Goðavík 7
01-0104 · 800 Selfossi



53 dagar á sölu
69.990.000 kr
699.900 kr/m²
ÁRBORGIR SELFOSSI S 482 4800 kynna:
Vel skipulagða íbúð í nýju raðhúsi í nýju hverfi á Selfossi.
Húsið er timburhús, klætt að utan með báruáli og sléttri ál klæðningu, gluggar eru ál/tré gluggar, vindskeiðar og undirklæðning úr málaðri furu.
Heildarstærð hússins er 100m2 og skiptist það í forstofu, baðherbergi, þvottahús, 3 svefnherbergi, stofu og eldhús.
Gólfhiti er í húsinu, steyptur í plötu, veggir og loft klædd með gipsi, heilspartlað og málað. Harðparket er á gólfum en flísar á votrýmum, innihurðar eru yfirfelldar hvítar.
Nánari lýsing eignar:
Andyri er flísalagt og þar er rúmgóður fataskápur.
Svefnherbergin eru þrjú, öll með fataskápum og parketi á gólfi.
Baðherbergi með upphengdu salerni, gólfsturtu og innréttingu, flísar á gólfi. Inn af baðherbergi er þvottahús með innréttingu þar sem gert er ráð fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð.
Alrými sem samanstendur af eldhúsi, borðstofu og stofu. Eldhús er með rúmgóðri innréttingu með eyju. Í innréttingu er innbyggður ísskápur og uppþvottavél, spanhelluborð og bakarofn. Borðstofa/stofa er björt og rúmgóð, parket á gólfum og útgengt út á suðurlóð.
Lóðin er þökulögð og mulningur er í bílaplani.
Steypt 3ja tunnu ruslaskýli fylgir á timburs og pumpu.
Nánari upplýsingar á skrifstofu Árborga.
arborgir@arborgir.is eða í síma 482-4800.

Dýpri greining á Húsasjá
- Verðmat fasteignar
- Sölusaga og verðþróun
- Samanburður við sambærilegar eignir













