Ártún 30
01-0101 · 806 Selfossi



282 dagar á sölu
78.800.000 kr
676.395 kr/m²
Betri Stofan fasteignasala kynnir: Ártún 30 – A2 í Reykjaskógi Bláskógarbyggð. Húsið er 116 fm sumarhús á einni hæð á steyptum sökkli ásamt viðarpalli útfrá stofu og við aðalinngang.
Húsið afhendist að fullu tilbúið með timburpalli og grófjöfnuðu bílaplani.
Heimasíða: bruararbyggd.is
Húsið er Íslensk hönnun teiknað af Ívari Haukssyni hjá Verkfræðistofu Ívars Hauks ehf, framleitt af Nordroof Ísland ehf, Modular einingarnar koma frá verksmiðju Nordroof by Wineris í Litháen.
Allur frágangur er miðaður við íslenska staðla og íslenskar reglugerðir.
Húsið afhendist fullbúið að innan, með viðarklæðningu að utan og grófjöfnuðu bílaplani.
Húsinu er skilað fullbúnu með gólfefnum í öllum rýmum. Gólf blautrýma eru flísalögð og veggir baðherbergis flísalagðir. Önnur gólf innanhúss eru með vönduðu Quick-Step parketi.
Húsið verður afhenta að fullu tilbúið með innréttingum og húsgögnum, tækjum í eldhúsi og þvottahúsi þ.m.t ofn, helluborð með innbyggðri viftu, ísskáp, uppþvottavél, vínkæli, þvottavél og þurrkara. Auka salerni er í þvottahúsi.
Hitakerfi: Gólfhitalagnir, tengdar saman við tengigrind.
Seljandi greiðir inntaksgjöld fyrir rafmagn og hita
Gluggar/Útihurðar eru ál-tré gluggar/hurðir, dökkgrátt RAL 7016 að innan og utan.
FRÁGANGUR UTANHÚSS
Húsið er klætt að utan með grárri viðarklæðningu.
Viðarpallur er við aðalinngang og útfrá stofu.
ÞAK
Á þaki er bræddur tvöfaldur sérstakur þakpappi, dökkgrár að lit. Þakrennur.
RAFLAGNIR OG RAFHLEÐSLA
Útiljós eru við innganga.
Lagnaleið fyrir rafmagnshleðslu út á bílastæði. (hleðslustöð fylgir ekki).
Lagnaðleið fyrir heitan pott við húsið.
GLUGGAR OG ÚTIHURÐIR
Gluggar/Útihurðar eru ál-tré gluggar/hurðir, dökkgrátt RAL 7016 að innan og utan.
Ártún er í Reykjaskógi og liggur í næsta nágrenni Brúará. 80 mín akstur frá Reykjavík.
Nánari upplýsingar veita Jason Kristinn Ólafsson, sími 7751515 / jason@betristofan.is
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af ef að kaupum verður:
1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Skoðunarskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Betri Stofan fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Fáðu nýja innsýn á Húsasjá
- Verðmat fasteignar
- Sölusaga og verðþróun
- Samanburður sambærilegra eigna









