Fífuland 3
01-0102 · 800 Selfossi



10 dagar á sölu
67.900.000 kr
705.088 kr/m²
Hafsteinn Þorvaldsson fasteignasali ásamt HÚS fasteignasölu kynna í sölu spánýtt, snyrtilegt og vel skipulagt raðhús við Fífuland 3 á Selfossi. Húsið selst fullbúið og tilbúið til afhendingar samkvæmt skilalýsingu. Húsið er 96,3 fm, 4ra herbergja, byggt úr timbri, klætt að utan með ál utanhússklæðningu. Fullkomið loftskiptikerfi.
Nánari lýsing:
Forstofa með fínum fataskáp. Þrjú svefnherbergi með parketi á gólfi, öll með fataskápum. Rúmgott baðherbergi flísalagt í hólf og gólf, handklæðaofn, innrétting, spegill, skápur og "walk inn" sturta með glervegg og innbyggðum blöndunartækjum. Flísalagt þvottahús með innréttingu sem gerir ráð fyrir þvottavél/þurrkara í vinnuhæð. Vönduð eldhúsinnrétting, ljúflokur á öllum skúffum og skápum. Heimilistæki, ísskápur/frystir og uppþvottavél innbyggð í innréttingu. Stofa, borðstofa og eldhús eru í opnu og björtu rými þar sem útgengt er út á lóð.
Svæðaskiptur gólfhiti með digital stýringum, harðparket frá Birgisson og flísar á votrýmum. Gluggar eru vandaðir ál/tré. Forritanleg ljósastýring/rofar. Varmaskiptir á neysluvatni. Drenmöl í bílaplani, steypt ruslatunnuskýli og lóð þökulögð.
Nýtt raðhús til afhendingar við kaupsamning. Húsið er á lokametrunum varðandi innanhúsfrágang.
Nánari upplýsingar veitir Hafsteinn Þorvaldsson viðskiptafræðingur/löggiltur fasteigna,- og skipasali s. 891-8891, hafsteinn@husfasteign.is
"Okkar fagmennska eru þínir hagsmunir"
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum að vegna kaupanna.
1. Stimpilgjöld af kaupsamningi - 0,8 % af heildarfasteignamati. (0,4% fyrstu kaup, 1,6% lögaðilar)
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. kr. 2700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunnar, almennt 0.5 - 1.5 % af höfuðstól skuldabréfs, Nánari upplýsingar t.d. á heimasíðum lánastofnanna.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu sbr. Kauptilboð

Dýpri greining á Húsasjá
- Verðmat fasteignar
- Sölusaga og verðþróun
- Samanburður við sambærilegar eignir














