HÚSASJÁ

Baughamar 3

02-0105 · 221 Hafnarfirði

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
34 myndir

95 m²

Stærð

3

Herbergi

2

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

2024

Byggingarár

4930 m²

Lóð

Sérinngangur

Garður

Lyfta

Geymsla

Þvottahús



275 dagar á sölu

sell

77.000.000 kr

809.674 kr/m²

Nýtt á skrá! *** Möguleiki á 20% aðstoð fyrir kaupendur með UTS20. Sjóðnum ***

UTS20. Sjóður hjálpar þér að komast inn á fasteignamarkaðinn með því að fjárfesta fyrir allt að 20% af kaupverði eignar. Þú þarft einungis að eiga 10% í eigið fé til þess að geta keypt þér eign og að fá 70% lán hjá lánastofnun.

Nánari upplýsingar um UTS20. Sjóðinn hér.

Lind Fasteignasala og Helga Pálsdóttir kynna nýjar og glæsilegar 2–4 herbergja íbúðir í vönduðu og fallegu fjölbýli við Baughamar 3, 221 Hafnarfirði. Íbúðirnar afhendast fullbúnar með gólfefnum, innbyggðum ísskáp, frysti og uppþvottavél.

Byggingaraðili: Skuggi 6 ehf.

Aðalhönnuður hússins: Teikna-teiknistofa arkitekta ehf.

Allar nánari upplýsingar á heimasíðu verkefnisins: www.baughamar3.is

Íbúð 105: 95,1 fm, þriggja herbergja íbúð á 1. hæð með sérinngangi. Eigninni fylgir stæði á lóð.

Nánari lýsing:

Anddyri: Parket á gólfi, fataskápur.

Eldhús: Parket á gólfi, gott skápa- og borðpláss, innréttingin er frá þýska framleiðandanum Nobilia, með steinplötu á borðum. Eldhúsinnrétting er fullbúin með blöndunartækjum og eldhústækjum þ.e. helluborði, viftu í innréttingu eða eyjuháfi yfir helluborði þar sem það á við, innbyggðum ísskáp, innbyggðri

uppþvottavél og ofni.

Alrými: Parket á gólfi, útgengt út á svalir.

Hjónaherbergi: 13,2 fm, parket á gólfi, fataskápur.

Herbergi: 9,4 fm, parket á gólfi, fataskápur.

Baðherbergi: Baðherbergisgólf og sturturými eru flísalögð. Baðinnrétting er með neðri skáp með steinplötu við handlaugar, hvítri handlaug og efri skápum með spegli á hurðum og ljósi. Salerni er vegghengt með innbyggðum vatnskassa. Blöndunartæki á baði

eru hitastýrð blöndunartæki og sturtustöng með utanáliggjandi blöndunartækjum.

Þvottahús: sér þvottahús, innrétting undir þvottavél og þurrkara.

Svalir: 7,8 fm.

Geymsla: 7,2 fm í sameign.

Hjóla- og vagnageymsla: Í sameign.

Bílastæði: Sérmerkt bílastæði á lóð.

Frekari upplýsingar í skilalýsingu hjá fasteignasala.

Kaupandi greiðir 0,3% af væntanlegu brunabótamati þegar því hefur verið úthlutað eigninni.

Nánari upplýsingar veita:

Helga Pálsdóttir Löggiltur fasteignasali, í síma 8222123, tölvupóstur helga@fastlind.is.

Auður Magnúsdóttir Löggiltur fasteignasali, í síma 8482666, tölvupóstur audur@fastlind.is.

Kort af Baughamar 3

Fáðu nýja innsýn á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og samanburð