HÚSASJÁ

Hrafnaborg

01-0201 · 190 Vogum

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
22 myndir

130 m²

Stærð

4

Herbergi

3

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

2025

Byggingarár

1678 m²

Lóð

Sérinngangur

Garður

Geymsla

Þvottahús



239 dagar á sölu

sell

75.900.000 kr

586.100 kr/m²

LIND fasteignasala kynnir nýjar og glæsilegar íbúðir við Hrafnaborg 1, Vogum.

Bókið skoðun í 847-8584 / tara@fastlind.is

Um er að ræða átta fjögurra herbergja íbúðir í tveggja hæða fjöleignarhúsi með opnu stigahúsi. Fjórar íbúðir eru á hvorri hæð, allar með sérinngangi. Íbúðir á neðri hæð eru með rúmgóðum afgirtum sérafnotareiti og þær efri með svölum með glerhandriði, sem allar snúa til suðvesturs. Tvö merkt bílastæði eru fyrir hverja eign.

Einstaklega bjartar og rúmgóðar íbúðir með opnu alrými og aukinni lofthæð. Innfelld lýsing í loftum, þvottahús og geymsla innan íbúða. Íbúðirnar eru allar með sérsmíðuðum innréttingum og skilast fullbúnar með gólfefnum, þ.e. ljósgráu harðparketi í alrýmum og herbergjum og flísum í votrýmum. Innfelldar innihurðir eru í öllum rýmum nema votrýmum.

Burðarkerfi hússins er staðsteypt að öllu leyti. Húsið er klætt að utan með flísum. Útveggir eru einangraðir að utan. Milliveggir eru úr léttstáli og gipsklæddir.

Nýtt fjölskylduvænt hverfi við sjávarsíðuna og falleg náttúra allt um kring. Í nágrenni eru leik- og grunnskólar og fyrirhuguð er bygging nýrra skólamannvirkja samhliða stækkun hverfisins.

Nánari lýsing: Íbúðirnar skiptast í forstofu, opið eldhús og borðstofu/stofu, þrjú svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús og geymslu.

Eldhús: Sérsmíðaðar innréttingar og vegleg eyja með grárri borðplötu. Íbúðunum fylgja vönduð eldhústæki af gerðinni AEG. Íbúðum er skilað með spanhelluborði ásamt hangandi eyjuháfi frá Airforce, blástursofn með burstaðri stáláferð, innbyggður kæli-/frystiskápur og innbyggð uppþvottavél. Eldhústæki eru frá Ormsson.

Baðherbergi: Rúmgóð, svartar 120x60 flísar í marmaraútliti, upphengt salerni, dökk viðarlituð innrétting með hvítri borðplötu, sturta með gleri, speglaskápur.

Þvottahús: Flísar á gólfi, vegghengdur vaskur.

Íbúð 202: 107,1 fm fjögurra herbergja íbúð á 2. hæð með svölum.

Allir kaupendur Lindar fasteignasölu fá Vildarkort Lindar sem veitir 30% afslátt hjá eftirfarandi fyrirtækjum:

Parki (gólfefni), Z brautir og gluggatjöld, Húsgagnahöllin, Betra bak, Dorma, Flügger litir, S. Helgason steinsmiðja, Vídd, Húsasmiðjan og Vodafone.

Ath: Ljósmyndir í auglýsingu eru af sýningaríbúð og þurfa því ekki að endurspegla skipulag þessarar íbúðar.

Allar upplýsingar um eignina veitir Tara Sif Birgisdóttir löggiltur fasteignasali í síma 847 8584 / tara@fastlind.is

​​​​​​

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila

Fyrstu kaup - 0,4% af heildarfasteignamati

2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.500 af hverju skjali.

3. Lántökugjald lánastofnunar

4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.

Kaupandi greiðir einnig skipulagsgjald (nú 0,3% af endanlegu brunabótamati) þegar það verður innheimt.

Kort af Hrafnaborg

Fáðu nýja innsýn á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og samanburð