HÚSASJÁ

Valshlíð 3

01-0108 · 102 Reykjavík

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
9 myndir

77 m²

Stærð

2

Herbergi

1

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

2025

Byggingarár

6678 m²

Lóð

Lyfta

Hleðslustöð

Hjólastólaaðgengi

Geymsla



519 dagar á sölu

sell

75.900.000 kr

986.996 kr/m²

Pálsson Fasteignasala kynnir:

Stílhrein 2ja herbergja íbúð á 1. hæð á norð-austurhlið Hlíðarhorns.

Íbúðin er staðsett í fyrsta áfanga Hlíðarhorns, glæsilegri nýbyggingu á frábærum stað í miðbænum.

Þrír kaupmöguleikar í boði.

* Hlutdeildarkaup

* Þarft einungis 10% útborgun

* Búseturéttur

Nánari upplýsingar varðandi kaupmöguleika, eignina og skoðun fást hjá:

Pálsson fasteignasölu, palsson@palssonfasteignasala.is S. 764-7474

www.eignavakt.is

www.verdmat.is

Góð ráð fyrir kaupendur / seljendur

Birt stærð er 76,9 fm þar af 5,7 fm geymsla í kjallara.

Íbúðin skiptist í anddyri, eldhús og stofu/borðstofu í opnu rými með útgengi á svalir, svefnherbergi og baðherbergi. Íbúðin afhendist með vönduðum sérsmíðuðum innréttingum frá Nobilia/GKS, gæðaraftækjum frá Siemens, hágæða ítölskum blöndunartækjum frá Mariner Rubinetterie, og sterku og vönduðu gólfefni frá Álfaborg. Íbúðin er útbúin sér loftræstikerfi með varmaendurvinnslu. Innréttingarþema íbúðar er Mjöll 1.

Nánari lýsing:

Í anddyri er rúmgóður fataskápur. Anddyri opnast beint inn í alrými.

Gengið er inn í bjart og vel skipulagt alrými með eldhúsi og stofu/borðstofu. Hvít eldhúsinnrétting frá Nobilia og hvítmunstraður quartz-steinn á borðum.

Stofa/borðstofa er björt og rúmgóð með útgengi á 12,6 fm sólpall.

Rúmgott svefnherbergi með góðu fataherbergi.

Baðherbergi er með hvítri innréttingu og speglaskáp, sturtu með glervegg, handklæðaofni og upphengdu salerni. Aðstaða fyrir þvottavél og þurrkara. Flísar á gólfi og hluta veggja skv þemalýsingu.

Sérgeymsla íbúðar er í kjallara ásamt sameiginlegum hjóla- og vagnageymslum og bílakjallari með fyrirkomulagi samnýtingar þar sem íbúar munu hafa forgang.

Hlíðarhorn er glæsileg 3-5 hæða nýbygging með 10 stigahúsum sem mynda hring um opinn innri garð. Í Hlíðarhorni verða 195 fjölbreyttar íbúðir, 2-5 herbergi að stærð. Hver íbúð er með svölum, þaksvölum eða sérafnotareit í innri garði og hönnuð til að hámarka náttúrulega birtu og nýtingu fermetra. Allar íbúðir eru fullloftræstar og lögð er sérstök áhersla á hljóðvist í hverri íbúð. Byggingin er staðsteypt, einangruð og klædd með mismunandi lituðum álklæðningum og bambus, með gluggum úr ál/við og undir byggingu er bílakjallari með fyrirkomulagi samnýtingarar. Hlíðarhorn er miðsvæðis í Reykjavík, í póstnúmeri 102, á jaðri Hlíðahverfis og Þingholta, við fætur Öskjuhlíðar. Öll helsta þjónusta er því í göngu/hjólafæri, samgöngur, skólar, íþróttaaðstaða, iðandi mannlíf og stórir vinnustaðir.

Myndir í auglýsingu geta verið úr annari íbúð með sama innréttingaþema.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).

2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3,800 af hverju skjali.

3. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.

4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.

5. Kaupendur munu greiða skipulagsgjald þegar það verður innheimt sem er 0,3 % af endanlegu brunabótamati.

Um skoðunarskyldu:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Pálsson fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Kort af Valshlíð 3

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður við sambærilegar eignir
Sjá verðmat og greiningu
Mynd 1Mynd 2Mynd 3Mynd 4Mynd 5Mynd 6Mynd 7Mynd 8Mynd 9