HÚSASJÁ

Hulduhólar 9

Lóð · 803 Selfossi

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
8 myndir

9640 m²

Lóð



389 dagar á sölu

sell

9.500.000 kr

Hús fasteignasala og Snorri Sigurfinnsson löggiltur fasteignasali kynnir í einkasölu.

Hulduhólar 9. Ný eignarlóð fyrir íbúðarhús, bílskúr og gestahús í Skálmholtslandi. Tæpur 1 ha. 9.640 fm

Alls eru 11 lóðir seldar á svæðinu.

Allar lagnir, rafmagn, heitt og kalt vatn og ljósleiðari tilbúnar við lóðarmörk.

Um er að ræða nýtt byggingarland í Skálmholtslandi. Íbúðalóðir eru frá 7.738 -16.428 fm að stærð.

Nýtingarhlutfall lóða allt að 0,05 sem þýðir að á 10.000 fm lóð (1 ha) má byggja 500 fm.

Þægilegt byggingarland og grunnt niður á fast. Örstutt í malarnámur.

Skemmtileg og góð staðsetning þar sem allar árstíðir eiga sinn sjarma. Sutt í margar af fallegustu náttúruperlum Suðurlands. Fallegt útsýni m.a. til Heklu, Eyjafjallajökuls og Tindfjalla.

Skálmholtsland er efst í Flóahreppi og ekið er inn á landið til austurs af Skeiða- og Hrunamannavegi (vegur nr. 30)

Um 15 mín akstur er á Selfoss.

Alls eru skipulagðar 47 lóðir og er um helmingur þeirra komnar í sölumeðferð, heiti gatna er Hulduhólar og Maríuhólar.

Hið skipulagða land er á Sveitarfélagsmörkum Flóahrepps og Skeiða- og Gnúpverjahrepps. Flóahreppur annast almenna þjónustu á svæðinu s.s. skólaakstur, snjómokstur og sorphirðu. Ath að samkvæmt deiliskipulagi á eftir að breyta innkomu inn á svæðið.

Í stofnbrautum innan svæðis verður neysluvatn (frá Flóahreppi) hitaveita (úr Áshildarmýri, rafmagn (Rarik) og ljósleiðari.

Stofnbrautir fyrir þær lóðir sem eru komnar í sölu eru tilbúnar að lóðarmörkum allra lóða.

Í deiliskipulagsskilmálum koma fram nánari upplýsingar um byggingargerð húsa. Byggingarefni er frjálst en lögð er áhersla á að öll hús og mannvirki fari vel í umhverfi og verði í jarðlitum. Við gróðursetningu skal gæta þess að trjágróður komi ekki til með að skyggja á útsýni nágranna og forðast ágengar tegundir. Óheimilt er að láta lausamuni standa innan lóða til lengri tíma.

Gert er ráð fyrir rotþró á hverri lóð. Deiliskipulagsskilmálar eru hluti af kynningargögnum.

Nánari upplýsingar veitir Snorri Sigurfinnsson, löggiltur fasteignasali s. 4971155 eða snorri@husfasteign.is

Bókið einkaskoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum að vegna kaupanna.

1. Stimpilgjöld af kaupsamningi - 0,8 % af heildarfasteignamati og 1,6% fyrir lögaðila.

2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. kr. 2700 af hverju skjali.

3. Lántökugjald lánastofnunnar. Nánari upplýsingar t.d. á heimasíðum lánastofnanna.

4. Umsýslugjald til fasteignasölu

Skoðunarskylda:  Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill HÚS fasteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.

Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.

Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Kort af Hulduhólar 9

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður við sambærilegar eignir
Sjá verðmat og greiningu
Mynd 1Mynd 2Mynd 3Mynd 4Mynd 5Mynd 6Mynd 7Mynd 8