HÚSASJÁ

Reynihlíð 13

01-0102 · 604 Akureyri

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
13 myndir

103 m²

Stærð

3

Herbergi

2

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

2025

Byggingarár

1314 m²

Lóð

Sérinngangur

Garður

Svalir

Geymsla



51 dagar á sölu

sell

74.150.000 kr

723.415 kr/m²

Borg fasteignasala ehf. og Einar Pálsson löggiltur fasteignasali kynna nýbyggingu að Reynihlíð 13 A, 102,5 fermetra íbúð á jarðhæð. Íbúðin er í 8 íbúða fjölbýli. Allar íbúðir eru með sér inngang. Íbúðir á jarðhæð hafa verandir og sérafnotafleti á lóð. Fallegt útsýni úr íbúðum efri hæðar. Alls eru 16 bílastæði við húsið og þar af er 1 fyrir hreyfihamlaða. Sorpskýli og útigeymsla eru á lóð í sameign allra.

Nánari lýsing á eign:

Forstofa er með föstum fataskápum og flísum á gólfi.

Gengið er úr forstofu inn í miðrými eignar, stofu og eldhús þar sem parket er á gólfi og innréttingar með efri- og neðri skápum, rýmið er alls 33,9 fermetrar.

Tvö rúmgóð svefnherbergi (15,6 & 10,1 fm) með parket á gólfi og föstum fataskápum eru í íbúðinni ásamt geymslu (7,5 fm).

Baðherbergi er með flísum á gólfi og vegg að hluta, sturtu, upphengdu klósetti, innréttingu með aðstöðu fyrir þvottavél og þurkkara og handklæðaofn.

Útgengt er úr stofu á verönd vestan við íbúð skráð (10,6 fm) samkvæmt eignaskiptayfirlýsingu og úr hjónaherbergi á aðra verönd til austurs (12,3 fm).

Kaupandi greiðir skipulagsgjald 0,3% af brunabótamati samkvæmt reglugerð 737/1997 þegar það verður innheimt af sýslumanni.

Íbúðin er með föstum fataskápum frá TAK í forstofu og öllum svefnherbergjum. Eldhús og baðherbergi eru einnig með innréttingum frá TAK, Span helluborði, ofni með blæstri (Epoq) og gufugleypir (Airforce). Handklæðaofn er á baðherbergi. Parket er á gólfum en forstofa og baðherbergi eru flísalögð.

Nánari lýsing á eign:

Íbúð 01 0102, fastanúmer 253-3506, Reynhlíð 13 A.

Eignin er þriggja herbergja íbúð á 1. hæð, birt stærð 102,5 fermetrar.

Eigninni fylgir verönd (0108), 10,6 fermetrar og verönd (0114), 12,3 fermetrar sem og sérafnotaflötur, (sjá kafla um lóð og á fylgiskjali, grunnmynd 1. hæðar á eignaskiptayfirlýsingu).

Eigninni tilheyrir hlutdeild í sameign allra samkvæmt kafla eignaskiptayfirlýsingar um sameign.

Birt flatarmál séreignar er 102,5 fermetrar

Hlutfallstala í húsi og lóð er 12,20%

Hlutfallstala í hita er 12,39%

Hlutfall íbúðar í sameiginlegu rafmagni er 1/8

Nánari upplýsingar um eignina er hægt að nálgast hjá Einari Pálssyni, löggiltum fasteignasala á netfangið einar@fastborg.is og í síma 857-8392.

-Eignin er í einkasölu.

-Leiksvæði við lóð hússins.

Skoðunarskylda:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Borg fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.

2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.

3. Lántökugjald lánastofnun.ar - almennt 0,5 - 1,0% af höfuðstól skuldabréfs. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.

4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

Kort af Reynihlíð 13

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og greiningu