HÚSASJÁ

Valshlíð 3

01-0406 · 102 Reykjavík

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
10 myndir

118 m²

Stærð

5

Herbergi

4

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

2025

Byggingarár

6678 m²

Lóð

Svalir

Lyfta

Hjólastólaaðgengi

Þjónustuíbúð

Geymsla

Þvottahús

Heitur pottur



522 dagar á sölu

sell

149.900.000 kr

1.268.190 kr/m²

Pálsson Fasteignasala kynnir:

Stórglæsileg 5 herbergja útsýnisíbúð á 4. hæð í Hlíðarhorni.

Íbúðin er staðsett í fyrsta áfanga Hlíðarhorns, glæsilegri nýbyggingu á frábærum stað í miðbænum. Íbúðin er ætluð 50 ára og eldri.

* Þaksvalir með tengi fyrir potti

* Quartz steinn á innréttingum

* Hækkuð lofthæð

Nánari upplýsingar varðandi kaupmöguleika, eignina og skoðun fást hjá:

Pálsson fasteignasölu, palsson@palssonfasteignasala.is S. 764-7474

www.eignavakt.is

www.verdmat.is

Góð ráð fyrir kaupendur / seljendur

Birt stærð er 118,2 fm þar af 11,9 fm geymsla í kjallara. Útisvæði er samtals 33 fm.

Íbúðin skiptist í anddyri, eldhús og stofu/borðstofu í opnu rými með útgengi á vestursvalir og rúmgóðar þaksvalir, fjögur svefnherbergi, baðherbergi og þvottaherbergi. Íbúðin afhendist með leirlitum sérsmíðuðum innréttingum frá Nobilia/GKS með inngreiptum höldum, gæðaraftækjum frá Siemens og Witt í hæsta gæðaflokki, hágæða ítölskum blöndunartækjum frá Mariner Rubinetterie og sterku og vönduðu gólfefni frá Álfaborg. Íbúðin er útbúin sér loftræstikerfi með varmaendurvinnslu. Innréttingarþema íbúðar er Mjöll 3.

Nánari lýsing:

Í anddyri er góður fataskápur.

Gengið er beint inn í rúmgott alrými með eldhúsi með stórri eyju og vaski og stofu/borðstofu með útgengi á vestursvalir og tæplega 30 fm þaksvalir með tengi fyrir heitan pott.

Leirlituð eldhúsinnrétting með mattri áferð, ljósyrjóttur quartz-steinn á borðum og milli skápa og blöndunartæki úr burstuðu krómi. Innbyggður ísskápur og vínkælir. Öll eldhúsraftæki eru í hæsta gæðaflokki.

Rúmgott hjónaherbergi með góðum fataskápum.

Þrjú rúmgóð svefnherbergi með fataskápum.

Baðherbergi er með “walk-in” sturtu með hertu gleri, handklæðaofni og upphengdu salerni. Leirljósar steinflísar á gólfi og veggjum, leirlituð innrétting og speglaskápur með lýsingu. Blöndunartæki úr burstuðu krómi.

Sér þvottaherbergi inn af baðherbergi með ljósum innréttingum og tengi fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð.

Sérgeymsla íbúðar í kjallara er merkt 0028.

Í kjallara Hlíðarhorns eru sameiginlegar hjóla- og vagnageymslur og bílakjallari með fyrirkomulagi samnýtingar þar sem íbúar munu hafa forgang.

Hlíðarhorn er glæsileg 3-5 hæða nýbygging með 10 stigahúsum sem mynda hring um opinn innri garð. Í Hlíðarhorni verða 195 fjölbreyttar íbúðir, 2-5 herbergi að stærð. Hver íbúð er með svölum, þaksvölum eða sérafnotareit í innri garði og hönnuð til að hámarka náttúrulega birtu og nýtingu fermetra. Allar íbúðir eru fullloftræstar og lögð er sérstök áhersla á hljóðvist í hverri íbúð. Byggingin er staðsteypt, einangruð og klædd með mismunandi lituðum álklæðningum og bambus, með gluggum úr ál/við og undir byggingu er bílakjallari með fyrirkomulagi samnýtingarar. Hlíðarhorn er miðsvæðis í Reykjavík, í póstnúmeri 102, á jaðri Hlíðahverfis og Þingholta, við fætur Öskjuhlíðar. Öll helsta þjónusta er því í göngu/hjólafæri, samgöngur, skólar, íþróttaaðstaða, iðandi mannlíf og stórir vinnustaðir.

Myndir í auglýsingu geta verið úr annari íbúð með sama innréttingaþema.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).

Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3,800 af hverju skjali.

Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.

Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr. kauptilboð.

Kaupendur munu greiða skipulagsgjald þegar það verður innheimt sem er 0,3 % af endanlegu brunabótamati.

Um skoðunarskyldu:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Pálsson fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Kort af Valshlíð 3

Fáðu nýja innsýn á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og samanburð
Valshlíð 3, 01-0406 | Húsasjá