HÚSASJÁ

Áshamar 50

01-0310 · 221 Hafnarfirði

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
37 myndir

122 m²

Stærð

4

Herbergi

3

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

2024

Byggingarár

2705 m²

Lóð

Sérinngangur

Garður

Lyfta

Bílskúr

Geymsla

Þvottahús



346 dagar á sölu

sell

88.900.000 kr

727.496 kr/m²

Lind Fasteignasala og Auður Magnúsdóttir kynna nýjar og glæsilegar 2–4 herbergja íbúðir í vönduðu og fallegu fjölbýli við Áshamar 50, 221 Hafnarfirði. Öllum íbúðum fylgir merkt stæði og geymsla í lokuðu bílastæðahúsi. Möguleiki verður á tengingu rafhleðslustöðvar við bílastæði. Íbúðirnar afhendast fullbúnar með gólfefnum, innbyggðum ísskáp, frysti og uppþvottavél.

Svansvottuð bygging – umhverfisvæn og heilsusamleg hönnun

Áshamar 50 er hannaður og byggður samkvæmt ströngum kröfum Svansins – Norrænu umhverfisvottunarinnar. Slík vottun tryggir að bæði byggingarefni og framkvæmdaferli stuðli að bættri heilsu og vistvænni nýtingu auðlinda.

Byggingin er í Svansvottunarferli, sem felur í sér nákvæma úttekt á öllum þáttum verkefnisins – frá hönnun og efnisvali til loftgæða og orkunotkunar. Lokaniðurstaðan verður vistvæn bygging með minni umhverfisáhrifum og betri lífsgæðum fyrir íbúa.

Byggingaraðili: Þarfaþing hf.

Aðalhönnuður hússins: Arkís arkitektar ehf.

Allar nánari upplýsingar á heimasíðu verkefnisins: www.ashamar50.is

Íbúð 310: 122,2 fm, fjögurra herbergja íbúð á 3. hæð. Eigninni fylgja tvö stæði í lokuðu bílastæðahúsi.

Nánari lýsing:

Anddyri: Parket á gólfi, fataskápur.

Eldhús: Parket á gólfi, gott skápa- og borðpláss, innréttingin er frá Selós, framhliðar eru matt beige, grábrúnar að lit, borðplötur eru úr 20mm Quartz steini með undirlímdum vaski úr stáli. Eldhústæki eru frá AEG. Innbyggður ísskápur, frystir og uppþvottavél fylgir. Skúffur eru með mjúklokunarbúnaði, og LED lýsing undir efri skápum. Höldur eru svartar grip höldur frá Selós.

Alrými: Parket á gólfi, útgengt út á svalir.

Hjónaherbergi: 14,1fm, parket á gólfi, fataskápur.

Herbergi: 10,5fm, parket á gólfi, fataskápur.

Herbergi: 8,5fm, parket á gólfi, fataskápur.

Baðherbergi: Gráar flísar 60x120 að stærð á gólfi og á veggjum að hluta. Borðplötur eru úr 20mm Quartz steini með undirlímdum vaski. innréttingin er frá Selós, framhliðar eru matt beige, grábrúnar að lit. Upphengt salerni, handklæðaofn og sturta. Hreinlætistæki eru frá Grohe og innihalda hitastýrð og innbyggð blöndunartæki í sturtu.

Þvottahús: Sér þvottahús, innrétting undir þvottavél og þurrkara framleidd af Selós, beige grábrúnar að lit. Vélræn loftræsting er í öllum íbúðum, samstæða staðsett í þvottahúsi.

Svalir: 7,0fm.

Geymsla: 8,0fm í sameign.

Hjóla- og vagnageymsla: Í sameign.

Bílastæði: Tvö stæði í lokuðu bílastæðahúsi fylgir eigninni. B50 og B51.

Inngarður: Inngarður lóðar er skjólgóður suðurgarður sem þjónar íbúum með leiktækjum, stígum og fjölbreyttum grænum svæðum. Hönnun garðsins leggur áherslu á notagildi og fegurð. Gönguleiðir verða hellulagðar og aðstaða verður fyrir útivist og samveru. Leiktæki fyrir börn verða sett upp í samræmi við samþykkt skipulag og hönnun lóðar.

Frekari upplýsingar í skilalýsingu.

Kaupandi greiðir 0,3% af væntanlegu brunabótamati þegar því hefur verið úthlutað eigninni.

Nánari upplýsingar veita:

Auður Magnúsdóttir Löggiltur fasteignasali, í síma 8482666, tölvupóstur audur@fastlind.is.

Helga Pálsdóttir Löggiltur fasteignasali, í síma 8222123, tölvupóstur helga@fastlind.is.

Kort af Áshamar 50

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður við sambærilegar eignir
Sjá verðmat og greiningu
Mynd 1Mynd 2Mynd 3Mynd 4Mynd 5Mynd 6Mynd 7Mynd 8Mynd 9Mynd 10Mynd 11Mynd 12Mynd 13Mynd 14Mynd 15Mynd 16Mynd 17Mynd 18Mynd 19Mynd 20Mynd 21Mynd 22Mynd 23Mynd 24Mynd 25Mynd 26Mynd 27Mynd 28Mynd 29Mynd 30Mynd 31Mynd 32Mynd 33Mynd 34Mynd 35Mynd 36Mynd 37
Áshamar 50, 01-0310 | Húsasjá