HÚSASJÁ

Fossvogsvegur 26

01-0202 · 108 Reykjavík

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
23 myndir

242 m²

Stærð

5

Herbergi

4

Svefnherbergi

2

Baðherbergi

2025

Byggingarár

4279 m²

Lóð

Sérinngangur

Garður

Svalir

Lyfta

Bílskúr

Geymsla

Þvottahús

Heitur pottur



152 dagar á sölu

sell

335.000.000 kr

1.384.298 kr/m²

Sigríður Rut, lgfs. gsm. 699-4610 og Fasteignasalan TORG kynna: Sala er hafin á stórglæsilegu tengihúsi við Fossvogsveg 8-36 í Reykjavík. Húsið er staðsett í Fossvognum nánar tiltekið fyrir neðan Borgarspítalann á einstaklega veðursælum og fallegum stað.

Húsið er 3ja hæða. Fjórar sérhæðir eru á efstu hæðinni með stórum þaksvölum og sérlyftum. Ellefu tveggja hæða íbúðir (hálfgerð raðhús) eru á miðhæð og jarðhæð. Bílageymsla er einnig á jarðhæð en innangegnt er í íbúðirnar frá bílageymslu (alla nema eina íbúð). Samtals eru fimmtán íbúðir í húsinu. Öllum íbúðum fylgja stæði í bílageymslu en einnig eru sameiginleg bílastæði á lóð. Íbúðirnar verða búnar vönduðum innréttingum frá Brúnás og eldhústækjum frá Ormsson. Borðplötur verða úr Virgo Quartz steini frá S.Helgasyni. Á baðherbergjum eru gólf flísalögð og veggir flísalagðir upp í loft. Þau verða búin vönduðum hreinlætistækjum, hitastýrðum blöndunartækjum, upphengdum salernum og sturtum með glerhlið. Innréttingar og innihurðir eru vandaðar, sjá nánar í skilalýsingu. Efri hæðirnar eru með stórum þaksvölum en hinar íbúðirnar með góðum svölum á miðhæðinni og timburverönd á jarðhæðinni.

Sameign verður frágengin utan sem innan. Gangstéttar við húsið verða með snjóbræðslukerfi skv teikningum.

Áætlað er að íbúðir við Fossvogsveg verði afhentar í febrúar 2026.  Traustur byggingaraðili Byggingarfélag Gylfa og Gunnars hf.  Sjá nánar inn á meðfylgjandi  söluvef  Heimasíða

Glæsileg og vel skipulögð 5 herbergja penthouse sérhæð, merkt 0202 í fallegu nýju álklæddu lyftuhúsi.

Birt stærð íbúðar er skráð 242 fm. að stærð.

Sérlyfta fylgir þessari íbúð sem gengur frá neðstu hæð beint upp í íbúðina.

Stórar þaksvalir.

Stæði í lokaðri bílageymslu fylgja.

Allar nánari upplýsingar veitir Sigríður Rut lgfs.  í gsm. 699-4610 eða siggarut@fstorg.is og Helgi lgfs.  í gsm 780-2700 eða helgi@fstorg.is

Nánari lýsing:

Gengið er  inn á miðhæð inn í sérstigagang, þar sem er sérlyfta.

Komið er inn í hol með góðum fataskáp.

Eldhús með glæsilegri innréttingu frá Brúnás, borðplötum úr Virgo Quarts-steini og vönduðum eldhústækjum frá Ormsson.

Stofur með útgengi út á stórar þaksvalir.

Hjónasvíta með fataherbergi og sérbaðherbergi með flísum á gólfi og veggjum, stórri sturtu með glerþili, innbyggðum vönduðum blöndunartækjum frá Tengi, og fallegri innréttingu frá Brúnás.

Þvottahús með flísum á gólfi og innréttingu.

Tvö góð svefnherbergi með fataskáp.

Baðherbergi með flísum á gólfi og veggjum, stórri sturtu með glerþili, innbyggðum vönduðum blöndunartækjum frá Tengi, og fallegri innréttingu frá Brúnás.

Stigagangurinn (og lyftan) gengur frá íbúðinni og alveg niður á neðstu hæð þar sem er bílageymsla.

Sérgeymsla er við hlið stigagangs.

Stæði í bílageymslunni fylgir

Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla í kjallara.

Áætlað er að íbúðirnar verði afhentar í febrúar 2026.

Kostnaður kaupanda:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi er 0,8% af heildarfasteignamati, 1,6% fyrir lögaðila, en 0,4% við fyrstu kaup einstaklinga.

2. Þinglýsingargjald er 2700,- kr af hverju skjali.

3. Lántökugjald skv. verðskrá fjármálastofnunar.

4. Umsýsluþóknun skv. gjaldskrá fasteignasölu.

5. Kaupandi greiðir skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það verður lagt á

Kort af Fossvogsvegur 26

Fáðu nýja innsýn á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og samanburð