HÚSASJÁ

Austurbrú 14

01-0404 · 600 Akureyri

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
24 myndir

164 m²

Stærð

3

Herbergi

2

Svefnherbergi

2

Baðherbergi

2024

Byggingarár

3925 m²

Lóð

Garður

Svalir

Lyfta

Geymsla

Heitur pottur



651 dagar á sölu

sell

142.500.000 kr

868.373 kr/m²

Helgafell fasteignasala kynnir til sölu - þriggja til fjögurra herbergja "penthouse" íbúð á tveimur hæðum merkt 0403 í nýbyggingu með fimm svölum ásamt stæði í lokaðri bílageymslu við Austurbrú 12, Akureyri.

Arkitektar: THG arkitektar

Verktaki: JE Skjanni ehf.

Vefsíða verkefnisins við Pollinn á Akureyri

Íbúðin er samtals 163,1fm., þar af er geymsla 14,1fm.

Íbúð 0403 er á tveim hæðum.

Neðri hæð 90,9fm.

Gert er ráð fyrir forstofu, eldhúsi, stofu, baðherbergi með útgengi út á um 13,9fm. svalir.

Auðveldlega má koma fyrir auka svefnherbergi við hlið eldhússins með svölum til vesturs.

Út úr stofu er útgengt á tvennar svalir.

Efri hæð 59,1fm.

Mikil lofthæð einkennir efri hæðina, þar er gert ráð fyrir gangi, baðherbergi og tveimur rúmgóðum svefnherbergjum hvort um sig með svalir.

Rúmgóð geymsla í sameign.

Stæði í lokaðri bílageymslu fylgir íbúðinni.

Íbúðin afhendist fullbúin að utan en ófullgerð, nánast tilbúin til tréverks að innan.  Gert er ráð fyrir að kaupandi vilji hanna lokafrágang á íbúðinni þar sem miklir og skemmtilegir möguleikar eru við lokafrágang á þessari einstöku eign.

ATH: Myndirnar að innan eru tölvugerðar.

Sameign er með glæsilegra móti.

Komið er inn í rúmgott anddyri.  Stórar ljósakrónur og lýsing frá Lumex gefa fallega birtu.

Hljóðplötur í lofti, þannig að hlóðvist verður með besta móti.

Flísar á gólfi frá kjallara og upp á pall fyrstu hæðar.  Frá fyrstu hæð eru stigagangarnir teppalagðir.

Innangengt úr hverjum stigagangi niður í lokaða bílageymslu.

Eigninni er skilað skv. skilalýsingu verktaka.

Kaupandi greiðir skipulagsgjald 0,3% af brunabótamati þegar það leggst á eignina.

Fyrir nánari upplýsingar hafið samband við:

Sölumenn Helgafells fasteignasölu----------------------------------------------------------

Heimasíða Helgafells fasteignasölu

Facebook síða Helgafells

- Hafðu samband og við gerum söluverðmat á eign þinni, þér að kostnaðarlausu -

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af fasteignamati fyrir einstaklinga (0,4% fyrir fyrstu kaupendur) og 1,6% fyrir lögaðila.

2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - 2.700 kr. af hverju skjali.

3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt í kringum 50þ., oft lægra eða ekkert lántökugjald fyrir fyrstu kaup. Nánari upplýsingar á heimasíðum lánastofnana.

4. Þjónustusamningur milli kaupanda og fasteignasölu - Kr.  79.980,- m/vsk.

Helgafell fasteignasala bendir kaupendum á ríka skoðunarskyldu sem kveðið er á í lögum um fasteignakaup nr.40/2002. Skorað er á kaupendur að kynna sér vandlega ástand fasteigna og nýta til þess aðstoð sérfræðinga.  Sömuleiðis er bent á upplýsingaskyldu seljanda samanber 26.gr. Laga nr.40/2002 um fasteignakaup og 25.gr. laga nr.26/1994 um fjöleignarhús. Seljanda er bent á að kynna sér tilvitnaðar lagagreinar.

Kort af Austurbrú 14

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður við sambærilegar eignir
Sjá verðmat og greiningu
Mynd 1Mynd 2Mynd 3Mynd 4Mynd 5Mynd 6Mynd 7Mynd 8Mynd 9Mynd 10Mynd 11Mynd 12Mynd 13Mynd 14Mynd 15Mynd 16Mynd 17Mynd 18Mynd 19Mynd 20Mynd 21Mynd 22Mynd 23Mynd 24