HÚSASJÁ

Kleppsmýrarvegur 6

01-0209 · 104 Reykjavík

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
50 myndir

79 m²

Stærð

3

Herbergi

2

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

2024

Byggingarár

2603 m²

Lóð

Garður

Lyfta

Bílskúr

Geymsla



395 dagar á sölu

sell

76.900.000 kr

974.651 kr/m²

SÝNUM DAGLEGA!!

Kaupendur geta nýtt sér nýjan sjóð Öxar 20 sem styður kaupendur með því að fjárfesta með kaupanda allt að 20% af kaupverði.  Kynntu þér málið hér oxar20.is

RE/MAX fasteignasala, Guðlaug Jóna fasteignasali s. 661-2363 eða gulla@remax.is og Garðar Hólm fasteignasali s. 899-8811 eða gardar@remax.is kynna:

Til sölu nýjar íbúðir við Kleppsmýrarveg 6, Dugguvog 1 og Arkarvog 1 í Reykjavík. 51 íbúð eru í húsunum frá  62,8 fm – 141,8 fm. Verð frá 67,9 - 149,9 mkr.

Allar íbúðir eru með sér loftræstikerfi sem stuðlar að heilbrigði húss og íbúa, auk orkusparnaðar sem skilar allt að 80% endurnýting á varma.  Svalir með rennihurð. Sérmerkt bílastæði í bílakjallara fylgja hverri íbúð. Eignirnar eru lausar til afhendingar í byrjun árs 2025.

Við hönnun hússins er tekið mið af því að lágmarka viðhald. Húsið er einingahús frá BM Vallá og það því steypt við bestu skilyrði og gluggar eru úr ál-tré.

Smelltu hér fyrir heimasíðu verkefnisins og skilalýsingu.

Íbúð 209 er glæsileg 3ja herbergja íbúð á 2. hæð með stæði í bílakjallara. Samkvæmt Þjóðskrá Íslands er eignin 78,9 fm, þar af er geymsla í kjallara 11,4 fm. Útgengt á 6,5 fm svalir um góða rennihurð.

Einstaklega vönduð og falleg 3ja herbergja íbúð, merkt: 209 (Hæð 2). Íbúðin er fullbúin án gólfefna að undanskildum votrýmum,  sem verða flísalögð. Sérstæði í bílageymslu fylgir með.  Húsið er úr steyptum eininum og málað að utan. Loftræstikerfi með varmaskipti er í íbúðinni sem sér til þess að alltaf séu góð loftgæði, kostnaður við kyndingu minnkar og líkur á myglu verða mun minni.  Allar innréttingar eru frá Axis.

Íbúð: 0209

Hæð: 2

Tegund: 3ja herbergja

Stærð: 78,9 m²

Geymsla: 11,4 m²

Stæði í bílageymslu: Merkt B21

Nánari lýsing:

Eldhús: Falleg innrétting frá Axis með helluborði, bakarofni og gufugleypi. Eyja er í eldhúsi og er eldavélin þar.

Stofa/borðstofa: Í samliggjandi rými með eldhúsi. Opið og bjart rými. Útgengt út á 6,5 fm svalir um góða rennihurð.

Hjónaherbergi: Rúmgott með góðum fataskápum.

Herbergi II: Rúmgott með góðum fataskápum.

Baðherbergi: Flísar á gólfi og að hluta til veggjum, upphengt salerni, sturta með glerskilrúmi, innrétting undir og við handlaug, handklæðaofn. Innrétting fyrir þvottavél og þurrkara með skúffum undir og skápum yfir vélum.

Geymsla: Er í sameign í kjallara 11,4 fm.

Sameign: Í sameign í kjallara er hjóla- og vagnageymsla.

Bílastæði: Bílastæði í lokuðum bílakjallara merk B21.

Helstu eiginleikar:Loftræstikerfi með varmaskiptiRennihurðar út á svalirGólfsíðir gluggar við svalirStæði í bílageymsluMikið skápaplássInnréttingar frá AxisHúsið:

Kleppsmýrarvegur 6, Dugguvogur 1 og Arkarvogur 1 er glæsilegt og vandað fjölbýlishús byggt af Öxar ehf.

Húsið er á 6 hæðum auk bílakjallara, alls 51 íbúðir. Húsið er gert úr forsteyptum einingum frá BM Vallá sem eru framleiddar við. úrvals skilyrði. Gluggar eru álklæddir viðargluggar með tvöföldu gleri.

*Myndirnar sem birtast á auglýsingu íbúðarinnar eru ekki endilega myndir af íbúðinni sjálfri heldur einungis til þess að gefa sýn á útlit eignanna þegar þær eru tilbúnar.

Nánari upplýsingar veita:

Garðar Hólm löggiltur fasteignasali í síma 899-8811 / gardar@remax.is

Guðlaug Jóna löggiltur fasteignasali í síma 661-2363 / gulla@remax.is

​​​​​​​Bjarný Björg löggiltur fasteignasali í síma 694-2526 / bjarny@remax.is

Kort af Kleppsmýrarvegur 6

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður við sambærilegar eignir
Sjá verðmat og greiningu
Mynd 1Mynd 2Mynd 3Mynd 4Mynd 5Mynd 6Mynd 7Mynd 8Mynd 9Mynd 10Mynd 11Mynd 12Mynd 13Mynd 14Mynd 15Mynd 16Mynd 17Mynd 18Mynd 19Mynd 20Mynd 21Mynd 22Mynd 23Mynd 24Mynd 25Mynd 26Mynd 27Mynd 28Mynd 29Mynd 30Mynd 31Mynd 32Mynd 33Mynd 34Mynd 35Mynd 36Mynd 37Mynd 38Mynd 39Mynd 40Mynd 41Mynd 42Mynd 43Mynd 44Mynd 45Mynd 46Mynd 47Mynd 48Mynd 49Mynd 50