HÚSASJÁ

Móstekkur 86

01-0101 · 800 Selfossi

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
13 myndir

411 m²

Stærð

5

Herbergi

4

Svefnherbergi

2

Baðherbergi

2026

Byggingarár

1198 m²

Lóð

Sérinngangur

Garður

Bílskúr

Þvottahús



12 dagar á sölu

sell

84.900.000 kr

412.938 kr/m²

Steindór Guðmundsson löggiltur fasteignasali 862 1996 og HÚS fasteignasala kynna í einkasölu parhúsið Móstekk 86, Selfossi.  Steinsteypt vandað parhús. Fjögur svefnherbergi, tvö baðherbergi og sjónvarpshol.  Heildarstærð er 205,6 fm en þar af er sambyggður bílskúr 43,2 fm.

Húsið er staðsteinsteypt. Húsið verður steinað með ljósri steiningu. Gluggar, hurðir og þakkantur í dökkum lit. Ál/tré gluggar.  Litað járn á þaki. Húsið er í byggingu og afhendist á byggingarstigi B2. Fullbúið að utan og að innan er húsið full einangrað, rakasperra frágengin. Veggir að innanverðu eru múraðir og tilbúnir til fínspörslunar. Gólfhitalagnir ísteyptar. Mögulegt er að fá húsið lengra komið eftir nánara samkomulagi.

Innra skipulag skv. teikningu:

Forstofa.

Mjög rúmgóð stofa og eldhús.

Alls eru fjögur svefnherbergi. Innaf hjónaherbergi er sérbaðherbergi.

Sjónvarpshol.

Þvottahús. Innangengt er í bílskúr úr þvottahúsi.

Bílskúr er rúmgóður.

Lóð grófjöfnuð.  Möl í plani.

Hafðu samband við Steindór Guðmundsson löggiltur fasteignasali s. 862 1996  steindor@husfasteign.is  varðandi skilalýsingu og nánari upplýsingar

,,Okkar fagmennska eru þínir hagsmunir"

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum að vegna kaupanna.

1. Stimpilgjöld af kaupsamningi - 0,8 % af heildarfasteignamati.   (0,4% fyrstu kaup, 1,6% lögaðilar)

2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. kr. 3.800 af hverju skjali.

3. Lántökugjald lánastofnunnar, breytilegt. Nánari upplýsingar t.d. á heimasíðum lánastofnanna.

4. Umsýslugjald til fasteignasölu sbr. kauptilboð.

5. Skipulagsgjald 0,3% af brunabótamati.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum að vegna kaupanna.

Kort af Móstekkur 86

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og greiningu