HÚSASJÁ

Vetrarbraut 2A

01-0204 · 210 Garðabæ

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
27 myndir

144 m²

Stærð

4

Herbergi

3

Svefnherbergi

3

Baðherbergi

2025

Byggingarár

4192 m²

Lóð

Garður

Svalir

Lyfta

Bílskúr

Geymsla

Þvottahús



272 dagar á sölu

sell

144.900.000 kr

1.004.854 kr/m²

Fasteignasalan TORG kynnir: Góð 4ra herbergja íbúð með tvennar svalir, frístundaskúr og tvö bílastæði í bílakjallara! Íbúð merkt:0204, sem skilast fullbúin án gólfefna. Íbúðin er alls 144,2fm að stærð á 2. hæð í góðu lyftuhúsi. Íbúðin sjálf er skráð 132,3fm og skiptist í anddyri, gestasalerni, alrými með eldhúsi og stofu með útgengi út á svalir, 3 svefnherbergi, og svalir út af hjónaherbergi, baðherbergi, sér þvottaherbergi og frístundarskúr í sameign merkt: 0065, skráð 11,9fm. ásamt tveimur bílstæðum í bílakjallara merkt: B18 og B28.   Allar nánari upplýsingar, teikningar, og skilalýsingu er hægt að nálgast með að hafa samband við Guðný Ösp, fasteignasali í GSM: 665-8909 eða gudny@fstorg.is

Sjá nánari upplýsingar á heimasíðu verkefnisins HÉR

Sækja söluyfirlit HÉR

Almennar upplýsingar

Vetrarbraut 2 - 4 er nýtt fjölbýlishús í nýju og heillandi hverfi sem rís miðsvæðis á höfuðborgarsvæðinu í nánd við Vífilsstaði, golfvöll GKG, Heiðmörk og nýja íþróttaaðstöðu í Miðgarði, Garðabæ. Íbúðirnar eru einstaklega vel hannaðar, í svansvottunarferli, með gæði og þægindi í fyrirrúmi. Innréttingar eru vandaðar og allt efnisval smekklegt og tímalaust. Í hverri íbúð er loftskiptikerfi sem eykur loftgæði, stuðlar að heilnæmu innilofti og bætir líðan íbúa. Í bílakjallara fylgir öllum íbúðum eitt til tvö bílastæði og sumum þeirra fylgir einnig frístundaskúr eða bílskúr. Hverfið nýtur sterkra innviða Garðabæjar auk þess sem stutt er í marga af stærstu verslunarkjörnum höfuðborgarsvæðisins og fjölbreytta þjónustu. Góðar tengingar eru við stofnbrautir. Skipulag svæðisins hefur hlotið alþjóðlegu umhverfisvottunina BREEAM.

Tvö fjögurra hæða staðsteypt fjölbýlishús með inngarð. Samtals 72 íbúðir í 6 stigagöngum Tveggja hæða niðurgrafinn bílakjallari með geymslum, bílskúrum.  Samtals 115 bílastæði á lóð og í bílakjallara. Húsin eru í svansvottunarferli. Sjá nánar skilalýsingu*

Utanhússfrágangur

Klæðning: Flísar og álklæðning (báru og slétt), náttúrulegir jarðlitir.

Þak: Þakplötur eru steinsteyptar og vatnshalli formaður í steypu. Viðsnúið með gróðurþekju, þykk einangrun og drenlag.

Gluggar og hurðir: Ál/tré gluggar og hurðir, hvítir að innan og koxgráir að utan.

Lóð: Fullfrágengin skv. landslagsuppdráttum, snjóbræðsla á gönguleiðum, rafhleðslurör í jörð, 2 hleðslustöðvar á lóð.

Innanhússfrágangur

Gólfefni: Baðherbergi og þvottahús flísalögð, annars afhent án gólfefna.

Loft: Spörtluð og máluð; dúkloft í sumum þvottahúsum.

Veggir: Léttir innveggir með steinull, rakavörn í votrýmum, allir veggir sandspartlaðir og málaðir.

Hurðir: Yfirfelldar, hvítar hurðir frá Parka.

Innréttingar: Frá VOKE-III, plastlagðar með kvarssteins borðplötum, svört handföng. Flísar: 60x60

Hitakerfi: Hefðbundið ofnakerfi, gólfhiti og handklæðaofnar á baðherbergjum.

Loftskipti: Sér samstæða fyrir hverja íbúð.

Raflagnir: Ljósleiðari, myndavéladyrasími, hvítir rofar og tenglar.

Tæki og búnaður

Eldhústæki (flest frá Siemens): Helluborð, ofn, ísskápur, uppþvottavél.

Háfar: Falmec Sophie hangandi eða Bosch innbyggðir.

Sameignir:

Stigagangar: Málaðir veggir, teppalögð gólf, flísar í anddyri, burstuð stállyfta.

Geymslur: Slípaðir og málaðir veggir/gólf með slitþolinni málningu.

Hjólageymsla: Í hvoru húsi.

Djúpgámar: 6 talsins, rusl flokkað skv. reglum Garðabæjar.

Hönnun og framkvæmdir

Arkitektar: Arkís arkitektar.

Verkfræðihönnun: Þráinn & Benedikt, LX teiknistofa.

Framkvæmdaraðili: Framkvæmdarfélagið Arnarhvoll.

Sjá nánar skilalýsingu*

Kort af Vetrarbraut 2A

Fáðu nýja innsýn á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og samanburð