HÚSASJÁ

Hestamýri 2B

01-0211 · 225 Garðabæ

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
33 myndir

98 m²

Stærð

1

Herbergi

1

Svefnherbergi

2024

Byggingarár

16971 m²

Lóð

Garður

Lyfta

Bílskúr

Geymsla

Þvottahús

Heitur pottur



235 dagar á sölu

sell

86.900.000 kr

884.929 kr/m²

Háborg fasteignasala og Katla kynna með stolti í endursölu glæsilega tveggja herbergja íbúð á 2. hæð við Hestamýri 2B, Álftanesi.

Um er að ræða vel skipulagða og bjarta 2ja herbergja, 98,2 fm íbúð í nýlegu lyftuhúsi, þar af er 17,9 fm geymsla í kjallara og 8,5 fm suðursvalir. Sérmerkt bílastæði í bílakjallara fylgir eigninni merkt B12. Íbúðin er hönnuð af innanhúshönnuði og skartar vönduðum, sérsmíðuðum innréttingum frá Parka, quartz borðplötum, ítölskum flísum frá Porcelanosa og 12 mm harðparketi. Gólfhiti er í öllum rýmum og loftskiptikerfi með varmaendurvinnslu tryggir aukin þægindi og orkusparnað. Vandað efnisval og frágangur, klætt með álklæðningu og bambus harðvið. Sameiginleg hjóla- og bílageymsla í kjallara.

Nánari upplýsingar veitir Katla Hanna Steed, löggiltur fasteignasali, í síma 822-1661 eða katla@haborg.is

Nánari lýsing á eign nr. 211

Komið er inn í rúmgóða forstofu/gang sem tengir saman öll rými íbúðarinnar. Þar er rúmgóður fataskápur og fallegt harðparket á gólfi. Góð lofthæð og skýrt skipulag gera innganginn hlýlegan og praktískan.

Alrými – stofa, borðstofa og eldhús, 36,7 m²

Stórt og opið alrými með gólfsíðum gluggum sem hleypa inn mikilli birtu. Útgengt er út á 8,5 m² suðursvalir sem snúa í suður. Rýmið skiptist vel upp með stofu, borðstofu og eldhúsi með eldhúseyju. Vandaðar innréttingar frá Parka, quartz borðplötur og heimilistæki frá Ormsson.

Eldhúsið er fallega hannað og vandað, með sérsmíðuðum innréttingum frá Parka úr melamín hnotuáferð sem gefur því hlýlegt og stílhreint yfirbragð. Borðplötur og plata milli efri og neðri skápa fyrir ofan vask eru úr White Tech Grain quartz steini frá Stone Italiana – endingargott og fágað efni sem lyftir heildarútliti eldhússins. Í eldhúsinu er undirlímdur vaskur með blöndunartæki frá Grohe sem fellur vel að steinplötunni.

Í eldhúsinu eru vönduð tæki frá Ormsson: spanhelluborð, blástursofn með sjálfhreinsibúnaði og kjöthitamæli, uppþvottavél, innbyggður ísskápur og gufugleypir.

Svefnherbergi er rúmgott með góðu skápaplássi og gólfsíðum gluggum til suðurs. Harðparket á gólfi.

Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf með ítölskum flísum frá Porcelanosa. Sturta með glerþili, upphengt salerni og vaskinnrétting með quartz borðplötu.

Þvottahús er sér, með flísalögðu gólfi og góðri innréttingu. Tengi fyrir þvottavél og þurrkara og hillur/skápar.

Helstu kostir:Rúmgóð forstofa/gangur með fataskáp og parketiSkýrt og þægilegt skipulag – öll rými tengjast velGólfsíðir gluggar og suðursvalir með sól og útsýniHarðparket, gólfhiti og hágæða efnisvalLoftskiptikerfi með varmaendurvinnsluSérmerkt bílastæði í bílakjallara (B23)17,9 m² geymsla í kjallaraFalleg eign fyrir vandláta sem vert er að skoða – fullbúin, tilbúin til afhendingar og staðsett í einstaklega rólegu og fjölskylduvænu hverfi. Stutt er í leikskóla, skóla, sund, íþróttaaðstöðu og fallega strandlengju við Álftanes.

Pantið skoðun og fáið nánari upplýsingar hjá Katlu Hönnu Steed, löggiltum fasteignasala, í síma 822-1661 eða á netfangið katla@haborg.is

Kort af Hestamýri 2B

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður við sambærilegar eignir
Sjá verðmat og greiningu
Mynd 1Mynd 2Mynd 3Mynd 4Mynd 5Mynd 6Mynd 7Mynd 8Mynd 9Mynd 10Mynd 11Mynd 12Mynd 13Mynd 14Mynd 15Mynd 16Mynd 17Mynd 18Mynd 19Mynd 20Mynd 21Mynd 22Mynd 23Mynd 24Mynd 25Mynd 26Mynd 27Mynd 28Mynd 29Mynd 30Mynd 31Mynd 32Mynd 33