HÚSASJÁ

Tryggvagata 10A

01-0403 · 800 Selfossi

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
31 myndir

82 m²

Stærð

2

Herbergi

1

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

2025

Byggingarár

4799 m²

Lóð

Garður

Bílskúr

Geymsla

Þvottahús



205 dagar á sölu

sell

72.900.000 kr

884.709 kr/m²

ÁRBORGIR FASTEIGNASALA S 482 4800 kynnir í sölu:

Glæsileg 82.4 m2 íbúð merkt 403 á efstu hæð í nýju fjölbýli miðsvæðis á Selfossi.

Íbúðin skiptist í forstofu, baðherbergi/þvottahús, 1 svefnherbergi, stofu, eldhús og borðstofu í opnu rými. Útgengt er á svalir úr stofu. Íbúðinni fylgir 9.2 m2 geymsla og sérmerkt bílastæði í kjallara.

Tryggvagata 10-12 samastendur af fjórum svans-vottuðum fjöleignarhúsum með 78 íbúðum ásamt samtengdum bílakjallara.

Húsið er staðsteypt, einangrað og klætt að utan með swisspearl steinklæðningu í bland við standandi bambusklæðningu. Þök eru klædd með soðnum tjörupappa og eru gluggar og hurðir ál-tré.

Íbúðirnar eru í stærðum frá 66.8 m2 og upp í 165.9 m2. Verð eru frá 59.900.000,-

Íbúðunum verður skilað fullbúnum án gólfefna. Vandaðar og sérsmíðaðar innréttingar frá Selós eru í öllum íbúðum og eru heimilstæki flest frá AEG. Loftskiptikerfi er í öllum íbúðum.

Í bílakjallara eru samtals 79 bílastæði ásamt vagna- og hjólageymslu. Geymslur fyrir allar íbúir eru staðsettar í kjallara.

Heildarstærð lóðar er 4798,5 m2 og er sameginleg og mjög snyrtileg. Lóðin verður hellulögð og þökulögð. Við íbúðir fyrstu hæðar verða helulagðar sérafnotareitir.

Íbúðirnar eru á góðum stað fyrir fólk sem vill vera í nánd við miðbæ Selfoss þar sem örstutt er í sundlaug, líkamsrækt, verslanir og aðra þjónustu.

Skilalýsingu vegna íbúðarinnar er hægt að nálgast á Tryggvagata10.is

Nánari upplýsingar og bókið skoðun á skrifstofu Árborga.

arborgir@arborgir.is eða í síma 482-4800.

Sýnum samdægurs!

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er: 0,8% af fasteignamati fyrir einstaklinga. 0,4% fyrir fyrstu kaupendur og 1,6% fyrir lögaðila.

2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. kr. 2.700,- hvert skjal.

3. Lántökugjald lánastofnunar. Skv. gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.

4. Umsýslugjald kaupanda skv. gjaldskrá.

5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.

Kort af Tryggvagata 10A

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og greiningu