Stefnisvogur 40
01-0312 · 104 Reykjavík



181 dagar á sölu
109.900.000 kr
881.315 kr/m²
Magnús Már Lúðvíkson og Guðlaugur J. Guðlaugsson löggiltir fasteignasalar hjá RE/MAX fasteignasölu kynna í einkasölu:
Vel skipulagðar og vandaðar íbúðir á flottum stað í Vogabyggð. Stefnisvogur 38-46, 104 Reykjavík.
Íbúðir skilast fullbúnar með gólfefnum og með Quartz borðplötum, bæði inn í eldhúsi og inn á baðherbergi. Vönduð heimilistæki, innfeld tæki, ísskápur, frystir og uppþvottavél.
Gólfhiti er í öllum íbúðum með sér dreifikistu fyrir hverja íbúð. Sjálfstæð loftræsti samstaða er fyrir hverja íbúð með inn- og útkasti á lofti.
Byggingaraðili er Reir verk ehf.
Fjármögnunarmöguleiki í gegnum REIR20
XXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXX
Nánar um eign: Íbúð nr. 312, Stefnisvogur: 40
Eignin er fjögurra herbergja íbúð á 3. hæð, birt stærð 114,2 fm. Eigninni tilheyrir geymsla í kjallara, birt stærð 10,5 fm.
Birt heildarstærð séreignar er 124,7 fm.
Íbúðinni fylgir sér stæði í bílakjallara.
Bókið skoðun hjá:
Gulla í síma 661-6056 eða gulli@remax.is
Magga í síma 699-2010 eða maggi@remax.is
Sjá má skilalýsingu, verðlista og nánari upplýsingar um íbúðirnar inn á heimasíðu verkefnisins: XXX
Upplýsingar um Stefnisvog 38-46
Húsið skilast fullbúið að utan. Húsið er steinsteypt, einangrað og klædd að utan með áli. Þak er viðsnúið, steypt með halla, tvöfalt lag er af eldsoðnum tjörupappa, einangrað ofan á plötu og ferging. Yfirborð svala er klætt með timbri eða hellulagt.
Gluggakerfi íbúða er frá BYKO og er ál-tré. Inngangshurðir í stigaganga eru álhurðir. Sameiginleg lóð verður frágengin skv. teikningum lóðahönnuða. Snjóbræðsla er í helstu göngustígum á lóð.
Húsið er fjögurra til fimm hæða lyftu fjölbýlishús með samtals 82 íbúðum í þrem stigahúsum og einni íbúð með sérinngangi. Bílageymsla er með tengimöguleikum fyrir hleðslu rafbíla. Öllum íbúðum fylgir geymsla auk afnotaréttar af hjóla- og vagnageymslu. Snjóbræðsla er lögð í helstu gönguleiðum utan við hús.
Að verkinu standa eftirtaldir aðilar:
Byggingaraðili hússins er Reir verk ehf.
Arkitekt og aðalhönnuður er Arkþing Nordic ehf.
Verkfræðihönnun, Vektor Verkfræðistofa ehf. sá um hönnun á burðarvirki og lögnum.
Mannvit sá um hljóðhönnun.
Brunahönnun sá um brunahönnun.
Raflagnahönnun, Raflax sá um raflagna- og lýsingahönnun.
Nánari upplýsingar veita:
Guðlaugur J. Guðlaugsson/Gulli löggiltur fasteignasali í síma 661-6056 / gulli@remax.is
Magnús Már Lúðvíksson löggiltur fasteignasali í síma 862-2010 / maggi@remax.is
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi er almennt 0,8%, en 0,4% ef um fyrstu kaup er að ræða og 1.6% ef um lögaðila er að ræða. Miðast af heildar fasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - Nánari upplýsingar á heimasíðum lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900.-

Fáðu nýja innsýn á Húsasjá
- Verðmat fasteignar
- Sölusaga og verðþróun
- Samanburður sambærilegra eigna





















