HÚSASJÁ

Garðabraut 1B

01-0110 · 300 Akranesi

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
16 myndir

74 m²

Stærð

3

Herbergi

2

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

2025

Byggingarár

3425 m²

Lóð

Garður

Svalir

Lyfta

Hjólastólaaðgengi

Geymsla

Þvottahús



239 dagar á sölu

sell

61.900.000 kr

833.109 kr/m²

Háborg fasteignasala og Bestla byggingarfélag kynna: Garðabraut 1 Akranesi – í nýju og glæsilegu íbúðarhverfi. Húsið er lyftuhús með bílageymslu.

Íbúð 110 – 3ja herbergja íbúð á 1.hæð, staðsett í nýju og glæsilegu íbúðarhverfi. Að stærð 74,3 fm og þar af 5,8 fm geymsla, eigninni fylgir EKKI stæði í bílakjallara. Íbúðin skipar forstofu, hol, hjónaherbergi, auka herbergi, baðherbergi með aðstöðu fyrir þvottavél/þurrkara og alrými opið með eldhúsi, borðstofu og stofu. Útgengt út á L laga timburpall úr stofu að stærð 66,4 fm.

Íbúðin skilast fullbúin án megin gólfefna, nema í votrými eru flísar. Áætluð afhending í september 2025.

Helstu kostir íbúðar.Aukin lofthæðExtra háar hurðarVerönd 66,4 fmInnrétting í eldhúsi frá GKS/NobiliaEldhúsið með HPL borðplötu og tækjum frá AEG.Votrými flísalögðBirtugæði og loftgæðiNýtt glæsilegt íbúðarhverfiVandaður verktakiÁhersla er lögð á gott skipulag, vandað efnisval, fallegt útlit, birtugæði og loftgæði. Áhersla lögð á vandað efnisval og rýmisnýtingu.

Heimasíða Garðabraut 1

Allar upplýsingar um eignina veita: Katla Hanna Steed löggiltur fasteignasali í síma 822 1661 eða katla@haborg.is, Jórunn Skúladóttir löggiltur fasteignasali í síma 845 8958 eða jorunn@haborg.is og Kristín Rós Magnadóttir löggiltur fasteignasali í síma 860-2078 eða kristin@haborg.is.

Almennt Fjölbýlishúsið að Garðabraut er staðsett í nýju og glæsilegu íbúðarhverfi á Akranesi. Tvö stigahús eru í byggingunni, hvort með lyftu og kjallara. Byggingin er 4 og 7 hæðir með samtals 50 íbúðum af mismunandi stærðum – tveggja, þriggja og fjögurra herbergja.  Í kjallara er bílageymsla með merktum stæðum fyrir flestar íbúðir. Aðgengi að sérgeymslum, hjóla- og vagnageymslu, ásamt tæknirýmum. Aðalinngangur hússins er á 1. hæð. Flestar íbúðir eru með aukinni lofthæð og allar með svölum eða sérafnotareit. Úr mörgum íbúðum er fallegt útsýni og þakíbúðir bjóða upp á stórar þaksvalir með möguleika á rafmagnspotti. Flestum íbúðum fylgir stæði í bílakjallara og stærri íbúðum fylgja tvö stæði.

Á Lóð eru hellulögð svæði og hitalagnir í gönguleiðum og bílastæðum fyrir hreyfihamlaða. Undirbúið er fyrir rafhleðslustöðvar og djúpgámar eru staðsettir á lóðinni.

Eldhús eru með innréttingum frá GKS/Nobilia í ljósgráum lit. Efri skápar eru vegghengdir með LED-lýsingu undir. Borðplötur eru úr HPL. Eldhústæki frá AEG fylgja – spanhelluborð og bakarofn með innbyggðum hitamæli. Gufugleypir er annaðhvort innbyggður í efri skáp eða sem eyju-/veggháfur frá Airforce/Elica. Gert er ráð fyrir innbyggðum kæli, frysti og uppþvottavél og fylgja hurðaforstykki í stíl. Blöndunartæki frá Grohe eru hitastýrð og vaskur úr stáli er límdur ofan á borðplötuna.

Baðherbergi eru flísalögð, gólf eru flísalögð með 60x60 cm flísum og hluti veggja flísalagður upp í loft. Innréttingar eru í ljósgráum lit með slitsterkri HPL borðplötu og hvítum vaski. Grohe blöndunartæki eru hitastýrð og sturtan afmörkuð með gleri. Salerni er vegghengt með innbyggðum vatnskassa.

Þvottahús Í sumum íbúðum er sér þvottaaðstaða, annars er hún inn af baðherbergi. Tengi eru fyrir þvottavél og barkalausan þurrkara með rakaþétti. Gólf er flísalagt.

Hita- og loftræstikerfi. Íbúðir og sameign eru hitaðar með ofnakerfi samkvæmt teikningum. Allar íbúðir eru með loftræstikerfi með varmaendurvinnslu, þar sem loft er sogið úr eldhúsi og baðherbergi og ferskt loft dælt inn í önnur rými. Kerfið endurvinnur allt að 85% varma og síar loftið, sem dregur úr svifryki og frjókornum. Loftræstisamstæður eru staðsettar á svölum.

Allar nánari upplýsingar veita Katla Hanna Steed löggiltur fasteignasali í síma 822 1661 eða katla@haborg.is, Jórunn Skúladóttir löggiltur fasteignasali í síma 845 8958 eða jorunn@haborg.is og Kristín Rós Magnadóttir löggiltur fasteignasali í síma 860-2078 eða kristin@haborg.is.

Kort af Garðabraut 1B

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður við sambærilegar eignir
Sjá verðmat og greiningu
Mynd 1Mynd 2Mynd 3Mynd 4Mynd 5Mynd 6Mynd 7Mynd 8Mynd 9Mynd 10Mynd 11Mynd 12Mynd 13Mynd 14Mynd 15Mynd 16