Ránarstígur 7
01-0103 · 550 Sauðárkróki



609 dagar á sölu
83.900.000 kr
679.352 kr/m²
LANDMARK fasteignamiðlun, Júlíus Jóhannsson og Monika Hjálmtýsdóttir, lögg. fasteignasalar (s: 823-2600 / julius@landmark.is) kynna:
Ránarstígur 7 á Sauðárkróki - Nýtt og glæsilegt fullbúið 123,5 m2 endaraðhús á einni hæð, þar af 35,4 m2 innbyggður bílskúr.
Friðrik Jónsson ehf., traustur byggingaverktaki á Sauðárkróki er framleiðandi raðhúsanna og hefur lagt mikinn metnað í fagleg vinnubrögð, gott efnisval og vandaðan frágang.
Eignin skiptist í forstofu, tvö svefnherbergi, eldhús, stofu, baðherbergi, þvottahús og bílskúr. Sér hellulagður afnotareitur er út frá stofu og sömuleiðis er innkeyrsla steypt og hellulögð með snjóbræðslu. Rafhleðslustöð er til staðar og fylgir.
Birtar stærðir skv. HMS: Íbúð er 88,1 m2 merkt 0103 og bílskúr er 35,4 m2 merkt 0106, samtals 123,5 m2 að stærð.
*Eignin afhendist fullbúin með gólfefnum. Gólfhiti með sér stýringu í hverju herbergi.
*Aukin lofthæð í alrými og fylgja öll ljós sem einnig er hægt að stýra með appi.
*Vandaðar innréttingar frá IKEA, innbyggður ísskápur og uppþvottavél og tvöfaldur bakarofn/örbylgjuofn í vinnuhæð.
*Loftskiptikerfi sem eykur loftgæði, dregur úr rakasöfnun, endurnýtir varma, minnkar ryk og sparar orku.
*Sér hellulagður afnotareitur út frá stofu, innkeyrsla og gönguleiðir hellulagðar/steyptar með snjóbræðslu og tveimur bílastæðum. Ídráttarlagnir fyrir heitan pott.
*Rafbílahleðsla til staðar og fylgir.
*Vönduð klæðning á húsinu.
*Bílskúr rúmgóður og bjartur með rafdrifinni bílskúrshurð og tveimur inngönguhurðum.
Eignin er tilbúin til afhendingar við kaupsamning
Sækja HÉR söluyfirlit strax
Skoða HÉR eignina í 3D
Nánari lýsing:
Forstofa er með fataskáp, flísar á gólfi.
Svefnherbergi I er rúmgott með fataskáp, harðparket á gólfi.
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf með upphengdu salerni, sturtu, hvítri baðinréttingu með speglaskáp yfir með lýsingu og vegghengdum skáp.
Eldhús er með hvítri háglans innréttingu með góðu skáparými, innbyggðri uppþvottavél, innbyggðum ísskáp, tvöföldum bakararofni/örbylgjuofni í vinnuhæð og helluborði með innbyggðu útsogi. Gott geymslupláss, harðparket á gólfi.
Stofa er björt og rúmgóð, harðparket á gólfi. Útgengi á sérafnotareit.
Svefnherbergi II er rúmgott með fataskáp, harðparket á gólfi.
Þvottahús er á milligangi inn í bílsskúr með þvottahúsinnréttingu, tengi fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð, skolvaski, flísar á gólfi.
Bílskúr er rúmgóður með rafdrifinni bílskúrshurð, gluggum og tveimur inngönguhurðum.
Húsið er steypt, þ.e.a.s. undirstöður, útveggir, berandi innveggir og þak. Húsið er einangrað að utan og útveggir eru klæddir með álklæðningu á álundirkerfi. Þak er einangrað með steinull og þreföldu rakavarnalagi. Gluggar eru tré / ál og viðhaldsléttir. Eignin afhendist fullbúin með gólfefnum, vönduðum innréttingum og tækjum, og hita í gólfum með sér stýringu í hverju herbergi. Lofthæð er 3,30 m í stofu, borðstofu og eldhúsi og 2,70 m í herbergjum, þvottahúsi og á baði.
Vandað harðparket frá Byko er á gólfi íbúðarrýmis nema á baðherbergi og þvottahúsi sem er flísalagt. Innnihurðir eru hvítar mattar frá Byko, eldhúsinnrétting er hvít háglans frá IKEA með ljúflokun (25 ára ábyrgð). Tæki í eldhúsi eru af vandaðri gerð frá IKEA innbyggður ísskápur og uppþvottavél, tvöfaldur bakarofn/örbylgjuofn og helluborð með innbyggðu útsogi (5 ára ábyrgð á raftækjum í eldhúsi). Öll ljós fylgja með. Hljóðdempandi plötur eru í loftum alrýma frá Áltak.
Nánar varðandi útlit, eiginleika og efnisval vísast í Skilalýsingu byggingaraðila, dags. í júlí 2024.
Fasteignamat 2026: 73.700.000 kr.
Allar nánari upplýsingar veita:
Júlíus Jóhannsson, lögg. fasteignasali
í félagi FF / julius@landmark.is/ 823-2600
Monika Hjálmtýsdóttir, viðskiptafr., lögg. fasteignasali
í félagi FF / monika@landmark.is / 823-2800
Láttu okkur selja fyrir þig! Við veitum þér sölu- og kaupráðgjöf án skuldbindingarSkoðunar- og aðgæsluskylda:
Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 kveða á um að kaupendur þurfi að skoða fasteignir vel áður en tilboð er gert. LANDMARK fasteignamiðlun ráðleggur kaupendum að skoða ástand eignar og leita sér aðstoðar sérfræðinga ef þörf er á nánari skoðun.
Söluyfirlit:
Söluyfirlit er gert af fasteignasala samkvæmt lögum nr. 70/2015. Upplýsingar í yfirlitinu eru fengnar úr opinberum skrám, frá seljanda og ef þarf frá húsfélagi. Fasteignasali sannreynir upplýsingar með skoðun á eigninni en getur ekki sannreynt ástand þess sem ekki er aðgengilegt eða sýnilegt, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða:
1. Stimpilgjald: 0,8% af fasteignamati (0,4% fyrir fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: 2.700 kr. fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald: Fer eftir gjaldskrá lánveitanda.
3. Þjónustusýslugjald: 79.000 kr. m/vsk.
3. Skipulagsgjald: Ef um nýbyggingu er að ræða, 0,3% af brunabótamáti þegar það er lagt á.
Heimasíða LANDMARK
Pantaðu frítt söluverðmat

Fáðu nýja innsýn á Húsasjá
- Verðmat fasteignar
- Sölusaga og verðþróun
- Samanburður sambærilegra eigna


































