HÚSASJÁ

Sólbakki 4

Lóð · 816 Ölfusi

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
10 myndir

13469 m²

Lóð

Geymsla



27 dagar á sölu

sell

32.900.000 kr

Fasteignasalan Garður

Sólbakki 4 sem staðsett er á fallegum stað við Hvammsveg í Ölfusi við eystri hluta Ingólfsfjalls. Sólbakki 4 er 13.469 fm en um er að ræða eignarlóð.   Lóðin er staðsett mitt á milli Selfoss og Hveragerðis og því aðeins um 30 mínutna akstri frá Reykjavík.

Sólbakki 4:

B8 - Heimilt að byggja skemmu allt að 400 m2. Mænishæð má var allt

að 7,5 m. Mænisstefna er frjáls.

B9 - Heimilt að byggja gestahús, allt að 80 m2. Mænisstefna er frjáls.

B10 - Heimilt að byggja allt að 440 m2 íbúðarhús og bílageymslu á

tveimur hæðum. Mænishæð má vera allt að 7,5 m. Mænisstefna er

frjáls.

B11 - Heimilt er að byggja allt að 1.100 m2 geymslu/hlöðu/reiðhöll/

húsnæði fyrir landbúnaðarstarfsemi. Mænishæð má vera allt að 7,5 m.

Mænisstefna er frjáls.

Búið er að leggja kalt vatn og rafmagn að lóðarmörkum. Heitavatnið ætti að koma í vor að sögn Veitna.

Samkvæmt deiluskipulagi er óheimilt að láta lausamuni standa til langframa (meira en 2 mánuði) innan lóðar, s.s. gáma, bíla, báta, stöðuhýsi, vélahluti eða annað álíka.  Ekki eru gerðar sérstakar kröfur um form og útlit bygginga umfram gæðakröfur og þakgerð er frjáls.  Heitt og kalt vatn ásamt rafmagni og ljósleiðara er við Hvammsveg.

Spennandi kostur fyrir þá sem þurfa mikið pláss og vilja byggja einbýlishús ásamt útihúsum í fallegri og rólegri sveit skammt frá öflugum þéttbýliskjörnum og aðeins í um 30mín fjarlægð frá borginni.

Um skoðunarskyldu:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum.Fasteignasalan Garður bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi er 0,8% af heildarfasteignamati hjá einstaklingum. Sé um fyrstu kaup að ræða er stimpilgjald af kaupsamningi 0,4% af heildarfasteignamati.

2. Stimpilgjald af kaupsamningi - 1,6% af heildarfasteignamati hjá lögaðilum.

3. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, afsali, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.

4. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.

5. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

www.fastgardur.is |  Bæjarhraun 12 | 220 Hafnafjörður | Fasteignasalan Garður

Kort af Sólbakki 4

Fáðu nýja innsýn á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og samanburð