HÚSASJÁ

Garðabraut 1A

01-0402 · 300 Akranesi

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
19 myndir

119 m²

Stærð

3

Herbergi

2

Svefnherbergi

2

Baðherbergi

2025

Byggingarár

3425 m²

Lóð

Garður

Lyfta

Hjólastólaaðgengi

Geymsla

Þvottahús



240 dagar á sölu

sell

102.400.000 kr

431.703 kr/m²

Háborg fasteignasala og Bestla byggingarfélag kynna: Garðabraut 1 Akranesi – í nýju og glæsilegu íbúðarhverfi. Húsið er lyftuhús með bílageymslu.

Íbúð 402 – Þriggja - fjögurra herbergja íbúð á 4.hæð, staðsett í nýju og glæsilegu íbúðarhverfi. Að stærð 118,6 þar af er geymsla 10,1 fm, eigninni fylgir einnig stæði í bílakjallara. Íbúðin skipar forstofu, hol, baðherbergi með aðstöðu fyrir þvottavél/þurkara, hjónasvíta með góðu skápaplássi og baðherbergi, auka barnaherbergi með skáp, möguleiki á öðru barnaherbergi en það væri á kostnað stofunnar, opið alrými með eldhúsi, borðstofu og stofu. Úr stofu er útgengt út á svalir að stærð 9,4 fm.

Íbúðin skilast fullbúin án megin gólfefna, nema í votrými eru flísar.  Áætluð afhending í september 2025.

Helstu kostir íbúðar.Aukin lofthæðHjónasvítaTvö baðherbergiSvalirInnrétting í eldhúsi frá GKS/NobiliaEldhúsið með HPL borðplötu og tækjum frá AEG.Votrými flísalögðBirtugæði og loftgæðiNýtt glæsilegt íbúðarhverfiVandaður verktakiÁhersla er lögð á gott skipulag, vandað efnisval, fallegt útlit, birtugæði og loftgæði. Áhersla lögð á vandað efnisval og rýmisnýtingu.

Heimasíða Garðabraut 1

Allar upplýsingar um eignina veita: Katla Hanna Steed löggiltur fasteignasali í síma 822 1661 eða katla@haborg.is, Jórunn Skúladóttir löggiltur fasteignasali í síma 845 8958 eða jorunn@haborg.is og Kristín Rós Magnadóttir löggiltur fasteignasali í síma 860-2078 eða kristin@haborg.is.

Almennt Fjölbýlishúsið að Garðabraut er staðsett í nýju og glæsilegu íbúðarhverfi á Akranesi. Tvö stigahús eru í byggingunni, hvort með lyftu og kjallara. Byggingin er 4 og 7 hæðir með samtals 50 íbúðum af mismunandi stærðum – tveggja, þriggja og fjögurra herbergja.  Í kjallara er bílageymsla með merktum stæðum fyrir flestar íbúðir. Aðgengi að sérgeymslum, hjóla- og vagnageymslu, ásamt tæknirýmum. Aðalinngangur hússins er á 1. hæð. Flestar íbúðir eru með aukinni lofthæð og allar með svölum eða sérafnotareit. Úr mörgum íbúðum er fallegt útsýni og þakíbúðir bjóða upp á stórar þaksvalir með möguleika á rafmagnspotti. Flestum íbúðum fylgir stæði í bílakjallara og stærri íbúðum fylgja tvö stæði.

Á Lóð eru hellulögð svæði og hitalagnir í gönguleiðum og bílastæðum fyrir hreyfihamlaða. Undirbúið er fyrir rafhleðslustöðvar og djúpgámar eru staðsettir á lóðinni.

Eldhús eru með innréttingum frá GKS/Nobilia í ljósgráum lit. Efri skápar eru vegghengdir með LED-lýsingu undir. Borðplötur eru úr HPL. Eldhústæki frá AEG fylgja – spanhelluborð og bakarofn með innbyggðum hitamæli. Gufugleypir er annaðhvort innbyggður í efri skáp eða sem eyju-/veggháfur frá Airforce/Elica. Gert er ráð fyrir innbyggðum kæli, frysti og uppþvottavél og fylgja hurðaforstykki í stíl. Blöndunartæki frá Grohe eru hitastýrð og vaskur úr stáli er límdur ofan á borðplötuna.

Baðherbergi eru flísalögð, gólf eru flísalögð með 60x60 cm flísum og hluti veggja flísalagður upp í loft. Innréttingar eru í ljósgráum lit með slitsterkri HPL borðplötu og hvítum vaski. Grohe blöndunartæki eru hitastýrð og sturtan afmörkuð með gleri. Salerni er vegghengt með innbyggðum vatnskassa.

Þvottahús Í sumum íbúðum er sér þvottaaðstaða, annars er hún inn af baðherbergi. Tengi eru fyrir þvottavél og barkalausan þurrkara með rakaþétti. Gólf er flísalagt.

Hita- og loftræstikerfi. Íbúðir og sameign eru hitaðar með ofnakerfi samkvæmt teikningum. Allar íbúðir eru með loftræstikerfi með varmaendurvinnslu, þar sem loft er sogið úr eldhúsi og baðherbergi og ferskt loft dælt inn í önnur rými. Kerfið endurvinnur allt að 85% varma og síar loftið, sem dregur úr svifryki og frjókornum. Loftræstisamstæður eru staðsettar á svölum.

Allar nánari upplýsingar veita Katla Hanna Steed löggiltur fasteignasali í síma 822 1661 eða katla@haborg.is, Jórunn Skúladóttir löggiltur fasteignasali í síma 845 8958 eða jorunn@haborg.is og Kristín Rós Magnadóttir löggiltur fasteignasali í síma 860-2078 eða kristin@haborg.is.

Kort af Garðabraut 1A

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður við sambærilegar eignir
Sjá verðmat og greiningu
Mynd 1Mynd 2Mynd 3Mynd 4Mynd 5Mynd 6Mynd 7Mynd 8Mynd 9Mynd 10Mynd 11Mynd 12Mynd 13Mynd 14Mynd 15Mynd 16Mynd 17Mynd 18Mynd 19
Garðabraut 1A, 01-0402 | Húsasjá