HÚSASJÁ

Smiðjuvellir 124

02-0104 · 230 Reykjanesbæ

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
3 myndir

43 m²

Stærð

2025

Byggingarár

10130 m²

Lóð

Sérinngangur

Garður

Svalir



173 dagar á sölu

sell

21.900.000 kr

510.490 kr/m²

eignasala.is kynnir eignina Smiðjuvellir 124, 230 Reykjanesbær, nánar tiltekið eign merkt 01-04, fastanúmer 253-6118 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi.

Eignin Smiðjuvellir 124 er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign 253-6118, birt stærð 42.9 fm.

Nánari lýsing

Á lóðinni eru fjórir matshlutar, hver með mismunandi fjölda geymslubilja.

Stærð hvers bils í matshlutum 01 og 02 er um 43 m².

Byggingarnar eru reist á staðsteyptum sökkli, með límtrésburðarvirki sem stendur á staðsteyptum undirstöðum.

Ytra byrði húsanna er klætt dökkgráum yleiningum með steinullarkjarna.

Hver matshluti er með einkennislit í flassningum; í þessum matshluta er liturinn blár.

Húsfélag hefur verið stofnað og annast það rekstur sameiginlegrar lóðar, öryggiskerfis og viðhald sameigna.

Burðarvirki

Sökklar og botnplata: Járnbent steinsteypa.

Útveggir: Límtrésburðarvirki þar sem við á. Yleiningar með steinullarkjarna, gerð ST 105. Dökkgráar að utan og hvítar að innan.

Þakvirki: Límtrésburðarvirki þar sem við á. Yleiningar með steinullarkjarna, gerð ST 175, með trapísulaga þakklæðningu. Dökkgráar að utan og hvítar að innan.

Frágangur utanhúss

Útveggir: Yleiningar með steinullarkjarna (ST 105), dökkgráar að utan, hvítar að innan.

Allar áfellur eru með innbrenndum lit, og hver matshluti hefur sinn einkennislit.

Þak: Yleiningar með steinullarkjarna (ST 175), trapísulaga þakklæðning, dökkgrá að utan, hvít að innan.

Raflagnir: Utanhússlýsing er fullfrágengin með LED-ljósum, stýrt með sólúri í aðaltöflu.

Lagnir:

Inntök og mælagrindur eru sameiginleg í sér rýmum fyrir hvern matshluta.

Aðskilin inntaksrými fyrir rafmagn og heitt/kalt neysluvatn.

Blinduð tengi fyrir neysluvatn í hverju bili.

Upphitun með hitaveituofnum, sameiginleg hitaveita fyrir hvern matshluta.

Niðurfall í gólfum allra bilja.

Varmaskiptir við inntak heita vatnsins.

Lagnir afhentar tilbúnar fyrir tengingu salernisaðstöðu.

Gluggar og útihurðir: Álgluggar og hurðir með K-gleri, litur dökkgrár.

Iðnaðarhurðir: 3,1 m breiðar x 3,0 m háar, án mótors, litur dökkgrár.

Frágangur innanhúss

Gólf: Slípuð, járnbent og einangruð steinsteypa.

Veggir: Yleiningar með steinullarfyllingu, hvítar að lit.

Raflagnir:

Greinatafla við gönguhurð.

Vinnuljós og rofi í hverju bili.

Loftræstingu má virkja með ljósarofa.

Tvöfaldur tengill í töflu og þriggja fasa tengill neðan hennar.

Útiljós fyrir ofan gönguhurð.

Lagnir:

Blinduð tengi fyrir neysluvatn í hverju bili, upphituð með hitaveituofnum.

Niðurfall í gólfi við innkeyrsluhurð.

Sameiginleg hitaveita fyrir öll rými.

Húsið hitað með hefðbundnu ofnakerfi.

Varmaskiptir við inntak heita vatnsins.

Lagnir afhentar tilbúnar fyrir salernisaðstöðu.

Frágangur lóðar

Lóð:

Bílastæði fullfrágengin með malbikslögn.

Sorptunnugerði innan lóðar.

Lóð afgirt með galvaniseraðri öryggisgirðingu með innbrenndum lit.

Fjarstýrt innkeyrsluhlið sem hindrar aðgang óviðkomandi.

Þrjú læsanleg gönguhlið á girðingu.

Myndavélakerfi rekið af húsfélagi, í sameign allra eigenda á svæðinu.

Frekari upplýsingar veitir skrifstofa Eignasölu á Hafnargötu 90a.

Sími: 420 6070

Netfang: julli@eignasala.is og joi@eignasala.is

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:

1.    Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af heildarfasteignamati fyrir einstaklinga (0,4% ef um er að ræða fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.

2.    Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.

3.    Lántökugjald lánastofnunar – mismunandi á milli lánastofnana. Nánari upplýsingar á heimasíðum lánastofnana.

4.    Umsýslugjald til fasteignasölu, kr. 43.400 með vsk.

Kort af Smiðjuvellir 124

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður við sambærilegar eignir
Sjá verðmat og greiningu
Mynd 1Mynd 2Mynd 3