HÚSASJÁ

Grásteinsmýri 2

01-0212 · 225 Garðabæ

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
17 myndir

124 m²

Stærð

4

Herbergi

3

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

2025

Byggingarár

16972 m²

Lóð

Sérinngangur

Garður

Svalir

Lyfta

Bílskúr

Hleðslustöð

Hjólastólaaðgengi

Geymsla

Þvottahús



108 dagar á sölu

sell

110.900.000 kr

895.077 kr/m²

Háborg fasteignasala kynnir Grásteinsmýri 1, Garðabæ. Nýbyggingin er staðsteypt, einangruð að utan og klædd með ál- og bambus klæðningu. Góðar 2ja, 3ja 4ra og 5 herbergja íbúðir í litlu fjölbýli með lyftu. Útsýni er úr flestum íbúðum og timbur-verönd fylgir íbúðum á 1. hæð. Íbúðirnar afhendast án megin gólfefna en baðherbergi eru flísalögð að hluta. Næg bílastæði á lóð. Áætluð afhending íbúða er í apríl 2026.

Sölusíða Grásteinsmýri

Nýr valkostur í fjármögnun. Kaupendur geta nýtt sér nýjan sjóð Öxar 20 sem styður þá með því að fjárfesta með þeim allt að 20% af kaupverði.  Kynntu þér málið hér Öxar.is

Nánari lýsing á íbúð 212 4ra herbergja: Stærð 123,9 fm. Sérinngangur af svölum. Þegar komið er í forstofu eru góðir fataskápar. Barnaherbergi tvö eru rúmgóð og björt með góðum fataskápum. Hjónaherbergi er einnig rúmgott og bjart með góðum fataskápum og með útgengi út á svalir. Baðherbergi er með góðri snyrtiaðstöðu. Sér þvottahús með góðri vinnuaðstöðu. Alrými er mjög rúmgott og bjart með opið eldhús. Stofur eru rúmgóðar og bjartar. Úr alrými og stofu er útgengt á svalir 6,5 fm að stærð. Eigninni fylgir stæði í bílakjallara merkt B24 og geymsla að stærð 8,3 fm.

Nýjar, bjartar og vandaðar íbúðir með góðri lofthæð, þar sem náttúra, ró og nútímaleg hönnun mætast.

Innréttingar í íbúðum: AXIS innréttingar í litnum CashmereGrey. AEG innbyggð heimilistæki, ísskápur, uppþvottavél, helluborð og bakarofn. Baðherbergi eru flísalögð að hluta með 60×60 Patch Beige flísum (Ragno). Grohe blöndunartæki eða sambærileg. Egill Árnason hurðir, lamir og hurðabúnaður.

Sérmerkt bílastæði í bílageymslu fylgir hverri íbúð auk sérgeymslu í kjallara. Sameiginleg opin reiðhjóla- og vagnageymsla í inngarði á milli húsa.

Staðsetning og nærumhverfi: Frábær staðsetning, þar sem skóli, leikskóli, sundlaug og íþróttahús eru í göngufæri. Ekkert skutl og engar götur sem þarf að fara yfir. Rólegt og fallegt umhverfi. Frábær aðstaða fyrir fjölskyldufólk. Einnig eru frábær útivistasvæði við strandlengjuna. Hestamannfélagið Sóti og fallegar reiðleiðir eru á svæðinu.

ATH: kaupandi greiðir skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það verður lagt á.

Aðeins 4 mínútna akstur frá ljósunum við Actavis.

Nánari upplýsingar veitir Jórunn Skúladóttir lögg. fasteignasali, í síma 845-8958, eða tölvupóstur jorunn@haborg.is

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.

Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.

Katla Hanna Steed lögg. fasteignasali, í síma 822-1661, eða tölvupóstur katla@haborg.is

Kristín Rós Magnadóttir lögg. fasteignasali, í síma 860-2078, eða tölvupóstur kristin@haborg.is

Þórunn Pálsdóttir lögg. fasteignasali, í síma 773-6000, eða tölvupóstur thorunn@haborg.is

Þórir Helgi Sigvaldason lögg. fasteignasali, í síma 823-7170, eða tölvupóstur thorir@haborg.is

Reynir Þór Garðarsson Lögmaður, í síma 847-0577, eða tölvupóstur reynir@haborg.is

Birkir Már Árnason Lögmaður, í síma 867-3388, eða tölvupóstur birkir@haborg.is

Kort af Grásteinsmýri 2

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður við sambærilegar eignir
Sjá verðmat og greiningu
Mynd 1Mynd 2Mynd 3Mynd 4Mynd 5Mynd 6Mynd 7Mynd 8Mynd 9Mynd 10Mynd 11Mynd 12Mynd 13Mynd 14Mynd 15Mynd 16Mynd 17
Grásteinsmýri 2, 01-0212 | Húsasjá