mynd 1Mynd 2Mynd 3Mynd 4Mynd 5Mynd 6Mynd 7Mynd 8Mynd 9Mynd 10Mynd 11Mynd 12Mynd 13Mynd 14Mynd 15Mynd 16Mynd 17Mynd 18Mynd 19Mynd 20Mynd 21Mynd 22Mynd 23Mynd 24Mynd 25Mynd 26Mynd 27Mynd 28Mynd 29