HÚSASJÁ

Vetrarbraut 2C

01-0311 · 210 Garðabæ

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
30 myndir

61 m²

Stærð

2

Herbergi

1

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

2025

Byggingarár

4192 m²

Lóð

Garður

Lyfta

Bílskúr

Geymsla

Þvottahús



268 dagar á sölu

sell

69.900.000 kr

1.149.671 kr/m²

Betri Stofan Fasteignasala kynnir: Glæsilegar nýjar íbúðir við Vetrarbraut 2-4, í Vetrarmýri, nýju og heillandi hverfi við golfvöll GKG í Garðabæ.

Íbúð 311 er 60,8 fermetra fjögurra herberegja íbúð á þriðju hæð. Steinn á borðplötum eldhúsa og baðherbergja og loftskiptikerfi í íbúð. Eigninni fylgir bílastæði í lokaðri bílageymslu merkt B49. Ljósmyndir eru frá sýningaríbúð nr. 215.

vetrarbraut.is

Nánari lýsing:

Eignin skiptist í hol, eldhús, borðstofu og stofu í alrými þaðan sem gengið er út á svalir, svefnherbergi með fataskápum, baðherbergi þar sem gert er ráð fyrir þvottavél og þurrkara í sér innréttingu. Í sameign er hjóla og vagnageymsla ásamt 8,5 fm. sér geymslu íbúðar. Eigninni fylgir sér bílastæði í lokaðri bílageymslu B55.

Eldhús er vel útbúið, sérsmíðaðar Voke III innréttingar, á borðplötum er kvarts steinn. Vönduð tæki eru í eldhúsi, innbyggður ísskápur og uppþvottavél,

eldhús- og blöndunartæki að vandaðri gerð.

Íbúðin skilast án gólfefna utan baðherbergja og þvottahús sem skilast flísalögð.

Rými eru hönnuð með áherslu á loftgæði, hljóðvist og náttúrulega birtu. Hver íbúð hefur loftskiptikerfi sem stjórnað er innan íbúðar, slíkt eykur loftgæði og stuðlar að heilnæmu innilofti.

Húsið er klætt flísum og álkæðningu, slétt og bára. klæðningar eru í mismunandi litum, náttúrulegum jarðlitum sem tengir bygginguna umhverfinu, lögð er áhersla á að húsin séu viðhaldslétt, flísar og álklæðningar og ál/tré gluggar.

Um er að ræða bjartar og fallegar íbúðir í vandaðri nýbyggingu í einstöku umhverfi, nálægð við Golfvöll GKG, útivistarsvæði Heiðmerkur, nýja íþróttaaðstöðu Stjörnunnar svo fátt sé upptalið í skemmtilegu nýju hverfi.

Með öllum íbúðum fylgir bílastæði í lokaðri bílageymslu í það minnsta eitt fyrir hverja íbúð og fylgja bílskúrar sumum íbúðum að auki.

Vandað hefur verið að allri hönnun innan sem utan.

Byggingar eru hannaðar af Arkís, aðalhönnuður er Arnar Þór Jónsson arkitekt og hafði Thelma Guðmundsdóttir innanhúsarkitekt umsjón með innanhúshönnun. Hverfið í  heild, Vetrarmýri, er hannað af Sigurði Einarssyni arkitekt og skipulagshönnuði hjá Batteríinu.

Nánari upplýsingar veita:

Þórhallur Biering Guðjónsson, í síma 896-8232, tölvupóstur thorhallur@betristofan.is

Jason Kristinn Ólafsson, í síma 775-1515, tölvupóstur jason@betristofan.is

Guðbjörg Guðmundsdóttir, í síma 899-5533, tölvupóstur gudbjorg@betristofan.is.

Dagrún Davíðsdóttir, í síma 866-1763, tölupóstur dagrun@betristofan.is

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af ef að kaupum verður:

1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.

2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 3.800 af hverju skjali.

3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.

4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.

Skoðunarskylda kaupanda:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Betri Stofan fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Kort af Vetrarbraut 2C

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður við sambærilegar eignir
Sjá verðmat og greiningu
Mynd 1Mynd 2Mynd 3Mynd 4Mynd 5Mynd 6Mynd 7Mynd 8Mynd 9Mynd 10Mynd 11Mynd 12Mynd 13Mynd 14Mynd 15Mynd 16Mynd 17Mynd 18Mynd 19Mynd 20Mynd 21Mynd 22Mynd 23Mynd 24Mynd 25Mynd 26Mynd 27Mynd 28Mynd 29Mynd 30