HÚSASJÁ

Hamravík 17

01-0103 · 800 Selfossi

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
25 myndir

100 m²

Stærð

3

Herbergi

3

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

2024

Byggingarár

1620 m²

Lóð

Sérinngangur

Garður

Þvottahús



23 dagar á sölu

sell

69.900.000 kr

696.215 kr/m²

Hafsteinn Þorvaldsson fasteignasali ásamt HÚS fasteignasölu kynna í einkasölu svo gott sem nýtt, snyrtilegt og flott raðhús við Hamravík 17. Staðsetning er í suð-vesturhluta bæjarins í Jórvíkurhverfi og húsið stendur í útjaðri hverfisins þar sem stutt er út í náttúruna. Húsið er 100,4 fm, 4ra herbergja, byggt úr timbri, klætt að utan með ál utanhússklæðningu í bland við standandi Bond klæðningu.  Bílaplan er hellulagt með snjóbræðslu og steyptu ruslatunnuskýli.

Nánari lýsing:

Forstofa með fínum fataskáp. Þrjú svefnherbergi með harðparketi á gólfi, öll með fataskápum. Rúmgott baðherbergi flísalagt í hólf og gólf, handklæðaofn, innrétting, spegill, skápur og "walk inn" sturta með glervegg og innbyggðum blöndunartækjum. Flísalagt þvottahús með innréttingu sem gerir ráð fyrir þvottavél/þurrkara í vinnuhæð. Vönduð elhúsinnrétting, veggföst eyja sem hægt er að sitja við, ljúflokur á öllum skúffum og skápum. Heimilistæki, ísskápur/frystir og uppþvottavél innbyggð í innréttingu. Stofa, borðstofa og eldhús eru í opnu og björtu rými þar sem útgengt er út á lóð.

Svæðaskiptur gólfhiti með stýringum, innréttingar og skápar frá Voke-3, harðparket frá Byko og flísar á votrýmum. Gluggar eru vandaðir ál/tré. Forritanleg ljósastýring/rofar - Plejd. Varmaskiptir á neysluvatni. Bílaplan er hellulagt en baka til er grasflöt.

Virkilega smekkleg og snyrtileg eign, svo gott sem ný.

Nánari upplýsingar veitir Hafsteinn Þorvaldsson viðskiptafræðingur/löggiltur fasteigna,- og skipasali s. 891-8891, hafsteinn@husfasteign.is

"Okkar fagmennska eru þínir hagsmunir"

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum að vegna kaupanna.

1. Stimpilgjöld af kaupsamningi - 0,8 % af heildarfasteignamati.   (0,4% fyrstu kaup, 1,6% lögaðilar)

2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. kr. 3800 af hverju skjali.

3. Lántökugjald lánastofnunnar, almennt 0.5 - 1.5 % af höfuðstól skuldabréfs, Nánari upplýsingar t.d. á heimasíðum lánastofnanna.

4. Umsýslugjald til fasteignasölu sbr. Kauptilboð

Kort af Hamravík 17

Fáðu nýja innsýn á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og samanburð