HÚSASJÁ

Hraunberg 5A

01-0101 · 111 Reykjavík

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
30 myndir

230 m²

Stærð

5

Herbergi

3

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

1984

Byggingarár

732 m²

Lóð

Sérinngangur

Garður

Svalir



193 dagar á sölu

sell

124.900.000 kr

542.336 kr/m²

LANDMARK fasteignamiðlun ehf. og Andri Sigurðsson Löggiltur fasteignasali (s: 690 3111 / andri@landmark.is) og félagsmaður í Félagi fasteignasala kynna í einkasölu:

Vel skipulagt einbýlishús á hornlóð við Hraunberg 5A í Breiðholtinu. Skv. skráningu HMS er birt flatarmál eignarinnar 230,3 fm. Stór og fallegur garður í mikilli rækt. Skipti á minni eign kemur til greina.

Nánari lýsing eignar: Anddyri með fatahengi. Eldhús með hvítri innréttingu, helluborði, bökunarofni og tengi fyrir uppþvottavél. Rúmgóð borðstofa / stofa með útgengi á ca 40 fm sólpall. Baðherbergi er með flísalögðu gólfi, innrétting, baðkar með sturtuhengi og tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Vinnuherbergi með innréttingu og þar er stigi upp í ris þar sem eru tvö rúmgóð svefnherbergi og sjónvarpshol. Bílskúr með gryfju en það er búið að taka burt innkeyrsluhurðina og setja í glugga. Undir húsinu er kjallari sem hægt væri að steypa í gólf og setja glugga til að nýta. Í dag er hann óinnréttaður. Þakið er nýmálað.

Samþykktir uppdrættir bæði af húsinu og lóðinni, samþykkt 5 nóv 2024, sjá gögn hjá fasteignasala. Heimild til stækkunar allt að 40 fermetrum.

Eignin er vel staðsett í efra Breiðholti, stutt er í leikskóla, grunnskóla og framhaldsskóla og er önnur helsta þjónusta til staðar í göngufæri, eins og heilsugæsla, bókasafn, tónlistarskóli, stórmarkaðir, sundlaug, íþróttasvæði Leiknis, líkamsræktarstöð ofl.

Allar nánari upplýsingar veitir og bókun á skoðunartíma: Andri Sigurðsson Löggiltur fasteignasali í síma 690 3111 eða andri@landmark.is

Umsagnir viðskiptavina HÉR

Fylgdu mér á Facebook

Fylgdu mér á Instagram

Pantaðu FRÍTT söluverðmat á www.frittsoluverdmat.is

Skoðunar- og aðgæsluskylda:

Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 kveða á um að kaupendur þurfi að skoða fasteignir vel áður en tilboð er gert. LANDMARK fasteignamiðlun ráðleggur kaupendum að skoða ástand eignar og leita sér aðstoðar sérfræðinga ef þörf er á nánari skoðun.

Söluyfirlit:

Söluyfirlit er gert af fasteignasala samkvæmt lögum nr. 70/2015. Upplýsingar í yfirlitinu eru fengnar úr opinberum skrám, frá seljanda og ef þarf frá húsfélagi. Fasteignasali sannreynir upplýsingar með skoðun á eigninni en getur ekki sannreynt ástand þess sem ekki er aðgengilegt eða sýnilegt, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að greiða:

1. Stimpilgjald: 0,8% af fasteignamati (0,4% fyrir fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.

2. Þinglýsingargjald: 2.700 kr. fyrir hvert skjal.

3. Lántökugjald: Fer eftir gjaldskrá lánveitanda.

3. Þjónustusýslugjald: 79.000 kr. m/vsk.

3. Skipulagsgjald: Ef um nýbyggingu er að ræða, 0,3% af brunabótamáti þegar það er lagt á.

Heimasíða LANDMARK

Pantaðu frítt söluverðmat

Kort af Hraunberg 5A

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður við sambærilegar eignir
Sjá verðmat og greiningu
Mynd 1Mynd 2Mynd 3Mynd 4Mynd 5Mynd 6Mynd 7Mynd 8Mynd 9Mynd 10Mynd 11Mynd 12Mynd 13Mynd 14Mynd 15Mynd 16Mynd 17Mynd 18Mynd 19Mynd 20Mynd 21Mynd 22Mynd 23Mynd 24Mynd 25Mynd 26Mynd 27Mynd 28Mynd 29Mynd 30