Elsugata 10
01-0102 · 815 Þorlákshöfn



180 dagar á sölu
44.000.000 kr
339.506 kr/m²
Hólmar Björn Sigþórsson löggiltur fasteignasali og Helgafell fasteignasala og kynna í einkasölum Elsugötu 10, 815 Þorlákshöfn:
Um er að ræða nýtt og vel skipulagt 3 herbergja miðjuraðhús með innbyggðum bílskúr. Birt stærð eignar er 129,6 fm og þar af er bílskúr 27,3 fm. Húsið er hluti af Elsugötu 8, 10 og 12 sem staðsett eru í Vesturbyggð sem er glænýtt hverfi í vestur jaðri Þorlákshafnar. Eignin afhendast á byggingarstigi 2 fokheld bygging eða á byggingarstigi 3 fullgerð bygging að utan og tilbúin til innréttingar.
Skipulag eignarinnar: Anddyri, tvö svefnherbergi, stofa / borðstofa og eldhús í opnu alrými, baðherbergi og þvottahús.
SMELLIÐ HÉR TIL AÐ FÁ SENT SÖLUYFIRLIT STRAX
SKILALÝSING Á BYGGINGARSTIGI 2 - FOKHELD BYGGING:
Afhending: 1. nóvember 2025.
Verð: 44 milljónir.
Frágangur utanhúss:
- Húsið er byggt úr timbri og klætt að utan með gráu steni.
- Svartar vindskeiðar verða komnar og fúavarðar.
- Þakrennur og niðurföll verða frágengin.
- Svartir gluggar og hurðir verða fullfrágengin og glerjað.
- Aksturshurð verður í bílskúrum.
- Lóðin verður grófjöfnuð.
Frágangur innanhúss:
- Kraftsperrur eru í húsinu og öll loft niðurtekin.
- Ísteyptar hitalagnir eru í öllum gólfum.
- Komnir verða skilveggir milli notendaeininga einangraðir og klæddir með tvöföldu gifsi, sama á við um skilveggi bílgeymslu.
- Engir aðrir milliveggir né einangrun verður komin í húsið.
Almennt:
Seljandi greiðir tengigjöld rafmagns og hita sem og lóðargjald. Ath. að þetta er almennt kostnaður kaupanda á bst. 2, en seljandi hefur greitt þessi gjöld sem eru inn í söluverðinu. Búið er að tengja hitaveitu og rafmagn við húsið.
Kaupandi greiðir 0,3 % skipulagsgjald þegar það er lagt á við endanlegt brunabótamat.
SKILALÝSING Á BYGGINGARSTIGI 3 - FULLGERÐ BYGGING AÐ UTAN OG TILBÚIN TIL INNRÉTTINGAR:
Afhending: 1. desember 2025.
Verð: 58,6 milljónir.
Frágangur utanhúss:
- Húsið er byggt úr timbri og klætt að utan með gráu steni.
- Svartar vindskeiðar verða komnar og fúavarðar.
- Þakrennur og niðurföll verða frágengin.
- Svartir gluggar og hurðir með verða fullfrágengin og glerjaðir.
- Aksturshurð verður í bílskúrum.
- Lóðin verður grófjöfnuð.
Frágangur innanhúss:
- Kraftsperrur eru í húsinu og öll loft niðurtekin.
- Ísteyptar hitalagnir verða í öllum gólfum og verður tengigrind fyrir hita frágengin, vatnslagnir komnar í veggi.
- Rafmagnstaflan er frágengin miða við byggingarstig 3. Búið er að leggja út ídráttarrör og dósir og draga fyrir vinnurafmagni.
- Allir milliveggir verða komnir og verða klæddir með nótuðum spónaplötum og loftin klædd með loftaþiljum. Sparslað yfir hefti og ójöfnur og grunnað í hvítum lit.
Almennt:
Seljandi greiðir tengigjöld rafmagns og hita sem og lóðargjald.
Kaupandi greiðir 0,3 % skipulagsgjald þegar það er lagt á við endanlegt brunabótamat.
Staðsetning: Smellið hér.
Byggingaraðili: Hrímgrund ehf.
Nánari upplýsingar og bókun á skoðun gefur Hólmar Björn Sigþórsson, löggiltur fasteignasali og félagsmaður í Félagi fasteignasala í s. 893 3276 eða í netfangið holmar@helgafellfasteignasala.is.
Þorlákshöfn:
Þorlákshöfn er frábær staður til að búa sér notalegt heimili og ala upp börn. Vinalegur og barnvænn bær í nálægð við aðra þéttbýliskjarna. Í dag er öll þjónusta við barnafólk og fjölskyldur í Þorlákshöfn til fyrirmyndar. Stuttar vegalengdir einfalda allar samgöngur og börnin geta gengið örugg í skóla og tómstundastarf. Skólarnir eru eitt af trompum bæjarins þar sem stutt er vel við bakið á þeim sem þess þurfa. Rúmgóður og vel búinn grunnskóli með persónulegum samskiptum á milli heimilis og skóla. Leikskólinn Bergheimar er fimm deilda leikskóli fyrir tveggja til sex ára börn og í Vesturbyggð nýju hverfi er verið að byggja leikskólann Hraunheima. Öll íþróttaaðstaða í Þorlákshöfn er mjög góð og ákaflega vel nýtt af bæjarbúum. Margir nýir íbúar hafa nefnt að í stað þess að festa kaup á íbúð á höfuðborgarsvæðinu hafi verið hægt að fá íbúðarhús í Þorlákshöfn og búa fjölskyldunni stærra og rúmbetra heimili í barnvænu umhverfi. ----------------------------------------------------------
Heimasíða Helgafells fasteignasölu
Facebook síða Helgafells
- Hafðu samband og við gerum söluverðmat á eign þinni, þér að kostnaðarlausu -
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af fasteignamati fyrir einstaklinga (0,4% fyrir fyrstu kaupendur) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - 3.800 kr. af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt í kringum 50þ., oft lægra eða ekkert lántökugjald fyrir fyrstu kaup. Nánari upplýsingar á heimasíðum lánastofnana.
4. Þjónustusamningur milli kaupanda og fasteignasölu - Kr. 92.380,- m/vsk.
Helgafell fasteignasala bendir kaupendum á ríka skoðunarskyldu sem kveðið er á í lögum um fasteignakaup nr.40/2002. Skorað er á kaupendur að kynna sér vandlega ástand fasteigna og nýta til þess aðstoð sérfræðinga. Sömuleiðis er bent á upplýsingaskyldu seljanda samanber 26.gr. Laga nr.40/2002 um fasteignakaup og 25.gr. laga nr.26/1994 um fjöleignarhús. Seljanda er bent á að kynna sér tilvitnaðar lagagreinar.

Fáðu nýja innsýn á Húsasjá
- Verðmat fasteignar
- Sölusaga og verðþróun
- Samanburður sambærilegra eigna









