HÚSASJÁ

Austurbrú 14

01-0209 · 600 Akureyri

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
11 myndir

65 m²

Stærð

2

Herbergi

1

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

2024

Byggingarár

3925 m²

Lóð

Garður

Svalir

Lyfta

Geymsla



653 dagar á sölu

sell

63.000.000 kr

967.742 kr/m²

Fasteignasalan Byggð 464-9955

Einstakar útsýnisíbúðir í hjarta Akureyrar. Staðsetningin býður íbúum við Austurbrú uppá einstök gæði. Íbúðirnar eru í nálægð við pollinn, miðbæinn og stóran hluta menningarstarfsemi Akureyrar.

Fyrir ítarlegar upplýsingar, m.a. skilalýsingu smellið hér

***Bókaðu einkaskoðun í síma 464 9955 eða á byggd@byggd.is***

Íbúð 209

Tveggja herbergja íbúð á annari hæð með svalir sem snúa til suðurs í nýbyggingu við Austurbrú 14, Akureyri

Íbúðin er samtals 65,1 fm., þar af er geymsla 6,8 fm.

Íbúðin:

Komið er inn í opið anddyri með skáp.  Opið eldhús, eldhúseyja með kvarts stein og span helluborði.  Skúffur og skápar í eldhúsinu eru allar með ljúflokum.  Eldhúsinnrétting með kvarts stein, bakaraofn í vinnuhæð, innfelldur vaskur.  Allar skúffur og skápar með ljúflokum.  Innfelld lýsing frá Lumex.

Fyrir framan eldhúseyjuna er stofa/borðstofa, útgengt út á skjólgóðar svalir til suðurs.

Hjónaherbergi með góðum skáp.

Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf.  Sturta með glerskili.  Falleg innrétting frá Parka, kvarts steinn á borðplötu. Upphengt salerni.  Skápur fyrir þvottavél og þurrkara, kvarts steinn á borðplötu.

Allar innréttingar, innihurðir, skápar og Electrolux eldhústæki eru frá Parka.  Blöndunar- og hreinlætistæki eru frá Tengi.

Íbúðinni er skilað fullbúinni en án gólfefna.

Sameign er með glæsilegra móti.

Komið er inn í rúmgott anddyri.  Stórar ljósakrónur og lýsing frá Lumex gefa fallega birtu.

Hljóðplötur í lofti, þannig að hlóðvist verður með besta móti.

Flísar á gólfi frá kjallara og upp á pall fyrstu hæðar.  Frá fyrstu hæð eru stigagangarnir teppalagðir.

Innangengt úr hverjum stigagangi niður í lokaða bílageymslu.

Við Austurbrún 10-14 verða 35 íbúðir og eru þær allar með verönd eða svalir. Gluggarnir nema við gólf fyrir óhefta dagsbirtu og útsýni. Flestum íbúðunum fylgir einkastæði í bílakjallara og þar eru einnig hjólageymsla og geymslur. Lyftur eru í öllum stigahúsum og gott aðgengi fyrir hjólastóla og barnavagna.

Í kjallara eru geymslur íbúðanna auk 62 bílastæða í bílageymslu. Ísorka ehf. og Austurbrú 10-18 húsfélag hafa gert með sér samning með rekstur hleðslukerfis fyrir rafbíla á sameiginlegu bílastæði með hugbúnað Ísorku ehf.

Í heild er um að ræða 64 íbúðir að meðtöldum íbúðum úr húsum 16 og 18. Byggingarnar sem rísa Hafnarstrætis megin á reitnum munu hýsa glæsilegt hótel búið veitingastað og kokteilbar.

Allar frekari upplýsingar, verðlista og tegundir íbúða má sjá með því að smella hér

Áætluð afhending: Sumar 2024

Framkvæmdaraðili: Pollurinn ehf.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila.    (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga m.v. að lágmarki 50% eignarhlut). Kaupandi greiðir skipulagsgjald 0,3% af brunabótamati þegar það leggst á eignina.

2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.700 af hverju skjali.

3. Lántökugjald lánastofnunar -almennt 0,5-1,0% af höfuðstól skuldabréfs (nánari upplýsingar m.a. á heimasíðum lánastofnanna).

4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.

Frekari upplýsingar:

bjorn@byggd.is

greta@byggd.is

olafur@byggd.is

Skipagötu 16 á 2. hæð.

S:464 9955

Kort af Austurbrú 14

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og greiningu