HÚSASJÁ

Valshlíð 3

01-0408 · 102 Reykjavík

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
11 myndir

84 m²

Stærð

3

Herbergi

2

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

2025

Byggingarár

6678 m²

Lóð

Svalir

Lyfta

Hjólastólaaðgengi

Þjónustuíbúð

Geymsla

Heitur pottur



518 dagar á sölu

sell

108.900.000 kr

1.296.429 kr/m²

Pálsson Fasteignasala kynnir:

Glæsileg og vel skipulögð 3ja herbergja íbúð á 4. hæð í Hlíðarhorni.

Íbúðin er staðsett í fyrsta áfanga Hlíðarhorns, glæsilegri nýbyggingu á frábærum stað í miðbænum. Íbúðin er ætluð 50 ára og eldri.

Þrír kaupmöguleikar í boði.

*Hlutdeildarkaup

*Þarft einungis 10% útborgun

*Búseturéttur

Nánari upplýsingar varðandi kaupmöguleika, eignina og skoðun fást hjá:

Pálsson fasteignasölu, palsson@palssonfasteignasala.is S. 764-7474

www.eignavakt.is

www.verdmat.is

Góð ráð fyrir kaupendur / seljendur

Birt stærð er 84 fm þar af 6,1 fm geymsla í kjallara. Útisvæði er 24,4 fm.

Íbúðin skiptist í anddyri, eldhús og stofu/borðstofu í opnu rými með útgengi á svalir og sólríkar þaksvalir, tvö svefnherbergi, fataherbergi og baðherbergi. Íbúðin afhendist með gráum, möttum sérsmíðuðum innréttingum frá Nobilia/GKS, raftækjum frá Siemens í svörtu stáli, hágæða blöndunartækjum frá Mariner Kobra í byssubláu stáli og slitsterku dökku Berry Alloc Elite gólfefni. Íbúðin er útbúin sér loftræstikerfi með varmaendurvinnslu. Innréttingarþema íbúðar er Mói 2.

Nánari lýsing:

Í anddyri eru góðir fataskápar.

Gengið er beint inn í rúmgott alrými með eldhúsi með eyju og stofu/borðstofu með gólfsíðum gluggum og útgengi á svalir sem snúa inn í inngarð og rúmlega 17 fm þaksvalir með tengi fyrir heitan pott.

Taupe grá eldhúsinnrétting með mattri áferð, svartur quartz-steinn á borðum og milli skápa og blöndunartæki úr byssubláu stáli. Öll eldhúsraftæki eru í hæsta gæðaflokki. Innbyggður ísskápur og vínkælir.

Rúmgott hjónaherbergi með góðu fataherbergi.

Svefnherbergi með fataskáp.

Baðherbergi er með “walk-in” sturtu með hertu gleri, handklæðaofni og upphengdu salerni. Gráar steinflísar á gólfi og veggjum, taupe grá innrétting með mattri áferð og speglaskápur með lýsingu. Innbyggð blöndunartæki úr byssubláu stáli.

Afmörkuð aðstaða fyrir þvottavél og þurrkara á baði.

Sérgeymsla íbúðar í kjallara er merkt 0031.

Í kjallara Hlíðarhorns eru sameiginlegar hjóla- og vagnageymslur og bílakjallari með fyrirkomulagi samnýtingar þar sem íbúar munu hafa forgang.

Hlíðarhorn er glæsileg 3-5 hæða nýbygging með 10 stigahúsum sem mynda hring um opinn innri garð. Í Hlíðarhorni verða 195 fjölbreyttar íbúðir, 2-5 herbergi að stærð. Hver íbúð er með svölum, þaksvölum eða sérafnotareit í innri garði og hönnuð til að hámarka náttúrulega birtu og nýtingu fermetra. Allar íbúðir eru fullloftræstar og lögð er sérstök áhersla á hljóðvist í hverri íbúð. Byggingin er staðsteypt, einangruð og klædd með mismunandi lituðum álklæðningum og bambus, með gluggum úr ál/við og undir byggingu er bílakjallari með fyrirkomulagi samnýtingarar. Hlíðarhorn er miðsvæðis í Reykjavík, í póstnúmeri 102, á jaðri Hlíðahverfis og Þingholta, við fætur Öskjuhlíðar. Öll helsta þjónusta er því í göngu/hjólafæri, samgöngur, skólar, íþróttaaðstaða, iðandi mannlíf og stórir vinnustaðir.

Myndir í auglýsingu geta verið úr annari íbúð með sama innréttingaþema.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).

Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3,800 af hverju skjali.

Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.

Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr. kauptilboð.

Kaupendur munu greiða skipulagsgjald þegar það verður innheimt sem er 0,3 % af endanlegu brunabótamati.

Um skoðunarskyldu:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Pálsson fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Kort af Valshlíð 3

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður við sambærilegar eignir
Sjá verðmat og greiningu
Mynd 1Mynd 2Mynd 3Mynd 4Mynd 5Mynd 6Mynd 7Mynd 8Mynd 9Mynd 10Mynd 11