HÚSASJÁ

Lautargata 4

01-0303 · 210 Garðabæ

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
32 myndir

90 m²

Stærð

4

Herbergi

3

Svefnherbergi

2

Baðherbergi

2024

Byggingarár

2639 m²

Lóð

Garður

Svalir

Lyfta

Geymsla

Þvottahús



501 dagar á sölu

sell

85.900.000 kr

955.506 kr/m²

Þorsteinn Yngvason, lögmaður / löggiltur fasteignasali, hjá RE/MAX fasteignasölu kynnir í einkasölu:

Nýja og glæsilega 4 herbergja íbúð í lyftuhúsi að Lautargötu 4 í Urriðaholti.

Íbúðin sem er laus við kaupsamning, skilast fullbúin með gólfefnum, ásamt innbyggðum ísskáp og uppþvottavél. Innbyggð sturtutæki. Steinborðplötur á eldhúsi og baðherbergjum.

Íbúð 303: Glæsileg 4. herbergja íbúð á 3. hæð. Skráð stærð 89,9 fm.

Nánari lýsing:

Anddyri: Flísar á gólfi, fataskápur upp í loft.

Herbergi: Fataskápur upp í loft. Parket á gólfi.

Herbergi: Fataskápur upp í loft. Parket á gólfi

Baðherbergi: Flísar á gólfi og veggjum að hluta, upphengt salerni, sturta með glerskilrúmi, innbyggð blöndunartæki, innrétting undir og við handlaug, handklæðaofn.

Þvottahús: Inn af baðherbergi. Flísar á gólfi, innrétting með skolvask.

Eldhús: Falleg innrétting með eyju, steinborðplata, innfelldur ísskápur og uppþvottavél, bakaraofn, combi bakaraofn og spanhelluborð. Parket á gólfi.

Stofa/borðstofa: Í samliggjandi rými með eldhúsi. Útgengt út á svalir. Parket á gólfi.

Hjónaherbergi: Fataskápur upp í loft. Parket á gólfi.

Geymsla: í sameign.

Helstu kostir við frágang:

** Sólveig Andrea Jónsdóttir, innanhúsarkitekt, veitti ráðgjöf við hönnun innréttinga, gólfefna og litaval. Íbúðirnar eru vandaðar og fallega innréttaðar. Veggir og loft er málað í ¼ Hör.

** Innbyggð sturtutæki á baðherbergjum. Steinborðplötur eru á eldhúsi og baðherbergjum

** Innfelld lýsing í íbúðum að hluta. Snjallkerfi frá Plejd. Hægt að stýra dimmanlegum ljósum í snjallsíma eða spjaldtölvu. Myndavéladyrasími er í öllum íbúðum.

** Innréttingar frá Ormsson ehf. og framleiddar af ARENS. Eldhústæki frá Ormsson, innbyggð uppþvottavél og ísskápur með frysti, bakaraofn, spanhelluborð og gufugleypir.

** Gólf baðherbergja, þvottahúsa og forstofa eru flísalögð með 60 x 60 flísum frá Ebson. Parket frá Ebson á öðrum rýmum. Ringo innihurðir frá Birgisson

** Í stofum eru lofttúður með innbyggðri hljóð- og ryksíu sem tryggja innstreymi og þar með hringrás lofts um íbúðina.

** Við hönnun hússins er tekið mið af því að lágmarka viðhald. Húsið er einangrað að utan, álklætt að utan og gluggar ál-tré.

Húsið:

Lautargata 4 er nýtt og glæsilegt hús sem er staðsett í Urriðaholti í Garðabæ. Húsið er steinsteypt fimm hæða fjölbýlishús með 19 íbúðum í einum stigagangi. Allar íbúðirnar eru með stórar svalir/sérafnotareiti sem snúa til suðurs. Á 1. hæð er ein íbúð með sérinngangi. Á hæðinni er jafnframt anddyri, geymslur íbúða, hjóla- og vagnageymsla, inntaksrými og upphituð bílageymsla með 12 bílastæðum. Á 2. – 4. hæð hússins eru fimm íbúðir á hverri hæð. Á 5. hæð hússins eru svo þrjár íbúðir með þaksvalir. Seljandi og lóðarhafi hússins er PK Byggingar ehf. Frekari upplýsingar um framkvæmdaraðila hússins má finna í skilalýsingu seljanda.

Umhverfið:

Húsið er staðsett í Urriðaholti í Garðabæ sem er einstakt og nýstárlegt hverfi. Umkringt óspilltri náttúru en um leið í nálægð við góðar samgönguæðar og sérlega vel staðsett innan höfuðborgarsvæðisins. Í jaðri hverfisins eru helstu útivistarsvæði höfuðborgarsvæðisins, ósnortin náttúra og einn glæsilegasti golfvöllur landsins. Urriðaholt byggir á hugsjón um að íbúabyggð eigi að hámarka lífsgæði fólksins sem þar býr í sátt við náttúruna í kring og umhverfið allt. Skipulag Urriðaholts er fyrsta hverfið hér á landi til að hljóta vistvottun samkvæmt vottunarkerfi BREEAM Communities.

Frekari upplýsingar veita

Þorsteinn Yngvason, lögmaður/ löggiltur fasteignasali, 696-0226 eða thorsteinn@remax.is

Kort af Lautargata 4

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og greiningu