Þórunnarstræti 106
01-0102 · 600 Akureyri



141 dagar á sölu
54.500.000 kr
602.210 kr/m²
Fasteignamarkaðurinn ehf., s. 570-4500 kynnir til sölu 90,5 fermetra 3ja herbergja íbúð á miðhæð hússins nr. 106 við Þórunnarstræti á Akureyri. Sérinngangur er í íbúðina. Þrjár íbúðir eru til sölu í húsinu.
Eignin er vel staðsett í göngufæri við miðbæinn og stutt er í sundlaug Akureyrar.
Lýsing eignar:
Íbúðin skiptist í forstofu, hol, eldhús, stofu, tvö svefnherbergi og baðherbergi.
Forstofa, flísar á gólfi.
Gangur, með fataskáp. Parket á gólfi.
Eldhús, með viðarinnréttingu og flísum á milli skápa. Korkur á gólfi.
Tvö svefnherbergi, bæði rúmgóð og bæði parketlögð.
Stofa, rúmgóð. Parket á gólfi.
Baðherbergi, með lítilli innréttingu og upphengdu salerni. Flísalagt í gólf og veggi.
Húsið hefur verið endurnýjað að miklu leyti á síðustu árum skv. upplýsingum frá seljanda eignarinnar:Nýjar inntakslagnir fyrir heitt og kalt vatn.Nýr brunnur í lóð og frárennslislagnir í lóð eru nýjar.Nýr ljósleiðari.Inntaksrör hafa verið lögð í bílskúr.Húsið var málað að utan og innan árið 2024.Þakrennur og niðurfallsrör yfirfarin og endurnýjuð árið 2024.Þakjárn var endurnýjað fyrir nokkrum árum og er í lagi.Raflagnir og vatnslagnir hafa verið endurnýjaðar að hluta.Ný rafmagnstafla fyrir allar íbúðir + fyrir allt húsið (í sameign).Ný inntaksgrind fyrir vatn.Ný hitalögn í bílaplani.Búið er að jarðvegsskipta allt í kringum húsið og drena.Nýsteypt bílaplan og nýsteyptar gangstéttar.Nýjar svalir á efri hæð + ný handrið á efri og neðri svölum.
Allar nánari upplýsingar eru veittar á skrifstofu Fasteignamarkaðarins ehf. í síma 570-4500 eða á netfanginu fastmark@fastmark.is.

Dýpri greining á Húsasjá
- Verðmat fasteignar
- Sölusaga og verðþróun
- Samanburður við sambærilegar eignir
























