HÚSASJÁ

Hallgerðartún 55

01-0102 · 860 Hvolsvelli

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
19 myndir

133 m²

Stærð

4

Herbergi

3

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

2025

Byggingarár

1371 m²

Lóð

Sérinngangur

Garður

Bílskúr

Þvottahús



298 dagar á sölu

sell

82.100.000 kr

617.293 kr/m²

LANDMARK Fasteignamiðlun og Freyja Rúnars löggiltur fasteignasali (s:694-4112 / freyja@landmark.is) og félagsmaður í Félagi fasteignasala kynna:

HALLGERÐARTÚN 53-57 HVOLSVELLI -  ÞRJÚ GLÆSILEG OG VEL SKIPULÖGÐ 4JA HERBERGJA RAÐHÚS Á EINNI HÆÐ MEÐ BÍLSKÚR - TILBÚIN TIL AFHENDINGAR.

Endahúsin eru 152,8 fm þar af er bílskúr 30,8 fm. Miðjuhúsin eru 132,8 fm þar af bílskúr 29,8 fm.  Húsin eru byggð úr timbri og eru á steyptum sökklum. Húsin eru klædd með Cembrit sementsklæðningu.  Gluggar eru úr timbri, með áli að utan og þreföldu gleri.

Innréttingar og tæki eru innflutt og sérsmíðuð, gólfhiti, parket og flísar á gólfi, yfirfelldar hurðir af vandaðri gerð og sólpallur í suður. Varmaskiptir á neysluvatni og gólfhita.

Lóð er sléttuð og tyrfð og bílaplan hellulagt, ruslatunnuskýli verða frágengin.

Glæsileg, rúmgóð og vel skipulögð eign með mikilli lofthæð ( 270 cm).   Eignin er tilbúin til afhendingar.  Glæsilegt útsýni og eintakt umhverfi.

Verð á endaraðhúsi: 92.900.000

Verð á miðjuhúsi: 82.100.000

Byggingaraðili er SA smíðar ehf sem hafa áunnið sér góðan orðstír fyrir vönduð vinnubrögð og skil á réttum tíma.

Eigninni verður skilað fullfrágenginni að utan sem og innan, með gólfefnum.  Eignin skilast á byggingarstigi 7, matstigi 7.  Fullfrágengin skv. skilalýsingu. Kaupandi mun greiða skipulagsgjald þegar það verður innheimt sem er 0,3% af endanlegu brunabótamati.  Gatnagerðargjald og tengigjöld veitna eru greidd af seljanda

Nánari lýsing miðjuraðhúss:

Forstofa með skáp og flísum á gólfi, innangengt í bílskúr.

Eldhús er með innfluttri, sérsmíðaðri innréttingu, ljúflokunarbúnaður á skúffum, ledlýsing undir efri skápum, innbyggður ísskápur og uppþvottavél sem fylgir með, bakaraofn og span helluborð með viftu.  Steinborðplötur á eldhúsinnréttingu.

Stofa, borðstofa og eldhús er í opnu og björtu alrými með útgengt á timburverönd í suður.

Baðherbergi er með flísum á gólfi á tveimur veggjum, innbyggt upphengt salerni, walk in sturta og handklæðaofn.

Hjónaherbergi I (12,4 fm) er með fataskápum, gott skápapláss.

Herbergi II (9 fm) með fataskáp.

Herbergi III (9 fm)með fataskáp.

Þvottahús með góðri innréttingu og flísum á gólfi.

Bílskúr með rafdrifinni innkeyrsluhurð ásamt gönguhurð, epoxy á gólfi. Innangengt úr forstofu í bílskúr.

Verönd: Útgengt úr stofu á góða verönd sem snýr í suður sem er 3 metrar meðfram öllu húsinu að bakatil.

Fyrir nánari upplýsingar hafið samband á netfangið freyja@landmark.is eða í síma 694-4112

Skoðunar- og aðgæsluskylda:

Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 kveða á um að kaupendur þurfi að skoða fasteignir vel áður en tilboð er gert. LANDMARK fasteignamiðlun ráðleggur kaupendum að skoða ástand eignar og leita sér aðstoðar sérfræðinga ef þörf er á nánari skoðun.

Söluyfirlit:

Söluyfirlit er gert af fasteignasala samkvæmt lögum nr. 70/2015. Upplýsingar í yfirlitinu eru fengnar úr opinberum skrám, frá seljanda og ef þarf frá húsfélagi. Fasteignasali sannreynir upplýsingar með skoðun á eigninni en getur ekki sannreynt ástand þess sem ekki er aðgengilegt eða sýnilegt, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að greiða:

1. Stimpilgjald: 0,8% af fasteignamati (0,4% fyrir fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.

2. Þinglýsingargjald: 2.700 kr. fyrir hvert skjal.

3. Lántökugjald: Fer eftir gjaldskrá lánveitanda.

3. Þjónustusýslugjald: 79.000 kr. m/vsk.

3. Skipulagsgjald: Ef um nýbyggingu er að ræða, 0,3% af brunabótamáti þegar það er lagt á.

Heimasíða LANDMARK

Pantaðu frítt söluverðmat

Kort af Hallgerðartún 55

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og greiningu