HÚSASJÁ

Hlíðargata 7

01-0101 · 750 Fáskrúðsfirði

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
15 myndir

116 m²

Stærð

4

Herbergi

3

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

2024

Byggingarár

508 m²

Lóð

Sérinngangur

Garður

Svalir

Geymsla

Þvottahús



118 dagar á sölu

sell

67.900.000 kr

584.841 kr/m²

BYR fasteignasala kynnir í einkasölu HLÍÐARGATA 7, 750 Fáskrúðsfjörður. Nýtt fjögurra herbergja parhús á einni hæð, útsýni. Smellið hér fyrir staðsetningu.

Húsið er timburhús, byggt árið 2024, samtals 116.1 m² að samkvæmt skráningu HMS.

Skipulag eignar: Anddyri, alrými með stofu, borðstofu og eldhúsi, þrjú herbergi, baðherbergi og geymsla/þvottahús.

Nánari upplýsingar hjá BYR fasteignasölu | byr@byrfasteignasala.is | 471 2858 |

Nánari lýsing:

Anddyri, tvöfaldur fataskápur, þaðan er innangengt í alrými, herbergi III og geymslu/þvottahús.

Alrými með stofu, borðstofu og eldhúsi, innbyggð lýsing, rennihurð er frá stofu út á steypta verönd aftan við húsið.

Eldhús, innrétting frá Scavolini, spanhelluborð og vifta, ofn í vinnuhæð. Gert er ráð fyrir uppþvottavél og ísskáp í innréttingu (fylgir ekki).

Herbergi I, hjónaherbergi, fjórfaldur fataskápur.

Herbergi II, tvöfaldur fataskápur.

Herbergi III, tvöfaldur fataskápur.

Baðherbergi, flísar á gólfi, fíbó plötur á veggjum, vaskinnrétting, upphengt salerni og sturtuklefi, gluggi.

Geymsla/þvottahús, innrétting með hækkun fyrir tvær vélar, vaskur í borði, inntök, gólfhitakista og rafmagnstafla, gluggi.

Gólfefni: Vínilparket, Sand Oak frá Parka er á alrými og herbergjum. Flísar á anddyri, baðherbergi og geymslu/þvottahúsi.

Húsið er upphitað með gólfhitalögn sem er steypt í gólfplötu, stýringar uppsettar á vegg.

Hlíðargata 7-9 er timbur einingarhús á staðsteyptum sökkli. Húsið er klætt að utan með bárujárnsklæðningu í bland við timbur.

Einhalla þak með báruðu þakstáli. Gluggar og hurðar eru ál/tré dökkir að lit. Lóð er frágengin með tveimur steyptum bílastæðum og stígum.

Yfirborð við inngang sem og sérafnotareiti er hellulagt. Önnur svæði eru frágengin með grasi.

Tengimöguleiki fyrir rafbílahleðslur eru í grennd við bílastæði. Steypt sorpskýli fyrir þrjár tunnur er á lóð.

Lóð er 508.4 m² leigulóð í eigu Fjarðabyggðar.

Skráning eignar samkvæmt fasteignayfirliti HMS:

Fasteignanúmer 253-3190. Hlíðargata 7.

Stærð: Parhús 116.1 m².

Fasteignamat: 44.500.000 kr.

Byggingarár: 2024.

Byggingarefni: Timbur.

Eignarhald:

01.0101- Séreign. Rými 01.0101 Íbúð 116.1 Brúttó m².

Fyrirhugað fullt fasteignamat samkvæmt Sýslumanni árið 2025 er kr. 41.050.000.

ALLAR NÁNARI UPPLÝSINGAR Á SKRIFSTOFU s. 471-2858 | byr@byrfasteignasala.is

Elín Káradóttir, löggiltur fasteignasali og eigandi – elin@byrfasteignasala.is

Hrönn Bjargar Harðardóttir, löggiltur fasteignasali / stílisti - hronn@byrfasteignasala.is

Opið alla virka daga milli kl. 09:00-16:00.

Um skoðunarskyldu:

Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveða á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum.

Byr fasteignasala skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að greiða af vegna kaupanna:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi -  0.8% af heildarfasteignamati fyrir einstaklinga  / 1.6% fyrir lögaðila

2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.

3. Lántökugjald lánastofnunar – sjá gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.

4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900 m.vsk.

5. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.

www.byrfasteign.is | Miðvangur 2-4, 700 Egilsstaðir | Byr fasteignasala

Kort af Hlíðargata 7

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og greiningu