HÚSASJÁ

Hallgerðartún 57

01-0103 · 860 Hvolsvelli

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
16 myndir

153 m²

Stærð

4

Herbergi

3

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

1371 m²

Lóð

Sérinngangur

Svalir

Bílskúr

Þvottahús



110 dagar á sölu

sell

92.900.000 kr

607.984 kr/m²

LANDMARK Fasteignamiðlun og Freyja Rúnars löggiltur fasteignasali (s:694-4112 / freyja@landmark.is) og félagsmaður í Félagi fasteignasala kynna:

HALLGERÐARTÚN 53-57 HVOLSVELLI - ÞRJÚ GLÆSILEG OG VEL SKIPULÖGÐ 4RA HERBERGJA RAÐHÚS Á EINNI HÆÐ MEÐ BÍLSKÚR - TILBÚIN TIL AFHENDINGAR.

Endahúsin eru 152,8 fm þar af er bílskúr 30,8 fm. Miðjuhúsin eru 132,8 fm þar af bílskúr 29,8 fm.  Húsin eru byggð úr timbri og eru á steyptum sökklum. Húsin eru klædd með Cembrit sementsklæðningu.  Gluggar eru úr timbri, með áli að utan og þreföldu gleri.

Innréttingar og tæki eru innflutt og sérsmíðuð, gólfhiti, yfirfelldar hurðir af vandaðri gerð og sólpallur í suður. Varmaskiptir á neysluvatni og gólfhita.

Lóð er sléttuð og tyrfð og bílaplan hellulagt, ruslatunnuskýli verða frágengin.

Glæsileg, rúmgóð og vel skipulögð eign með mikilli lofthæð ( 270 cm).  Glæsilegt útsýni og eintakt umhverfi.

Verð á endaraðhúsi: 92.900.000

Verð á miðjuhúsi: 82.100.000

Byggingaraðili er SA smíðar ehf sem hafa áunnið sér góðan orðstír fyrir vönduð vinnubrögð og skil á réttum tíma.

Eigninni verður skilað fullfrágenginni að utan sem og innan, með gólfefnum.  Eignin skilast á byggingarstigi 7, matstigi 7.  Fullfrágengin skv. skilalýsingu. Kaupandi mun greiða skipulagsgjald þegar það verður innheimt sem er 0,3% af endanlegu brunabótamati.  Gatnagerðargjald og tengigjöld veitna eru greidd af seljanda

Nánari lýsing endaraðhúss:

Forstofa með skáp og flísum á gólfi.

Eldhús er með innfluttri, sérsmíðaðri innréttingu, ljúflokunarbúnaður á skúffum, ledlýsing undir efri skápum, innbyggður ísskápur og uppþvottavél sem fylgir með, bakaraofn og span helluborð með viftu.  Steinborðplötur á eldhúsinnréttingu.

Stofa, borðstofa og eldhús er í opnu og björtu alrými með útgengt á timburverönd í suður.

Baðherbergi er með flísum á gólfi á tveimur veggjum, innbyggt upphengt salerni, walk in sturta og handklæðaofn.

Hjónaherbergi I (16 fm) er með fataskápum, gott skápapláss.

Herbergi II (10,4 fm) með fataskáp.

Herbergi III (10,4 fm) með fataskáp.

Þvottahús með góðri innréttingu og flísum á gólfi, innangengt úr þvottahúsi í bílskúr

Bílskúr með rafdrifinni innkeyrsluhurð ásamt gönguhurð, epoxy á gólfi.

Verönd: Útgengt úr stofu á góða verönd sem snýr í suður sem er 3 metrar meðfram öllu húsinu að bakatil.

Fyrir nánari upplýsingar hafið samband á netfangið freyja@landmark.is eða í síma 694-4112

Skoðunar- og aðgæsluskylda:

Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 kveða á um að kaupendur þurfi að skoða fasteignir vel áður en tilboð er gert. LANDMARK fasteignamiðlun ráðleggur kaupendum að skoða ástand eignar og leita sér aðstoðar sérfræðinga ef þörf er á nánari skoðun.

Söluyfirlit:

Söluyfirlit er gert af fasteignasala samkvæmt lögum nr. 70/2015. Upplýsingar í yfirlitinu eru fengnar úr opinberum skrám, frá seljanda og ef þarf frá húsfélagi. Fasteignasali sannreynir upplýsingar með skoðun á eigninni en getur ekki sannreynt ástand þess sem ekki er aðgengilegt eða sýnilegt, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að greiða:

1. Stimpilgjald: 0,8% af fasteignamati (0,4% fyrir fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.

2. Þinglýsingargjald: 2.700 kr. fyrir hvert skjal.

3. Lántökugjald: Fer eftir gjaldskrá lánveitanda.

3. Þjónustusýslugjald: 79.000 kr. m/vsk.

3. Skipulagsgjald: Ef um nýbyggingu er að ræða, 0,3% af brunabótamáti þegar það er lagt á.

Heimasíða LANDMARK

Pantaðu frítt söluverðmat

Kort af Hallgerðartún 57

Fáðu nýja innsýn á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og samanburð