HÚSASJÁ

Austurbrú 18

01-0118 · 600 Akureyri

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
4 myndir

105 m²

Stærð

3

Herbergi

2

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

2024

Byggingarár

3925 m²

Lóð

Garður

Svalir

Lyfta

Bílskúr

Geymsla



329 dagar á sölu

sell

102.000.000 kr

971.429 kr/m²

Helgafell fasteignasala kynnir til sölu - þriggja herbergja endaíbúð með svölum til suðurs á fyrstu hæð merkt 0118 ásamt stæði merkt B14 í lokaðri bílageymslu í nýbyggingu við Austurbrú 18, Akureyri.

Arkitektar: THG arkitektar

Verktaki: JE Skjanni ehf.

Skoða heimasíðu verkefnisins við Pollinn

Íbúðin er samtals 105fm., þar af er geymsla 7fm.

Íbúðin:

Komið er inn í forstofu með skáp.

Barnaherbergi á hægri hönd með skáp.

Baðherbergi á vinstri hönd sem er flísalagt í hólf og gólf.  Sturta með glerskili.  Falleg innrétting frá Parka, kvarts steinn á borðplötu.  Upphengt salerni.

Hjónaherbergi með góðum skáp.

Stofa/borðstofa er björt með glugga til vesturs. Útgengt út á skjólgóðar svalir til suðurs.

Eldhús með eyju, kvarts steinn á borðplötu og span helluborð.  Skúffur og skápar í eldhúsinu eru allar með ljúflokum.  Eldhúsinnrétting með kvarts stein, bakaraofn í vinnuhæð, innfelldur vaskur.  Innfelld lýsing frá Lumex.

Þvotthús inn af eldhúsi með skáp fyrir þvottavél og þurrkara, borðplata úr kvarts stein.

Stæði í lokaðri bílageymslu.

Geymsla í sameign.

Allar innréttingar, innihurðir, skápar og Electrolux eldhústæki eru frá Parka.  Blöndunar- og hreinlætistæki eru frá Tengi.

Íbúðinni er skilað fullbúinni en án gólfefna.

Sameign er með glæsilegra móti.

Komið er inn í rúmgott anddyri.  Stórar ljósakrónur og lýsing frá Lumex gefa fallega birtu.

Flísar á gólfi frá kjallara og upp á pall fyrstu hæðar.  Frá fyrstu hæð eru stigagangarnir teppalagðir.

Innangengt úr hverjum stigagangi niður í lokaða bílageymslu og þaðan inn á hótelið sem verður opnað 2026.

Inngangur um bílageymslu í hótelið er einungis fyrir íbúðareigendur og hótelgesti.

Lokuð hjóla- og vagnageymsla í bílageymslu.

Eigninni er skilað skv. skilalýsingu verktaka.

Kaupandi greiðir skipulagsgjald 0,3% af brunabótamati þegar það leggst á eignina.

Fyrir nánari upplýsingar hafið samband við:

Helgafell fasteignasala - sími 566 0000 eða einn af fasteignasölum Helgafells.----------------------------------------------------------

Heimasíða Helgafells fasteignasölu

Facebook síða Helgafells

- Hafðu samband og við gerum söluverðmat á eign þinni, þér að kostnaðarlausu -

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af fasteignamati fyrir einstaklinga (0,4% fyrir fyrstu kaupendur) og 1,6% fyrir lögaðila.

2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - 3.800 kr. af hverju skjali.

3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt í kringum 50þ., oft lægra eða ekkert lántökugjald fyrir fyrstu kaup. Nánari upplýsingar á heimasíðum lánastofnana.

4. Þjónustusamningur milli kaupanda og fasteignasölu - Kr.  92.380,- m/vsk.

Helgafell fasteignasala bendir kaupendum á ríka skoðunarskyldu sem kveðið er á í lögum um fasteignakaup nr.40/2002. Skorað er á kaupendur að kynna sér vandlega ástand fasteigna og nýta til þess aðstoð sérfræðinga.  Sömuleiðis er bent á upplýsingaskyldu seljanda samanber 26.gr. Laga nr.40/2002 um fasteignakaup og 25.gr. laga nr.26/1994 um fjöleignarhús. Seljanda er bent á að kynna sér tilvitnaðar lagagreinar.

Kort af Austurbrú 18

Fáðu nýja innsýn á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og samanburð