HÚSASJÁ

Hrafnaborg 1B

01-0102 · 190 Vogum

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
43 myndir

107 m²

Stærð

4

Herbergi

3

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

2025

Byggingarár

1678 m²

Lóð

Sérinngangur

Garður

Geymsla

Þvottahús



235 dagar á sölu

sell

63.900.000 kr

596.639 kr/m²

*** MÖGULEIKI Á HLUTDEILDALÁNI ***

TORG FASTEIGNASALA KYNNIR Í SÖLU: Nýbygging í Hrafnaborg1, Vogum. Eignin er á neðri hæð og er fullbúin, fjögurra herbergja og 107,1 fm. Íbúðirnar skilast með gólfefnum, háfi yfir eldavél, ísskáp og uppþvottavél. Sér inngangur og sérafnotareitur til suðvesturs. Geymsla og sér þvottahús innan íbúðar.  Allar nánari upplýsingar veitir Margrét Rós lgf. í s. 856-5858 eða margret@fstorg.is.  SÆKJA SÖLUYFIRLIT HÉR

BÓKIÐ SKOÐUN:

MARGRÉT SÍMI 856 5858

MATTHILDUR LGFS SÍMI 690 4966

AÐALSTEINN SÍMI 773 3532

Um verkefnið:

Um er að ræða hús á tveim hæðum með 8 íbúðum og er húsið í nýju, fjölskylduvænu íbúðahverfi í Grænuborg, Vogum. Vel skipulagðar, fjögurra herbergja íbúðir. Íbúðirnar afhendast allar fullbúnar að innan sem utan, með gólfefnum og eru allar með sér inngangi í opnu stigahúsi. Svalir og sólpallar eru á móti suðvestri.

Eignin skilast fullbúin skv. skilalýsingu seljanda:

Íbúðin skilast fullbúin með gólfefnum, parket á stofu, eldhúsi og herbergjum og flísar á votrýmum. Sérsmíðaðar innréttingar í eldhúsi. Tæki í eldhúsi, ísskápur, uppþvottavél, helluborð, bakaraofn og háfur frá AEG eða sambærilegt. Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf með með dökkum og ljósum flísum með marmaraáferð. Öll salerni eru upphengd og innbyggð í vegg. Á baði er handklæðaofn. Sturta er í öllum íbúðum og sturtubotn flísalagður. Húsið er staðsteypt. Þakvirkið er einangrað með sniðskorinni plasteinangrum ofan á 0,2 mm þolplast og rykvarið að ofan með SIKA PLAN pvc þakdúk, dybbluðum í stein og flipafestum. Gluggar eru ál/trégluggar og glerjaðir með tvöföldu K-gleri. Fyrir nánari lýsingu, sjá skilalýsingu byggingaraðila.

Kaupandi greiðir skipulagsgjald af eigninni sem nemur 0,3% af brunabótamati og leggst á eftir að endanlegt brunabótamat hefur fengist á eignina.

Grænabyggð – Framtíðarhverfi í einstöku umhverfi

Grænabyggð er vel staðsett nýtt hverfi við sjávarsíðuna, hannað með fjölskylduvænt umhverfi í huga. Í nágrenni eru leik- og grunnskólar, og fyrirhuguð er bygging nýrra skólamannvirkja samhliða stækkun hverfisins. Gert er ráð fyrir að Grænabyggð verði hverfi fyrir um 1.500 íbúa, þar sem ríflega 800 íbúðir verða byggðar á næstu tíu árum. Svæðið þróast í hægu og öruggu skrefum, með blandaða byggð þar sem áhersla er lögð á lítil sérbýli. Uppbygging hverfisins er í samræmi við samkomulag Grænubyggðar ehf. og Sveitarfélagsins Voga, sem tryggir skipulagða stækkun með nauðsynlegri innviðauppbyggingu.

Sjá nánar um Grænubyggð hér

Forsendur söluyfirlits:

Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.Þinglýsingargjald hvers skjals er kr. 2.700,- .Lántökugjald lánastofnunar skv. gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.

TORG fasteignasala bendir fasteignakaupendum á ríka skoðunarskyldu kaupenda sem kveðið er á í lögum um fasteignakaup nr.40/2002. Skorað er á kaupendur að kynna sér vandlega ástand fasteigna og nýta til þess aðstoð sérfræðinga.  Sömuleiðis er bent á upplýsingaskyldu seljanda samanber 26.gr. Laga nr.40/2002 um fasteignakaup og 25.gr. laga nr.26/1994 um fjöleignarhús. Seljanda er bent á að kynna sér tilvitnaðar lagagreinar.

eignarhús.

Kort af Hrafnaborg 1B

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður við sambærilegar eignir
Sjá verðmat og greiningu
Mynd 1Mynd 2Mynd 3Mynd 4Mynd 5Mynd 6Mynd 7Mynd 8Mynd 9Mynd 10Mynd 11Mynd 12Mynd 13Mynd 14Mynd 15Mynd 16Mynd 17Mynd 18Mynd 19Mynd 20Mynd 21Mynd 22Mynd 23Mynd 24Mynd 25Mynd 26Mynd 27Mynd 28Mynd 29Mynd 30Mynd 31Mynd 32Mynd 33Mynd 34Mynd 35Mynd 36Mynd 37Mynd 38Mynd 39Mynd 40Mynd 41Mynd 42Mynd 43