HÚSASJÁ

Súlur 9

Lóð · 803 Selfossi

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
15 myndir

9685 m²

Lóð



69 dagar á sölu

sell

9.900.000 kr

Elka lgf. s. 863-8813 og Fasteignasalan TORG kynna í einkasölu íbúðahúsalóðir í Flóahreppi, einungis 5 mínútna akstur frá Selfossi.

Frábær staðsetning við bæjarmörk Selfosss þar sem stutt er í verslun og þjónustu - Leik- og grunnskóli við Þjórsárver (Flóaskóli).

Tækifæri að byggja í sveitasælunni með þéttbýlið í seilingarfjarlægð!  verð á lóðum frá 8.900.000 kr.

Smelltu hér til að fá staðsetningu á Google Maps

Á skipulagssvæðinu eru afmarkaðar 17 eignarlóðir, Stærð lóða er frá 7.499 m² til 21.938 m², fyrir íbúðahús og tengd mannvirki.

Innan lóða er heimilt að byggja íbúðarhús, bílskúr og gestahús auk þess sem heimildir eru fyrir skemmu og gripahúsi.

Aðkoma er um nýja vegtengingu frá Önundarholtsvegi.  Flóahreppur annast þjónustu á svæðinu svosem skólaakstur, snjómokstur og sorphirðu.

Lóðum skilast byggingahæfum með vegi, vatni, rafmagni og ljósleiðara

Nýtingarhlutfall lóða er skilgreind að hámarki 0,05 og um er að ræða þrenns konar byggingareiti, B1 fyrir íbúðarhús, bílskúr og gestahús, B2 fyrir skemmu eða gripahús og B3 fyrir íbúðarhús, bílskúr, gestahús, skemmu eða gripahús.

Möguleiki er á beitilandi fyrir hesta stutt frá lóðunum, bæði sumar- og vetrarbeit.

Verð lóða eru með vegi að lóðamörkum, ásamt rafmagni, vatni og ljósleiðara.  Kaupandi greiðir tengigjöld skv. gjaldskrá (Rarik, Flóahreppur og Flóaljós).

Verð lóða:

Lóð nr. 1 (B1 og 2), stærð 11.864 fm - byggingamagn að 593 fm - verð: 12.900.000 kr.

Lóð nr. 2 B3, stærð 14.153 fm - byggingamagn að 708 fm - verð: 14.900.000 kr.

Lóð nr. 3 (B1 og 2), stærð 10.116 fm - byggingamagn að 506 fm - SELD

Lóð nr. 4 B3, stærð 12.164 fm - byggingamagn að 608 fm - SELD

Lóð nr. 5 (B1 og 2), stærð 10.488 fm - byggingamagn að 524 fm - verð: 11,400.000 kr.

Lóð nr. 6 B2, stærð 11.563 fm - byggingamagn að 578 fm - verð: 12.500.000 kr.

Lóð nr. 7 (B1 og 2), stærð 11.029 fm - byggingamagn að 551 fm - verð: 11.900.000 kr.

Lóð nr. 8 B2, stærð 11.448 fm - byggingamagn að 572 fm - verð: 12.500.000 kr.

Lóð nr. 9 (B1 og 2), stærð 9.684 fm - byggingamagn að 484 fm - verð: 9.900.000 kr.

Lóð nr. 10 B2, stærð 9.930 fm - byggingamagn að 497 fm - verð: 10.400.000 kr.

Lóð nr. 11 (B1 og 2), stærð 8.939 fm - byggingamagn að 447 fm - verð: 9.500.000 kr.

Lóð nr. 12 B2, stærð 9.499 fm - byggingamagn að 475 fm - verð: SELD

Lóð nr. 13 (B1 og 2), stærð 9.218 fm - byggingamagn að 461 fm - verð: 9.500.000 kr.

Lóð nr. 14 B2, stærð 8.199 fm - byggingamagn að 410 fm - verð: 8.900.000 kr.

Lóð nr. 15 (B1 og 2), stærð 12.815 fm - byggingamagn að 641 fm - verð: 13.900.000 kr.

Lóð nr. 16 B2, stærð 7.499 fm - byggingamagn að 375 fm - verð: 9.500.000 kr. SELD

Lóð nr. 17 (B1 og 2), stærð 21.938 fm - byggingamagn að 1097 fm - verð: 19.900.000 kr.

Hægt er að gera tilboð í fleiri en eina lóð

Það er draumur margra að búa utan þéttbýlis til að hafa meira rými í kringum sig, næði og nálægð við náttúru og fjölbreytta atvinnu, skipulagssvæðið er staðsett suðaustan við Selfoss, milli Gaulverjabæjarvegar og íbúðarbyggðar í Rima.

Íbúðahús geta verið á 1-2 hæðum, hámarksmænishæð allt að 7 metrar.

Byggingar verða tengdar dreifikerfi RARIK, vatnsveitu Flóahrepps sem og ljósleiðarakerfi.  Hver lóð er með hreinsivirki (rotþró).

Seljandi skal leggja veg að lóðamörkum á sinn kostnað og skal þeirri framkvæmd lokið fyrir undirritun afsals.

Að auki leggur seljandi kalt vatn, rafmagn og ljósleiðara að lóðamörkum.

Nánari upplýsingar veitir Elka í síma 863-8813 // netfang: elka@fstorg.is

Kort af Súlur 9

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður við sambærilegar eignir
Sjá verðmat og greiningu
Mynd 1Mynd 2Mynd 3Mynd 4Mynd 5Mynd 6Mynd 7Mynd 8Mynd 9Mynd 10Mynd 11Mynd 12Mynd 13Mynd 14Mynd 15