HÚSASJÁ

Vetrarbraut 2A

01-0206 · 210 Garðabæ

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
30 myndir

73 m²

Stærð

3

Herbergi

2

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

2025

Byggingarár

4192 m²

Lóð

Garður

Lyfta

Bílskúr

Geymsla

Þvottahús



269 dagar á sölu

sell

77.900.000 kr

1.067.123 kr/m²

Betri Stofan Fasteignasala kynnir: Glæsilegar nýjar íbúðir við Vetrarbraut 2-4, í nýju og heillandi hverfi við golfvöll GKG í Garðabæ.

Íbúð 206 er 73 fermetra íbúð á 2. hæð. Steinn á borðplötum eldhúsa og loftskiptikerfi í íbúð. Eigninni fylgir bílastæði merkt B34 í lokaðri bílageymslu.

www.vetrarbraut.is

Nánari lýsing: Íbúð 206

Eignin skiptist í hol, eldhús, borðstofu og stofu í  alrými þaðan sem gengið út á svalir, tvö svefnherbergi, rúmgott hjónaherbergi með góðum fataskápum og aukaherbergi með fataskáp, baðherbergi og þvottahús. Í sameign er hjóla og vagnageymsla ásamt 8,4 fm. sérgeymslu íbúðar

Eldhús er vel útbúið, sérsmíðaðar Voke III innréttingar, á borðplötum er kvarts steinn. Vönduð tæki eru í eldhúsi innbyggður ísskápur og uppþvottavél. ofn í vinnuhæð, eldhús- og blöndunartæki eru að vandaðri gerð.

Íbúðin skilast án gólfefna utan baðherbergja og þvottahús sem skilast flísalögð.

Rými eru hönnuð með áherslu á loftgæði, hljóðvist og náttúrulega birtu. Hver íbúð hefur loftskiptikerfi sem stjórnað er innan íbúðar, slíkt eykur loftgæði og stuðlar að heilnæmu innilofti.

Húsið er klætt flísum og álkæðningu, slétt og bára. klæðningar eru í mismunandi litum, náttúrulegum jarðlitum sem tengir bygginguna umhverfinu, lögð er áhersla á að húsin séu viðhaldslétt, flísar og álklæðningar og ál/tré gluggar.

Um er að ræða bjartar og fallegar íbúðir í vandaðri nýbyggingu í einstöku umhverfi, nálægð við Golfvöll GKG, útivistarsvæði Heiðmerkur, nýja íþróttaaðstöðu Stjörnunnar svo fátt sé upptalið í skemmtilegu nýju hverfi.

Með öllum íbúðum fylgir bílastæði í lokaðri bílageymslu í það minnsta eitt fyrir hverja íbúð og fylgja bílskúrar sumum íbúðum að auki.

Vandað hefur verið að allri hönnun innan sem utan.

Byggingar eru hannaðar af Arkís, aðalhönnuður er Arnar Þór Jónsson arkitekt og hafði Thelma Guðmundsdóttir innanhúsarkitekt umsjón með innanhúshönnun. Hverfið í  heild, Vetrarmýri, er hannað af Sigurði Einarssyni arkitekt og skipulagshönnuði hjá Batteríinu.

Nánari upplýsingar veita:

Jason Kristinn Ólafsson, í síma 775-1515, tölvupóstur jason@betristofan.is

Guðbjörg Guðmundsdóttir, í síma 899-5533, tölvupóstur gudbjorg@betristofan.is.

Dagrún Davíðsdóttir, í síma 866-1763, tölupóstur dagrun@betristofan.is

Þórhallur Biering Guðjónsson, í síma 896-8232, tölvupóstur thorhallur@betristofan.is

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af ef að kaupum verður:

1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.

2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 3.800 af hverju skjali.

3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.

4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.

Skoðunarskylda kaupanda:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Betri Stofan fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Kort af Vetrarbraut 2A

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og greiningu