HÚSASJÁ

Straumhella 7X

02-0114 · 221 Hafnarfirði

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
14 myndir

37 m²

Stærð

2025

Byggingarár

3206 m²

Lóð

Sérinngangur

Garður

Geymsla



183 dagar á sölu

sell

18.900.000 kr

513.587 kr/m²

***Domusnova kynnir vel staðsett geymslu- eða lagerrrými við Straumhellu 7X, Hafnarfirði***

****'AÐEINS TVÖ BIL EFTIR AF ÞESSUM VINSÆLU EININGUM***

Birt stærð 36,8fm hvert bil með möguleika á millilofti.

----- BÓKIÐ SKOÐUN - SÝNUM SAMDÆGURS ------

Allar nánari upplýsingar veita:

Agnar Agnarsson löggiltur fasteignasali í s. 820-1002 // agnar@domusnova.is

Nýtt glæsilegt atvinnu-frístunda- og/eða hobbý rými til sölu á malbikaðri afgirtri lóð (öryggisgirðing) með lokuðu rafstýrðu hliði við Straumhellu 7, Hafnarfirði.  Samtals eru 27 bil í tveimur aðskildum húsum á sameiginlegri lóð.  Breidd húsnæðis 4,6m. og lengd 8,0m.

Fasteignin er byggð úr límtré ásamt burðarvirki þess.

Útveggir eru klæddir með vottuðum stá-samlokueinignum frá Límtré/Vírnet með harðpressaðri steinull.

Bilin afhendast fullfrágengin utan sem innan (byggingastig 7) með sérstæði fyrir framan hvert bil.

Vegghæð við útvegg er 4,4 metrar og 5,8 metrar innst í hverju bili

Innkeyrsludyr eru  H3,0m x B2,5m

Inngöngudyr við hlið innkeyrsludyra og gluggi fyrir ofan inngöngudyr.

Gólf vélslípuð og máluð með Epoxy málningu, þ.m.t. í sameiginlegu inntaksrými og salerni.

Skolvaskur og blöndunartæki uppsett í hverju bili.

Skolprör í gólfi á hverju bili sem gefur möguleika á uppsetningu fyrir klósett í hvert bil.

Niðurfall í gólfum.

Hitaveita sameiginleg fyrir öll geymslurýmin og er húsnæðið hitað upp með hefðbundnu ofnakerfi. Varmaskiptir er við inntak heita vatnsins. Inntök húsa eru öll staðsett við enda húss nr. 1 Niðurfallslagnir tilbúnar til tengingar fyrir salernisaðstöðu.

Afhendingartími er við undirritun kaupsamnings.

Rafmagnsmótor á innkeyrsluhurð.

Raflögn verður frágengin með 3ja fasa rafmagni og rafmagstöflu fyrir hvert bil.  Lýsing í loftum frágengin.

Lóð skilast fullfrágengin, malbikuð með niðurföllum, girt af og með sjálfvirku rennihliði tengt símanúmerum eigenda á hverju innnkeyrslubili.

Útilýsing frágengin fyrir ofan innkeyrsluhurðar hvers geymslubils tengd sólúri og tengd sameiginlegum rafmagnsmæli.

Sameiginleg salernisaðstaða frágengin með klósetti í mhl. 02 ásamt inntaksrými.  Sameiginleg bílastæði á lóð eru 17 og þar af 2 fyrir hreyfihamlaða .

HÚSFÉLAG er stofnað fyrir alla verðandi eigendur að bilum á þessari lóð til að tryggja m.a. góða umgengni um lóð og hús.

Á eigninni hvílir kvöð um virðisaukaskattsskylda starfsemi

Nánari upplýsingar veita:

Skrifstofa / s.527-1717 / eignir@domusnova.is

Agnar Agnarsson löggiltur fasteignasali / s.8201002 / agnar@domusnova.is

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. DOMUSNOVA fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:

Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.

Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.

Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.

Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.

Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.

Kort af Straumhella 7X

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og greiningu