HÚSASJÁ

Selásbraut 108

01-0402 · 110 Reykjavík

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
48 myndir

87 m²

Stærð

3

Herbergi

2

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

2025

Byggingarár

2673 m²

Lóð

Garður

Svalir

Lyfta

Geymsla

Þvottahús



195 dagar á sölu

sell

79.900.000 kr

918.391 kr/m²

RE/MAX, Guðlaug Jóna lgf og Garðar Hólm lgf. kynna:

Nýjar og glæsilegar íbúðir í lyftuhúsi að Selásbraut 98-108 í Árbæ, Reykjavík. Stærðir eru frá 58,3 – 230,3 fm. 25 íbúðir með sérmerktum stæðum á bílaplani. Íbúðirnar skilast fullbúnar, án gólfefna, með innbyggðum ísskáp og uppþvottavél og með svalalokun (nema þær sem eru á jarðhæð). Gólfhiti er í öllum íbúðum ásamt loftskiptikerfi. Afhending er í september 2025.

Frábær staðsetning þar sem stutt er í útivistarperluna við Heiðmörk og Rauðavatn. Einnig er mjög stutt í leik- og grunnskóla, sundlaug og matvörubúð.

Nánari upplýsingar veita Guðlaug Jóna lgf. í síma 661-2363 eða gulla@remax.is, Garðar Hólm lgf. í síma 899-8811 eða gardar@remax.is og Bjarný Björg lgf. í síma 694-2526 eða bjarny@remax.is

Íbúð 402 er glæsileg þriggja herbergja íbúð á 4. hæð með sérmerktu stæði á lóð. Samkvæmt Þjóðskrá Íslands er eignin 87 fm, þar af er geymsla í kjallara 11,7 fm. Útgengt á 7,6 fm yfirbyggðar svalir.

Við hönnun hússins er tekið mið af því að lágmarka viðhald. Húsið er einangrað að utan með álklæðningu í tveimur mismunandi litum og gluggar eru úr ál-tré.

Til að skoða heimasíðu verkefnisins smellið HÉR.

Íbúð: 402

Hæð: 4

Tegund: 3ja herbergja

Stærð: 87 m²

Geymsla: 11,7 m²

Svalir: 7,6 m²

Helstu atriði við frágang innandyra:

Innréttingar frá Voke III

Borðplötur í eldhúsi eru almennt úr 20 mm þykkum HPL (high pressure laminate) með ljósu yfirborði. Á baðherbergjum eru borðplötur úr hvítum Durastone með samlímdum vaski.

Eldhústæki frá AEG, spanhelluborð, ofn, uppþvottavél, háfur og ísskákpur.

Gólf baðherbergja eru flísalögð með 60 x 60 cm flísum frá Agli Árnasyni.

Hvítar innihurðir eru frá Agli Árnasyni.

Hús er klætt að utan með vandaðri báruálklæðningu frá Málmtækni.

Gluggar og svalahurðir eru úr ál-tré frá Húsasmiðjunni. Allt gler er K gler eða sambærilegt skv. byggingarreglugerð.

Blöndunartæki eru frá Grohe.

Nánari lýsing:

Forstofa: Fataskápur upp í loft.

Eldhús: Falleg innrétting með spanhelluborði, innfelldur ísskápur og uppþvottavél, bakaraofn. Útgengt út á yfirbyggðar svalir frá rýminu.

Stofa/borðstofa: Í samliggjandi rými með eldhúsi. Opið og bjart rými. Útgengt út á svalir.

Hjónaherbergi: Rúmgott með fataskáp upp í loft.

Herbergi II: Rúmgott með fataskápum upp í loft.

Baðherbergi: Flísar á gólfi og veggjum að hluta, upphengt salerni, sturta með glerskilrúmi og innrétting undir og við handlaug. Handklæðaofn og tengi fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð, góðir skápar við þvottaaðstöðu.

Svalir: Útgengt er út á 7,6 fm svalir með svalalokun. Þar eru gólfsíðir gluggar og rennihurð.

Geymsla: Er í sameign í kjallara 11,7 fm.

Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla er í kjallara.

Yfirbyggt hjólaskýli er fyrir utan húsið.

**ATH myndirnar eru teknar í sýningaríbúð hússins sem er íbúð 309**

Kaupandi greiðir skipulagsgjald sem er 0,3% af brunabótamati þegar það verður lagt á fasteignina.

Nánari upplýsingar veita Guðlaug Jóna lgf. í síma 661-2363 eða gulla@remax.is, Garðar Hólm lgf. í síma 899-8811 eða gardar@remax.is og Bjarný Björg lgf. í síma 694-2526 eða bjarny@remax.is

Kort af Selásbraut 108

Fáðu nýja innsýn á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og samanburð