HÚSASJÁ

Vetrarbraut 4D

01-0313 · 210 Garðabæ

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
12 myndir

126 m²

Stærð

4

Herbergi

3

Svefnherbergi

2

Baðherbergi

2025

Byggingarár

4192 m²

Lóð

Garður

Svalir

Lyfta

Bílskúr

Geymsla

Þvottahús



272 dagar á sölu

sell

144.900.000 kr

1.147.268 kr/m²

Fasteignasalan TORG kynnir: Góð 4ra herbergja íbúð með tvennar svalir og tvö bílastæði i bílakjallara. Íbúð merkt:0313, sem skilast fullbúin án gólfefna. Íbúðin er alls 126,3fm að stærð á 3. hæð í góðu lyftuhúsi. Íbúðin sjálf er skráð 106,2fm og skiptist í anddyri, alrými með eldhúsi og stofu með útgengi út á svalir, 3 svefnherbergi, aðrar svalir út af gangi, baðherbergi, sér þvottahúsi og frístundarskúr í sameign merkt: 0109, skráður 20,1fm. ásamt tveimur bílstæðum í bílakjallara merkt: N01 og N02.   Allar nánari upplýsingar, teikningar, og skilalýsingu er hægt að nálgast með að hafa samband við Matthildi Sunnu, fasteignasali í GSM: 690-4966 eða matthildur@fstorg.is

Sjá nánari upplýsingar á heimasíðu verkefnisins HÉR

Sækja söluyfirlit HÉR

Almennar upplýsingar

Vetrarbraut 2 - 4 er nýtt fjölbýlishús í nýju og heillandi hverfi sem rís miðsvæðis á höfuðborgarsvæðinu í nánd við Vífilsstaði, golfvöll GKG, Heiðmörk og nýja íþróttaaðstöðu í Miðgarði, Garðabæ. Íbúðirnar eru einstaklega vel hannaðar, í svansvottunarferli, með gæði og þægindi í fyrirrúmi. Innréttingar eru vandaðar og allt efnisval smekklegt og tímalaust. Í hverri íbúð er loftskiptikerfi sem eykur loftgæði, stuðlar að heilnæmu innilofti og bætir líðan íbúa. Í bílakjallara fylgir öllum íbúðum eitt til tvö bílastæði og sumum þeirra fylgir einnig frístundaskúr eða bílskúr. Hverfið nýtur sterkra innviða Garðabæjar auk þess sem stutt er í marga af stærstu verslunarkjörnum höfuðborgarsvæðisins og fjölbreytta þjónustu. Góðar tengingar eru við stofnbrautir. Skipulag svæðisins hefur hlotið alþjóðlegu umhverfisvottunina BREEAM.

Tvö fjögurra hæða staðsteypt fjölbýlishús með inngarð. Samtals 72 íbúðir í 6 stigagöngum Tveggja hæða niðurgrafinn bílakjallari með geymslum, bílskúrum.  Samtals 115 bílastæði á lóð og í bílakjallara. Húsin eru í svansvottunarferli. Sjá nánar skilalýsingu*

Tvö fjögurra hæða staðsteypt fjölbýlishús með inngarð. Samtals 72 íbúðir í 6 stigagöngum Tveggja hæða niðurgrafinn bílakjallari með geymslum, bílskúrum.  Samtals 115 bílastæði á lóð og í bílakjallara. Húsin eru í svansvottunarferli.

Utanhússfrágangur

Klæðning: Flísar og álklæðning (báru og slétt), náttúrulegir jarðlitir.

Þak: Þakplötur eru steinsteyptar og vatnshalli formaður í steypu. Viðsnúið með gróðurþekju, þykk einangrun og drenlag.

Gluggar og hurðir: Ál/tré gluggar og hurðir, hvítir að innan og koxgráir að utan.

Lóð: Fullfrágengin skv. landslagsuppdráttum, snjóbræðsla á gönguleiðum, rafhleðslurör í jörð, 2 hleðslustöðvar á lóð.

Innanhússfrágangur (3. hæð)

Gólfefni: Baðherbergi og þvottahús flísalögð, annars afhent án gólfefna.

Loft: Spörtluð og máluð; dúkloft í sumum þvottahúsum.

Veggir: Léttir innveggir með steinull, rakavörn í votrýmum, allir veggir sandspartlaðir og málaðir.

Hurðir: Yfirfelldar, hvítar hurðir frá Parka.

Innréttingar: Frá VOKE-III, plastlagðar með kvarssteins borðplötum, svört handföng.

Flísar: 60x60 og 30x60 cm í litum Piemme Journey Sarek og Flute.

Hitakerfi: Hefðbundið ofnakerfi, gólfhiti og handklæðaofnar á baðherbergjum.

Loftskipti: Sér samstæða fyrir hverja íbúð.

Raflagnir: Ljósleiðari, myndavéladyrasími, hvítir rofar og tenglar.

Tæki og búnaður

Eldhústæki (flest frá Siemens): Helluborð, ofn, ísskápur, uppþvottavél.

Háfar: Falmec Sophie hangandi eða Bosch innbyggðir.

Sameignir

Stigagangar: Málaðir veggir, teppalögð gólf, flísar í anddyri, burstuð stállyfta.

Geymslur: Slípaðir og málaðir veggir/gólf með slitþolinni málningu.

Hjólageymsla: Í hvoru húsi.

Djúpgámar: 6 talsins, rusl flokkað skv. reglum Garðabæjar.

Hönnun og framkvæmdir

Arkitektar: Arkís arkitektar.

Verkfræðihönnun: Þráinn & Benedikt, LX teiknistofa.

Framkvæmdaraðili: Framkvæmdarfélagið Arnarhvoll.

Kort af Vetrarbraut 4D

Fáðu nýja innsýn á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og samanburð