HÚSASJÁ

Fossvogsvegur 10

01-0204 · 108 Reykjavík

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
23 myndir

234 m²

Stærð

5

Herbergi

3

Svefnherbergi

2

Baðherbergi

2025

Byggingarár

4279 m²

Lóð

Sérinngangur

Garður

Svalir

Lyfta

Bílskúr

Geymsla

Þvottahús

Heitur pottur



149 dagar á sölu

sell

335.000.000 kr

1.434.690 kr/m²

Sigríður Rut, lgfs. gsm 699-4610 og Fasteignasalan TORG kynna:  Sala er hafin á stórglæsilegu tengihúsi við Fossvogsveg 8-36 í Reykjavík. Húsið er staðsett í Fossvognum nánar tiltekið fyrir neðan Borgarspítalann á einstaklega veðursælum og fallegum stað.

Húsið er 3ja hæða. Fjórar sérhæðir eru á efstu hæðinni með stórum þaksvölum og sérlyftum. Ellefu tveggja hæða íbúðir (hálfgerð raðhús) eru á miðhæð og jarðhæð. Bílageymsla er einnig á jarðhæð en innangegnt er í íbúðirnar frá bílageymslu (alla nema eina íbúð). Samtals eru fimmtán íbúðir í húsinu. Öllum íbúðum fylgja stæði í bílageymslu en einnig eru sameiginleg bílastæði á lóð. Íbúðirnar verða búnar vönduðum innréttingum frá Brúnás og eldhústækjum frá Ormsson. Borðplötur verða úr Virgo Quartz steini frá S.Helgasyni. Á baðherbergjum eru gólf flísalögð og veggir flísalagðir upp í loft. Þau verða búin vönduðum hreinlætistækjum, hitastýrðum blöndunartækjum, upphengdum salernum og sturtum með glerhlið. Innréttingar og innihurðir eru vandaðar, sjá nánar í skilalýsingu. Efri hæðirnar eru með stórum þaksvölum en hinar íbúðirnar með góðum svölum á miðhæðinni og timburverönd á jarðhæðinni.

Sameign verður frágengin utan sem innan. Gangstéttar við húsið verða með snjóbræðslukerfi skv teikningum.

Áætlað er að íbúðir við Fossvogsveg verði afhentar í febrúar 2026.  Traustur byggingaraðili Byggingarfélag Gylfa og Gunnars hf.  Sjá nánar inn á meðfylgjandi  söluvef  Heimasíða

Glæsileg og vel skipulögð 5 herbergja penthouse sérhæð, merkt 0204 í fallegu nýju álklæddu lyftuhúsi.

Birt stærð íbúðar er skráð 233,5 fm. að stærð.

Sérlyfta fylgir þessari íbúð sem gengur frá neðstu hæð beint upp í íbúðina.

Stórar þaksvalir.

Stæði í lokaðri bílageymslu merkt B- 15 fylgir

Allar nánari upplýsingar veitir Sigríður Rut lgfs.  í gsm. 699-4610 eða siggarut@fstorg.is og Helgi lgfs.  í gsm 780-2700 eða helgi@fstorg.is

Nánari lýsing:

Gengið er  inn á miðhæð inn í sérstigagang, þar sem er sérlyfta.

Komið er inn í hol með góðum fataskáp.

Eldhús með glæsilegri innréttingu frá Brúnás, borðplötum úr Virgo Quarts-steini og vönduðum eldhústækjum frá Ormsson.

Stofur með útgengi út á stórar þaksvalir.

Hjónasvíta með fataherbergi og sérbaðherbergi með flísum á gólfi og veggjum, stórri sturtu með glerþili, innbyggðum vönduðum blöndunartækjum frá Tengi, og fallegri innréttingu frá Brúnás.

Þvottahús með flísum á gólfi og innréttingu.

Tvö góð svefnherbergi með fataskáp.

Baðherbergi með flísum á gólfi og veggjum, stórri sturtu með glerþili, innbyggðum vönduðum blöndunartækjum frá Tengi, og fallegri innréttingu frá Brúnás.

Stigagangurinn (og lyftan) gengur frá íbúðinni og alveg niður á neðstu hæð þar sem er bílageymsla.

Sérgeymsla er við hlið stigagangs.

Stæði í bílageymslunni fylgir

Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla í kjallara.

Áætlað er að íbúðirnar verði afhentar í febrúar 2026.

Kostnaður kaupanda:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi er 0,8% af heildarfasteignamati, 1,6% fyrir lögaðila, en 0,4% við fyrstu kaup einstaklinga.

2. Þinglýsingargjald er 2700,- kr af hverju skjali.

3. Lántökugjald skv. verðskrá fjármálastofnunar.

4. Umsýsluþóknun skv. gjaldskrá fasteignasölu.

5. Kaupandi greiðir skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það verður lagt á

Kort af Fossvogsvegur 10

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður við sambærilegar eignir
Sjá verðmat og greiningu
Mynd 1Mynd 2Mynd 3Mynd 4Mynd 5Mynd 6Mynd 7Mynd 8Mynd 9Mynd 10Mynd 11Mynd 12Mynd 13Mynd 14Mynd 15Mynd 16Mynd 17Mynd 18Mynd 19Mynd 20Mynd 21Mynd 22Mynd 23