Grásteinsmýri 2
01-0211 · 225 Garðabæ



108 dagar á sölu
101.700.000 kr
869.231 kr/m²
Háborg fasteignasala kynnir Grásteinsmýri 1, Garðabæ. Nýbyggingin er staðsteypt, einangruð að utan og klædd með ál- og bambus klæðningu. Góðar 2ja, 3ja 4ra og 5 herbergja íbúðir í litlu fjölbýli með lyftu. Útsýni er úr flestum íbúðum og timbur-verönd fylgir íbúðum á 1. hæð. Íbúðirnar afhendast án megin gólfefna en baðherbergi eru flísalögð að hluta. Næg bílastæði á lóð. Áætluð afhending íbúða er í apríl-maí 2026.
Sölusíða Grásteinsmýri
Nýr valkostur í fjármögnun. Kaupendur geta nýtt sér nýjan sjóð Öxar 20 sem styður þá með því að fjárfesta með þeim allt að 20% af kaupverði. Kynntu þér málið hér Öxar.is
Nánari lýsing á íbúð 211 4ra herbergja: Stærð 117,0 fm. Sérinngangur af svölum. Þegar komið er í forstofu eru góðir fataskápar. Úr forstofu er sér þvottahús með góðri vinnuaðsttöðu. Barnaherbergin tvö eru björt og með góðum fataskápum. Hjónaherbergi er einnig rúmgott og bjart með góðum fataskápum. Baðherbergi er með góðri snyrtiaðstöðu. Alrými er mjög rúmgott og bjart með opið eldhús með eyju sem hægt er að sitja við. Stofur eru rúmgóðar og bjartar. Úr alrými og stofu er útgengt á svalir 6,5 fm að stærð. Eigninni fylgir stæði í bílakjallara merkt B22 og geymsla að stærð 4,9 fm.
Nýjar, bjartar og vandaðar íbúðir með góðri lofthæð, þar sem náttúra, ró og nútímaleg hönnun mætast.
Innréttingar í íbúðum: AXIS innréttingar í litnum CashmereGrey. AEG innbyggð heimilistæki, ísskápur, uppþvottavél, helluborð og bakarofn. Baðherbergi eru flísalögð að hluta með 60×60 Patch Beige flísum (Ragno). Grohe blöndunartæki eða sambærileg. Egill Árnason hurðir, lamir og hurðabúnaður.
Sérmerkt bílastæði í bílageymslu fylgir hverri íbúð auk sérgeymslu í kjallara. Sameiginleg opin reiðhjóla- og vagnageymsla í inngarði á milli húsa.
Staðsetning og nærumhverfi: Frábær staðsetning, þar sem skóli, leikskóli, sundlaug og íþróttahús eru í göngufæri. Ekkert skutl og engar götur sem þarf að fara yfir. Rólegt og fallegt umhverfi. Frábær aðstaða fyrir fjölskyldufólk. Einnig eru frábær útivistasvæði við strandlengjuna. Hestamannfélagið Sóti og fallegar reiðleiðir eru á svæðinu.
ATH: kaupandi greiðir skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það verður lagt á.
Aðeins 4 mínútna akstur frá ljósunum við Actavis.
Nánari upplýsingar veitir Þórunn Pálsdóttir lögg. fasteignasali, í síma 773-6000, eða tölvupóstur thorunn@haborg.is og Jórunn lögg.fasteignasali, í síma 845-8958 eða jorunn@haborg.is
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Katla Hanna Steed lögg. fasteignasali, í síma 822-1661, eða tölvupóstur katla@haborg.is
Kristín Rós Magnadóttir lögg. fasteignasali, í síma 860-2078, eða tölvupóstur kristin@haborg.is
Þórunn Pálsdóttir lögg. fasteignasali, í síma 773-6000, eða tölvupóstur thorunn@haborg.is
Þórir Helgi Sigvaldason lögg. fasteignasali, í síma 823-7170, eða tölvupóstur thorir@haborg.is
Reynir Þór Garðarsson Lögmaður, í síma 847-0577, eða tölvupóstur reynir@haborg.is
Birkir Már Árnason Lögmaður, í síma 867-3388, eða tölvupóstur birkir@haborg.is

Dýpri greining á Húsasjá
- Verðmat fasteignar
- Sölusaga og verðþróun
- Samanburður við sambærilegar eignir
















